Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 113

Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 113
Islenskir kaupmenn hafa fjölbreytt vöruúrval á góðu verði. íslensk kaupmannajóS Vöruverð á íslandi hefur lækkað talsvert hin síðustu ár og vöruúrval hér er með eindæmum gott. að eru ekki mörg ár síðan hver flugvélin af annarri flaug fyrir jólin hlaðin íslendingum til London, Edinborgar og Glasgow. Ferðirnar voru farnar í þeim tilgangi einum að fylla ferðatöskur af útlendu góssi, fötum, gjafavörum, snyrtivörum og skartgripum svo eitthvað sé nefnt. I vélunum voru heilu saumaklúbbarnir, vinnustaðir, vinkonur, íjöl- skyldur og jafnvel íslenskir kaupmenn sem samviskusamlega ýmislegt tilbúið, fá aðstoð þeirra sem taka þátt í veisl- unni og margt fleira sem einfaldar málið. • Fáðu aðstoð. Ekki reyna að gera allt einn/ein. Láttu aðra í ijölskyldunni hjálpa þér við undirbúninginn. • Passaðu budduna. Manni hættir til að eyða um of íyrir jólin. Það byggist upp ákveðin spenna og oft á tíðum er andrúmsloftið óraunhæft og meira eyðist en á að gera. Svo kemur að skuldaskilum og þá er vont að vera tíl. • Hugsaðu um þig. Borðaðu vel og rétt og gættu þess að þú fáir nægan svefn og hreyfingu. 20 mín. ganga á dag gerir kraftaverk og er besti stressbani sem til er. Hll þrömmuðu upp og niður verslunargötur erlendra stórborga í þeim tilgangi að kaupa vörur sem voru nægjanlegar ódýrar til þess að það þótti borga sig að fara utan eftir þeim. Á tímabili var það svo að ákveðnir kaupmenn í þessum erlendu borgum voru farnir að treysta á jólaflóð Islendinga sem eyddu eins og þeir hefðu unnið stóra vinninginn í lottó og nokkrir þeirra voru svo forsjálir að koma sér upp nokkrum orðum á íslensku til að geta bjargað íslendingum sem ekki kunnu málið nógu vel. Og sæist þreytuleg manneskja, með gráleitt yfirbragð af inniveru og ótal þunga poka ganga niður Oxfordstræti í Lund- únum eða samsvarandi götu í öðrum borgum, mátti slá því föstu að þarna væri Islendingur í jólainnkaupum. Of stórt - of litið Auðvitað komu upp smávægileg vanda- mál þegar heim var komið. Flíkur pössuðu ekki alveg, snið og litir kannski ekki nákvæmlega eins og ætlast var til og dæmi voru um að komið væri í íslenskar verslanir til að reyna að skipta vörum sem keyptar höfðu verið erlendis á góðu verði. íslenskir kaupmenn og heildsalar áttuðu sig smátt og smátt á því að samkeppnin væri ekki aðeins hér heima heldur einnig við útlönd og við lá að margir misstu móðinn. Með tímanum tóku þeir þó á vandanum og álagning lækkaði tals- vert og nú er svo komið að þessi samkeppni er iyrir bí. Það borgar sig ekki lengur að fara til útlanda að kaupa föt - nema kannski barnaföt sem ekki bera virðisauka í Bretlandi og víð- ar og íslenskir kaupmenn standa sig ákaflega vel í því að hafa íjölbreytt vöruúrval á góðu verði - iýrir íslenska kaupendur sem geta nú farið til útlanda í þeim tilgangi að skoða mannlíf og menningu og slaka á í stað þess að eltast við verslanir. H3 113
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.