Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 23

Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 23
forstjóra Ingimundur Sigurpálsson Eimskip liikynnti 16. september að félagið hefði efnt kauprétt- arsamninga við lykilstjórnendur sem gerðir voru árið 2001. Þá var gengi bréfanna í Eim- skip 5,0. Starfsmennirnir nýttu sér kauprétt- inn og keyptu bréfin á samtals 163 milljónir á genginu 5,0 en langflestir seldu bréfin aftur samdægurs á genginu 7,5 sem var meðalgengi síðustu daga þar á undan. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Eimskips, keypti bréf fyrir 7,5 milljónir þennan dag og Eimskip keypti þau strax af honum aftur fyrir 10,5 milljónir. Þetta er mismunur upp á 3 milljónir og þarf Ingimundur að greiða staðgreiðsluskatta en ekki fjármagnstekjur af þessari Ijárhæð. Finnur Ingólfsson VÍS tilkynnti mánudag- inn 17. nóvember sl. að lykilstarfsmenn og stjórnarmenn hjá félaginu hefðu nýtt sér rétt til að kaupa hlut í félaginu í gegnum kaup- réttarsamninga fyrir rúmar 4,1 milljón að nafnverði. Flestir keyptu á genginu í kringum 20,0 og var markaðsvirði þessara viðskipta því yfir 80 milljónir króna. Forstjóri félagins, Finnur Ingólfsson, keypti bréf fyrir 180 þúsund að nafnverði á genginu 21,0 og 22,0 og greiddi fyrir þau 3,8 milljónir króna. Þessi viðskipti vöktu enga athygli. Þó voru þau gerð nokkrum dögum áður en Kaupþing Búnaðarbanki tilkynnti um sína kaupréttarsamninga. Einar Sveinsson Sjóvá-Almennar tilkynntu föstudaginn 29. ágúst til Kauphallarinnar að þær hefðu selt 17 lykilstjórnendum sínum hlutafé að nafnvirði 5,7 milljónir á genginu 27,0 og væri þar að efna kaupréttarsamninga sem gerðir hefðu verið á síðasta ári, árið 2002. Alls keyptu lykilstjórnendurnir fyrir 154 millj- ónir króna. Þar af var hlutur Einars Sveinssonar forstjóra 8,1 milljón króna. Flestir þessara lykilstjórnenda, nema Einar, seldu hluti sína á næstu dögum eftir samninginn á genginu 37,0. Markaðsvirði þessa hlutar Einars var þá orðið 10,8 milljónir og hagur hans á viðskiptunum því um 2,7 milljónir. Sigurður Helgason Flugleiðir tilkynntu á Þorláksmessu fyrir tæplega ári að sex stjórn- endur Flugleiða hefðu nýtt sér kaupréttar- samninga sem gerðir voru í júní í fyrra og keypt bréf að nafnverði 36,3 milljónir króna í félaginu á genginu 1,8 sem var gengið í júní. Þegar samningarnir voru gerðir á Þorláks- messu var gengi bréfanna um 4,8 eða næstum þrefalt hærra. Svo hratt hafði gengi bréfanna hækkað á haustmánuðum. Þessir samningar vöktu enga athygli á meðal almennings. Hlutur Sigurðar Helgasonar í þessum samningum var um 13,3 milljónir króna að nafnverði og höfðu bréfin hækkað um 40 milljónir króna frá því hann gerði kaupréttarsamninginn þar til hann nýtti sér réttinn og keypti þennan hlut. Sigurði var ekki heimilt að selja bréfin fyrr en um mitt ár 2004. Engin ákvæði voru í samningum um sölurétt Flugleiða sem myndi verja stjórnendurna gegn tapi. Róbert Wessmann Róber Wessman, for- stjóri Pharmaco gerði samning sem forstjóri Delta árið 2001 sem gerði ráð fyrir ákveðnum grunnlaunum og hins vegar árang- urstengdum greiðslum í formi kaupréttar. Þegar að kaupréttarsamningurinn var gerður við Róbert hafði gengi á hlutabréfum félagsins tvö- faldast frá þvi að hann tók við rekstrinum. Kaupréttar- samningurinn kvað á um kauprétt næstu 3 árin á genginu 25 sem nam 75 milljónum að markaðsvirði á þeim tíma. Samhliða því skuldbatt hann sig að starfa hjá félaginu þann tíma. Umreiknað á gengi Pharmaco er það gengi 4,74. Þegar Róbert nýtti sér fyrsta kaupréttinn sinn í maí 2002 keypti hann bréf að nafnverði 1 milljón króna á genginu 25. Kaupverðið var 25 milljónir, en markaðsverðið var þá komið upp í 75 milljónir og mismunurinn því 50 milljónir. Sl. vor nýtti hann sér aftur kaupréttinn og keypti bréf í Pharmaco á genginu 4,74 þegar gengið var komið upp í 19,5. Hann keypti því bréf fyrir 25 milljónir sem að markaðsvirði voru 103 milljónir og nam því mismunurinn 78 milljónum. Næsta vor á Róbert rétt á að kaupa síðasta hluta kaupréttar- ins. Miðað við að gengið í Pharmaco sé núna 34 verður mark- aðsverð þess hlutar því 179 milljónir - þ.e. ef gengi bréfa í fyrir- tækinu lækkar ekki - og því mismunur upp á 154 milljónir. Með þessum kaupréttarsamningi mun Róbert því á næsta ári hafi hafa keypt bréf í Pharmaco fyrir 75 mifljónir króna sem að markaðsvirði eru 357 milljónir. Mismunurinn er 282 milljón- ir króna. í lok ágúst keyptu níu stjórnendur í Pharmaco bréf fyrir 11 milljónir að nafnverði á genginu 27,7. Þar af var hlutur Róberts 6,3 milljónir sem að markaðsvirði er núna 214 milljónir. Fyrir utan þennan kaupréttarsamning hefur Róbert verið dijúgur við að kaupa bréf á eigin vegum í Delta frá 1999 og síðan í Pharmaco. í lok ágúst átti hann 26,5 milljónir hluta í félaginu sem að markaðsverði eru um 901 milljón króna. Nýti hann sér kaupréttinn á næsta ári verður hlutur hans orðinn 1.081 milljónir króna að markaðasverði og ljóst að eignarhlutur hans í fyrirtækinu verður yfir 1%. Róbert hefur keypt bréf á eigin vegum í Pharmaco. En í gegnum kaupréttarsamninga mun hann á næsta ári verða búinn að kaupa bréf fyrir 81,3 milljónir sem að markaðsvirði eru 571 mflljónir króna núna. Mismunurinn er 489,7 milljónir króna. Samtals mun hann þá eiga orðið tæplega 1,1 mflljarð í Pharmaco. 23
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.