Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 116
Hljóðfæraverslun Leifs Magnússonar:
Ijúfum nótum
Leifur Magnússon í versluninni að Suðurlandsbraut 32, þar sem hægt er að fá píanó og flygla af öllum stærðum og gerðum
Tónlist er merkilegt fyrirbæri. Þú lokar augunum
og leyfir huganum að svifa eftir tónabrautinni
sem leiðir þig þangað sem tónskáldið og hljóð-
færaleikarinn ætlaði þér að fara. Lítill drengur, 8 ára
gamall, fann þessa töfra þegar hann var sendur á
Vífilsstaðaspítala, blindur vegna heilahimnubólgu,
þar sem læknirinn, Helgi Ingvarsson, bjargaði lífi
hans. Hann heyrði mann í næsta herbergi leika á
harmoniku og heillaðist af.
Mikið vatn er til sjávar runnið, enda gerðist þetta árið 1955.
Sá sem um er rætt heitir Leifur Magnússon, og rekur Hljóð-
færaverslun Leifs Magnússonar en vinnur auk þess við að stilla
ótal píanó landsmanna. „Eftír að ég útskrifaðist frá Vífilsstöðum
gaf föðursystir mín mér tvöfalda harmonikku og annar ættingi
minn kenndi mér að nota hana,“ segir Leifúr Magnússon þar
sem hann er í verslun sinni, umkringdur píanóum, flyglum og
harmonikum. „Þetta voru mín fyrstu kynni af hljóðfærum. í
framhaldi fór ég að æfa á píanó sem var heima hjá mér og árið
sem ég fermdist keypti ég mér kontrabassa fyrir fermingarpen-
ingana. Þá átti ég heima á Akranesi þar sem ég er fæddur og
alinn upp. Þar var þá starfandi í bænum skólahljómsveit sem
bauð mér að vera með þegar þeir heyrðu af því að ég ætti
kontrabassa. Eg þurfd ekki að hugsa mig lengi um í það skiptið.
Hljómsveitin, sem hét Dúmbó, spilaði víða á böllum og ég var
að rifja það upp um daginn að líklega hefði aðeins einn okkar
verið kominn með aldur til þess að vera á þessum dansleikjum
sem við vorum að spila á! Restin var á undanþágu frá bæjar-
fógeta. Ég spilaði með þeim fram til áramóta
1962-'63 og fór þá til Bandaríkjanna að læra
píanóstillingar. Þar var ég í fjögur ár í blindra-
skóla og bjó á meðan hjá systur nfinni og manni
hennar."
Innflutningur Leifur kom heim að loknu
námi og hóf að stilla píanó hér á landi. Árið
1973 byrjaði hann að flytja inn píanó og var
fyrst í stað með amerísk píanó til sölu en bætti fljótlega evr-
ópskum við. Nú hefur hann til sölu píanó og flygla frá
mörgum framleiðendum og í öllum verðflokkum, ný og
notuð; Samick, Seiler, Steinway&Sons, Bösendorfer, Fazioli,
Estonia, Yamaha, Klima o.fl.
Píanó í jólagjöf? „Það er ekki óalgengt að píanó séu gefin í
jólagjöf," segir Leifur. „Nemandinn er þá e.t.v. kominn á það stig
að hann þurfi betra hljóðfæri og tækifærið þá notað til að endur-
nýja við jól, fermingar eða afrnæli svo dæmi sé tekið. Eldra fólk
er líka farið að láta drauminn um að eignast píanó rætast.“
Fyrir rúmu ári fluttí verslunin af Gullteignum þar sem hún
hafði verið um nokkurra ára skeið og í talsvert stærra húsnæði
að Suðurlandsbraut 32. „Hér fer vel um okkur og við getum
sýnt töluvert fleiri píanó en áður og sinnt viðskiptavinum okkar
betur. Við erum hér þijú, ég og eiginkona mín, Guðleif Guð-
laugsdóttir, og Guðrún Hauksdóttir sem hefur unnið hjá okkur
lengi með hléum. 33
Píanó og flyglar
standa í röóum á
gólfinu í Hljóðfæra-
verslun Leifs
Magnússonar og
bíða nýrra eigenda.
116