Frjáls verslun - 01.10.2003, Blaðsíða 110
Skemmtilegt mannlíf í Vetrargarðinum.
Vetrargarðurinn í Smáralind:
Vetur undir þaki
Það þekkja flestir íslendingar orðið Vetrargarðinn í
Smáralind þar sem ótal listviðburðir, sýningar, ráð-
stefnur og margt fleira hefur farið fram á þeim
rúmum tveimur árum sem Smáralind hefur verið til.
„Vetrargarðurinn er svo sannarlega ijölnota rými sem
vel hefur tekist til með að hanna og nota,“ segir
Sigurjón.... „Það má segja að garðurinn sé í notkun
hverja einustu helgi undir einhvern viðburð og þær
örfáu helgar sem hann er ekki leigður út eða ráðstafað á
annan hátt, höfum við verið með leiktæki í honum,
börnunum til mikillar ánægju."
JÓIÍn í Vetrargarðinum í desember stendur mikið til, enda
ljóst að hundruð þúsunda gesta munu leggja leið sína í Smára-
lind til að versla, skemmta sér og slaka á í dagsins önn. Boðið
verður upp á tónleika af ýmsu tagi og jólaböll og hin vinsæla
Idol stjörnuleit verður í beinni
útsendingu frá Vetrargarðinum.
„Það verða alls konar jólaskemmt-
anir hér og við hlökkum til að taka á
móti þeim íjölda gesta sem við
eigum von á,“ segir Sigurjón
Friðjónsson. „í janúar og febrúar
heldur ijörið áfram því alþjóðleg
kokkakeppni - Food and fun, verður
haldin hér 3. árið í röð, Brúðkaups-
sýningin einnig og Islandsmeistara-
keppnin í kökuskreytingum svo fátt
eitt sé nefnt. Idol stjörnuleitin heldur
áfram í janúar og sjónvarpsþátturinn
Gettu betur verður haldinn í garð-
inum frá 26. febrúar til 2. apríl. Við
verðum með bílasýningar, Siglinga-
sambandið verður með kynningu,
ISI einnig og ferðasýning verður
haldin hér. Legósýningin, sem verið
hefur tvisvar og slegið í gegn, verður
aftur og nokkur skákmót verða
haldin. Þar íýrir utan má nefna hár-
greiðslukeppni, tískusýningar, mál-
verkasýningar og íslandsmeistara-
mótið í Fitness."
Ný og glæsileg áhorfendastúka
Til að auka enn notagildi Vetrar-
garðsins hefur verið keypt rúmlega
400 sæta áhorfendastúka sem hægt
er að setja upp og taka niður á einum degi. Þetta gerir að
verkum að mun fleiri geta notað garðinn og hægt verður að
taka á móti allt að 1000 manns í sæti í einu.
Ljóst er að íýrirtæki geta náð einstökum árangri með því
að halda kynningar á vörum sínum og þjónustu í Vetrar-
garðurinn enda heimsækja að jafnaði um 30-60 þúsund gestir
Smáralind um hveija helgi. III
Það er notalegt
aó vera undir þaki í
vetrarkulda og Vetrar-
garðurinn í Smáralind
ber svo sannarlega
nafn með rentu.
Bílar, bátar, hjól, sleðar. Allt á þetta erindi á sýningar í Vetrar-
garðinum.
I Smáralind eru sýningar, tónleikar og aðrar uppákomur í
hverri viku.
110