Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 52

Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 52
HLUTABRÉF OG EIGNASTÝRING Warren Buffett og hans framúrskarandi árangur Hvernig á að velja hlutabréf, ávaxta peninga og byggja upp eignir? Fjallað er um þetta í bók Islandsbanka, Hlutabréf & eignastýring, sem nýlega kom út. Frjáls verslun birtir hér úr kafla um bandaríska fjárfestinn Warren Buffett og framúrskarandi árangur hans. Warren Buffett er einn kunnasti i]árfestir veraldar, sá sem hefur efnast best allra af viðskiptum með hlutabréf. Buffett telur að verðið þurfi ekki að vera það allra lægsta til að hlutur sé keyptur í fyrirtæki. Það þurfi hins vegar að vera lægra en maður telji svara til verðmætis hlutarins og stjórn- endur fyrirtækisins þurfi að vera heiðar- legir og hæfir. Örugg leið til að ávaxta pen- ingana vel sé að kaupa hluti í nokkrum slíkum fyrirtækjum fyrir minna en sem nemur raunverulegu verðmæti þeirra að því tilskildu að fullt traust sé borið til stjórnenda fyrirtækjanna. Warren Buffett er án efa þekktastur núlifandi ijárfesta sem kenna sig við virðisfjárfestaskólann. Árangur Buffetts við fjárfestingu í hluta- bréfum á nærri fimmtíu ára ferli hans á sér líklega ekki hliðstæður. EIGNASTÝRING > ’-A Á meðal stærstu eigna Berkshire Hathaway um mitt árið 2003 eru Amer- ican Express (11% hlutur), Coca-Cola (8% hlutur), Gillette (9% hlutur), H&R Block (9% hlutur), Moody’s Corporation (15% hlutur), Washington Post Co. (18% hlutur) ogWells Fargo & Co. (3%hlutur). Virðisfjárfestingin hefur þróast mikið frá kenningum Grahams og Dodds í höndum lærisveina þeirra til upphafs 21. aldarinnar. Árið 1997 kom út bókin Buffettology eftir Mary Buffett, fv. tengdadóttur hans. Við ritun bókarinnar naut hún aðstoðar Davids Fjallað er um Warren Buffett í bókinni „Hlutabréf & eignastýring - Að velja hiutabréf og byggja upp eignir" sem íslandsbanki hefur gefið út. Warren Buffett Warren Buffett er einn kunnasti fjárfestir veraldar, sá sem hefur efnast best allra af viðskiptum með hlutabréf. Hann er án efa þekktastur núlifandi fjárfesta sem kenna sig við virðis- fjárfestaskólann. Hann lauk prófi frá háskólanum í Nebraska árið 1950 og sótti þá um að komast í nám til meistaraprófs í Harvard og Columbia háskólunum. Harvard hafnaði honum en Columbia sagði já og þannig varð Warren Buffett nemandi Benjamins Grahams. Árangur Buffetts við fjárfestingu í hlutabréfum á nærri fimmtíu ára ferli hans á sér líklega ekki hliðstæður en hann er líka kunnur fyrir kímnigáfuna og hnyttin tilsvör. Bréf stjórnar- formanns í ársskýrslu Berkshire Hathaway eru eftirminnileg og fróðlegri en flest annað fyrir fjárfesta með áhuga á hluta- bréfum. Áður en Buffett keypti Berkshire Hathaway rak hann Buffett Partnership á árunum 1956 til 1968 sem fáeinir kunn- ingjar hans höfðu lagt peninga í. Árið 1969 taldi Buffett að öll hlutabréf væru á of háu verði og þá lokaði hann félaginu. Eignir kunningja hans höfðu þá þrítugfaldast frá upphafi starfseminnar tólf eða þrettán árum áður. Berkshire Hathaway hafði verið á meðal eigna Buffett Partnership frá árinu 1965 en starfsemi þess var þá í vefnaði. Buffett keypti sjálfur hlutina í Berkshire af Buffett Partnership er síðarnefnda félagið var leyst upp árið 1969. Ef litið er á ár- angur Buffetts fyrir allt tímabilið frá 1956 til 1999 eða 43 ár sést að hann náði árlegri ávöxtun upp á 25,09% en það er nóg til að hækka eitt þúsund dollara í 19 milljónir dollara. Sam- bærileg hækkun S&P500 vísitölunnar í Bandaríkjunum á sama tíma var 11,2% á ári.SH
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.