Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 94

Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 94
Upp á síðkastið hefur verið óvenjumikið um sjónvarpsauglýsingar á vegum bankanna og hafa teiknimyndir á vegum Sam- bands sparisjóða vakið athygli. Með sumarbrag í auglýsingum Auglýsingar bankanna bera mun léttari brag á sumrin en veturna. Ferðalög, íþróttir og ýmislegt tómstundastarf verður meira áberandi því að almenningur vill njóta lífsins þó að hann þurfi að borga reikningana sína. Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Viðfangsefni sumarsins eru áberandi í sumarauglýsingum bankanna enda hljóta auglýsingar að bera merki þess við hvað fólk er að fást hveiju sinni. Markaðsmenn bankanna eru sammála um að útvarp, blöð og jafnvel umhverfisgrafík séu betri til auglýsinga á sumrin en sjónvarpið sem er sterkur auglýsingamiðill á veturna. Þetta er þó ekki algilt og auðvitað auglýsa iýrirtækin líka í sjónvarpi á sumrin. Stemmningin í auglýsingunum er þó tvímælalaust léttari yfir sumarið. A sumrin eru auglýsingarnar gjarnan tengdar íþróttum eins og knattspyrnu og golfi, sömuleiðis ferðalögum, görðum og sumarhúsum, svo að dæmi séu nefnd, þó að auðvitað reyni bankarnir að leiðbeina viðskiptavinum sínum og hjálpa þeim að nýta þjónustuna allt árið. Rekst á dyr og finnur SVO smárann Sparisjóðirnir hafa almennt séð ekki verið mikið með auglýsingar á sumrin. Sérhver spari- sjóður hefur þó staðið á bak við íþróttamenn eða menningarvið- þurði í sinni heimaþyggð, td. golfmót, íþróttamót eða sand- kastalabyggingar. Upp á síðkastið hefur hinsvegar verið óvenju- mikið um sjónvarpsauglýsingar á vegum bankanna og hafa teiknimyndir á vegum Sambands sparisjóða vakið athygli. „I þessum myndum er viðskiptavinur að leita lausna á sínum málum. Hann rekst á dyr og síðan á smárann sem opnar honum ákveðna leið. Með þessum auglýs- Viðskiptavinurinn rekst á dyr og finnur svo fjogurra laufa smarann. ingum erum við að láta vita af því að við höfum ánægðustu viðskiptavini ijármála- fýrirtækja á íslandi, skv. niðurstöðum Islensku ánægjuvogar- innar, og bjóðum aðra velkomna í hópinn. Herferðin er tilkomin vegna þeirra breytinga sem eru að verða á íslenskum banka- markaði. Sparisjóðirnir eru 24 sjálfstæð ijármálaiýrirtæki með áherslu á einstaklinga og minni og meðalstór íýrirtæki. Við erum að láta vita af því að við erum til staðar iýrir einstakling- ana og bjóðum alla velkomna í hópinn,“ segir Gísli Jafetsson markaðs- og fræðslustjóri. Golfkortið veitir afslátt að ræða tvær ímyndarherferðir. I auglýsingaherferð- inni „Einu sinni er allt iýrst“ eru auglýs- ingarnar tengdar ungu fólki, sem er að eignast iýrsta heimil- ið, fyrsta bílinn eða fara í iýrsta launaða starfið, og eru Hjá Kaupþingi-Búnaðarbanka er um Golfkort ffiBÚNAÐARBANKINN Golfkortið hjá Kaupþingi-Búnaðar- banka veitir 20% afslátt inn á alla golfvelli landsins. 94

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.