Frjáls verslun - 01.10.2003, Síða 32
„Það verður að teljast
alveg Ijóst að áferð LIÚ
Kljóti að breytast þegar
Kristján Ragnarsson er
hættur. Hann var áber-
andi og öflugur leiðtogi,
en reynslan ein verður
að skera úr um það
hvort ímynd LÍÚ eigi
eftir að breytast," segir
Björgólfur Jóhannsson.
NYR FORMAÐUR LIU
Kristján af skútunni,
Björgólfur um borð
Kristján Ragnarsson er stokkinn „í land“ og hættur hjá LÍU eflir að hafa starfað fyrir
útvegsmenn alla sína starfsævi, eða í rúm 45 ár. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar, hefur tekið við formennskunni af honum og stendur núna í stafiii.
Texti: ísak Örn Sigurðsson Myndir: Geir Ólafsson
að verður að teljast alveg ljóst að áferð IÍÚ hljóti að breyt-
ast þegar Kristján Ragnarsson er hættur. Hann var áber-
andi og öflugur leiðtogi, en reynslan ein verður að skera
úr um það hvort ímynd LIÚ eigi eftir að breytast," segir hinn
nýi formaður IiÚ, Landssambands íslenskra útvegsmanna,
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar. Kristján
Ragnarsson er farinn af skútunni eftir að hafa staðið þar í stafni
í hvorki meira né minna en 33 ár af 64 ára sögu sambandsins
og starfað þar alla sína starfsævi, eða í rúm 45 ár.
„Hlutverk stjórnarformanns LIÚ er að vera leiðtogi stjórnar-
innar og hann vinnur að málefnum allra útvegsmanna sem eru
í sambandinu,“ segir Björgólfur. „Þar eru áberandi ýmis sam-
eiginleg atriði svo sem kjarasamningar og hagsmunagæsla.
Hlutverk stjórnarformannsins er að vera tengiliður á milli
stjórnar og þeirra starfsmanna LÍÚ sem vinna að málefnum
landssambandsins dags daglega."
Laugum í Reykjadal, hóf
nám í Menntaskólanum á
Akureyri 1973 og útskrif-
aðist þaðan 1977.
Björgólfur vann eitt ár
á Grenivík áður en hann
fluttist suður til að stunda
háskólanám í viðskipta-
fræði. „Þaðan útskrifaðist
ég 1983, tók próf sem lög-
giltur endurskoðandi
1985 og starfaði með
námi á endurskoðunar-
skrifstofu sem hét Endur-
skoðun Sigurðar Stefáns-
sonar. Hún breyttist síðar
í Deloitte & Touche og
enn síðar í Deloitte. Eg
varð meðeigandi þar 1985
og við stofnuðum skrif-
stofu á Akureyri í sam-
starfi með KPMG 1990.
Eg flutti þá norður og
sá um rekstur þeirrar
stofu. Árið 1992 færði ég
mig um set og réði mig
sem tjármálastjóra hjá
Útgerðarfélagi Akureyr-
inga, var þar til 1996 en
þá fór ég að vinna sem
framkvæmdastjóri
nýsköpunar- og þróunar-
sviðs hjá Samherja. I
febrúar 1999 flutti ég til
Norðfjarðar og hef starfað þar síðan sem forstjóri Síldar-
vinnslunnar," segir Björgólfur.
Eiginkona Björgólfs er Málfríður Pálsdóttir kennari. „Hún
er fæddur og uppalinn Reykvíkingur en mér tókst að draga
hana norður og síðar austur á firði. Við eigum tvær dætur, sú
eldri, Sólveig Kristín, er fædd 1990, en Steinunn Helga 1991.“
Björgólfur hefur alltaf haft mikinn áhuga á knattspyrnu og
stundaði hana á yngri árum. „Eg var mjög öflugur markvörður
með Magna á Grenivík á sínum tíma, en félagið náði þeim
árangri að vinna sig upp í aðra deild um tíma. Síðan hefur
hallað undan fæti bæði hjá mér og félaginu." Björgólfur hefur
einnig alla tíð haft mikinn áhuga á blaki sem hann kynntist að
Laugum í Reykjadal. „Þegar ég flutti til Norðfjarðar fór ég að
leika mér í golfi. Eg verð einnig að viðurkenna að ég hef mjög
gaman af að skreppa með byssuna á svartfuglaveiðar og lax-
veiðimaður verð ég að teljast, hef stundað laxveiðina i 16 ár.“
Viðskiptafræðingur og endurskoðandi Björgólfur er fæddur Legg mig allan fram „Ég hef sagt og stend við að mér íist
og uppalinn Grenvíkingur, en Grenivík er lítið þorp við austan- ágædega á þetta nýja embættishlutverk og hef trú á því að
verðan Eyjafjörðinn. Þar sótti hann barnaskóla og síðar að okkur takist að leiða sambandið áfram á þeirri braut sem LÍÚ
32