Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 59

Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 59
Gunnar Smári sé harðduglegur og skarpgreindur vinnuforkur sem vinni hratt og hlífi sér hvergi. Og ætlast til þess sarna af samstarfsfólki sínu. „Þó hann geri kröfur til starfsmanna sinna þá vita menn að hann vinnur yfirleitt manna mest.“ Andrés Magnússon blaðamaður segir skipta einna mestu fyrir Gunnar Smára sem ritstjóra að hann sé afskaplega mótíverandi maður. „Hann á auðvelt með að hrífa samstarfsfólkið með sér og búa til liðsheild sem er til í að leggja allt í sölurnar fyrir hann. Og það er afskaplega gaman að vinna með honum þó hann hafi lítið annað að bjóða en blóð, svita og tár.“ Annar samstarfsmaður fullyrðir að Smári sé eini maðurinn sem skipti máli á Fréttablaðinu. „Þegar Frétta- blaðið vai- að byrja sá hann sjálfur um umbrotið, skipulagði auglýsingadeildina, lagði upp herferðir og var einn allsheijar verkstjóri. Hann gerði nánast allt nema hanna hausinn.“ Það dylst fáum sem eiga samskipti við Gunnar Smára að bann býr yfir mikilli þekkingu á flölmiðlum og blaðamennsku. »Það hafa fáir hannað jafnmörg blöð og Smári og nægir þar að nefna Pressuna, Eintak, Morgunpóstínn og síðar Helgarpóstinn °g loks Fréttablaðið og DV. Hann kom að hönnun DV áður og naut til þess trausts Jónasar Kristjánssona- sem treystir yfirleitt ekki öðrum en sjálfum sér,“ sagði gamall samstarfsmaður. Kaldhæðinn Gunnar Smári er sjálfmenntaður en skarp- greindur. Hann er víðlesinn, spænir í sig bækur og er tiltölulega fljótur að mynda sér skoðun á þeim. Má geta þess að hann hefur sett út á gagnrýni um bækur án niðurstöðu um hvort þær séu góðar eða vondar sem bókmenntalegt „húmmilíhúmm". „Ég get ekki annað en dáðst að Smára fyrir úthaldið og þraut- seigjuna. Hann er hálf manískur í vinnu og alls ekki allra. Otrú- lega fylginn sér og hefur ákveðna rörsýn. Hann hefur ekki áhyggjur af því hvað öðrum finnst eða hvernig hans álit snertír aðra. Og það er yfirleitt ekki að trufla hann þó hann skilji eftír fórnarlömb á vegi sínum,“ sagði fyrrum samstarfsmaður Smára. Þrátt fyrir þessa lýsingu sýnist sama manni að Smári sé aðeins farinn „að mýkjast og þroskast með árunum“. Andrés Magnússon segir að Gunnar Smári geti verið skeyt- ingarlaus og óþolinmóður. „Sem stundum á auðvitað við, en fer misvel ofan í fólk. Hann er ógeðslega fyndinn, en stundum getur kaldhæðnin gengið út í öfgar, jafnvel þannig að sumum finnst orðræðan helgast af litlu öðru en kvikindisskap. Ég held Hka að hann hafi lesið um trúmál sér til tjóns, því stundum eru leiðaraskrifin hjá honum svo móralíserandi og yfirþyrmandi að það hálfa væri miklu meira en nóg.“ Annar samferðamaður Smára sagði að hann yrði seint kallaður viðkvæmur eða tílfinn- inganæmur maður, væri oft kantaður í samskiptum. „Hann vill gjarnan hafa síðasta orðið og meinfyndnar athugasemdir hans geta verið mjög stíngandi. Að þessu sögðu þarf ekki að koma á óvart að hann tekur gagnrýni stundum illa.“ Togstreita Viðmælandi komst svo að orði að götustrákur væri í Gunnari Smára og í honum blundaði uppreisnarseggur. „Hann er óhræddur að bjóða hverjum sem er byrg- inn. Ég efast hins vegar um að hann leggi menn viljandi í einelti þó hann virðist reyndar óskaplega upptekinn af Davíð Oddssyni for- sætisráðherra um þessar mundir." „Það verður að telja Srnára tíl tekna að hann er að upplagi góður og frumlegur blaðamaður og ágætur penni. Hann kemur að málum úr óvæntum áttum og hefúr frumlega hugsun," sagði samstarfsmaður Smára um skeið en bætti við: „Einhvers staðar á þessari löngu leið hefur hann týnt svolítið stórum hluta af blaðamanninum í sér. Framkvæmdastjórinn virðist hafa yfirtekið blaðamanninn í of ríkum mæli. Þessi togstreita endurspeglast í því að Smári er talsmaður ákveðinna viðskiptahagsmuna." Eða eins og annar orðaði það: „Smári er að mörgu leyti í pólitík þar sem hann er með nýju peningunum en á mótí þeim gömlu. Hafi menn það í huga er það ein leið til að skilja betur sumt af því sem hann segir.“ Talnagúrú Gunnar Smári hefur löngum haft orð á sér fyrir að vera talnaglöggur maður og þykir mörgum sem hann búi þar yfir sérstakri náðargáfu. Á DV fyrir rúmum áratug hélt Gunnar Smári uppi virkri stjórnarandstöðu og hélt þáverandi fjármála- ráðherra, Ólafi Ragnari Grímssyni, og starfsmönnum ráðuneyt- isins rækilega við efhið. Ólafur Ragnar reyndi að kynna rikisljár- málin sér í hag og hafði tílhneigingu í þá veru að vilja stýra fjöl- miðlaumræðunni. En útreikningar Smára voru ráðherra oft á tíðum Þrándur í Götu. Mörgum er þannig minnisstætt þegar Ólafur Ragnar missti þolinmæðina á blaðamannafundi og kallaði tíl Smára: „Þú þarna talnafakír..." KR-íngur Gunnar Smári Egilsson er 42 ára gamall, fæddur 11. janúar 1961. Steingeit. Hann ólst fyrst upp á Seljaveginum í Vesturbæ Reykjavíkur en í lok sjöunda áratugarins fluttí fjöl- skyldan inn í Voga og Gunnar Smári kláraði skylduna í Voga- skóla. Foreldrar Gunnars Smára eru Egill Hansen bifvélavirki og Guðrún Guðmundsdóttir húsmóðir. Gunnar Smári er yngstur íjcigurra bræðra en þeir eru Hafsteinn, veislu- og ráð- stefnustjóri á Hótel Sögu, Siguijón Magnús, fréttastjóri á Frétta- blaðinu, og Egill, skipstjóri í Stykkishólmi. Þá á hann einn hálf- bróður, Kristján, starfsmann Eimskips. Gott samband er milli þeirra bræðra en þeir hittast reglulega. Sambýliskona Gunnars Smára er Alda Lóa Leifsdóttir ljós- myndari en saman eiga þau Bókaforlagið Dægradvöl ehf. Gunnar Smári er barnlaus en á uppeldisson, Davið, sem er 17 ára. Gekk hann drengnum í föðurstað strax í æsku. Þá á Alda Lóa eina dóttur fyrir. Eftir skólagúngu vann Smári ýmis störf, var m.a. á sjó Vestur- bæjargenið er sannarlega til staðar þar sem Gunnar Smári er eldheitur KR-ingur, eins og reyndar þeir bræður allir. Vinnan er hans helsta áhugamál og vinir og kunningjar hafa oft tengst vinnunni á einhvern hátt. Til sögunnar má t.d. nefna Jón Óskar Hafsteinsson listamann sem er snjall blaða- „Það er stundum sagt að með Frétta- blaðinu hafi Smára tekist vel upp við að selja auglýsendum lesendur en hvort honum takist að selja lesendum dagblað á efdr að koma í ljós.“ 59
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.