Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 126
Lundúnarpistill Sigrúnar
Konungsfjölskyldan hf.
og fjölmiðlarnir
Ryan Parry, blaðamaður Daily Mirror, gekk um vistarverur George W. og Lauru Bush í
Buckinghamhöll, og velti fyrir sér hvað hann hefði nú getað gert ef hann væri hryðjuverkamaður.
Efdr Sigrúnu Davíðsdóttur í London
Meðan 14 þúsund lögreglumenn voru að búa sig undir að
verja valdamesta mann heims í stuttri heimsókn hans til
Englands og notuðu til þess 5 milljónir punda, um 650
milljónir króna, stjáklaði Ryan Pai'ry, blaðamaður Daily Mirror,
um vistarverur George W. og Lauru Bush og nánustu forseta-
ráðgjafanna í Buckinghamhöll, myndaði þær og velti fyrir sér
hvað hann hefði nú getað gert ef hann hefði verið hryðjuverka-
maður. Jú, hann hefði léttilega getað þurrkað út forsetann, ráð-
gafa hans, konungsljölskylduna, breska forsætisráðherrann,
lykilráðherra og fyrirmenn eins og viðskiptajöfurinn Percy
Barnevik, sem komu í hallarveisluna til heiðurs forsetanum.
Uppákoman, sem blaðið olli með því að birta tvo daga í röð
nákvæmar lýsingar á öllu mögulegu og ómögulegu sem snerti
ijölskylduna, endurómaði auðvitað í öllum Jjölmiðlum, en þá var
líka leikurinn á enda. Drottningin fékk lögbann á frekari birt-
ingu og málsókn lá í loflinu, en rnálinu lyktaði með dómsátt:
Engar frekari fréttabirtingar enda sagðist Mirror búið með
efnið, það greiðir drottningunni 25 þúsund pund upp í lögfræði-
kostnað hennar, afhendir allt óbirt efni og myndir, en heldur
eftir milljóna hagnaði af birtu efni og sölu þess um allan heim.
Efnið má blaðið nota áfram nema tvær myndir úr svefnher-
bergjum flölskyldunnar. En þetta veltir upp spurningum um
reksturinn á því ofurfyrirtæki, sem konungsfjölskyldan er í
raun og snertir þá einnig sambandið við ijölmiðlana.
Öryggisgæsla í höllinní og fyrirtækjum öryggisgæsla í stór-
fyrirtækjum hér, ekki síst bönkum, hefur auðvitað
gjörbreyst á undanförnum árum og öryggisgæsla
er meira að segja orðin háskólafag. Maður sem
vinnur við stærðfræðigreiningu hjá einum af stóru
bönkunum í City sagði mér nýlega að hann megi
ekki hafa farsímann sinn kveiktan í vinnunni - af ör-
yggisástæðum. Víða annars staðar eru margvísleg
öryggisráð uppi. I London hef ég komið í mennta-
skóla sem eru jafn vaktaðir og bankar, ekki hægt að
komast inn í án þess að fara í gegnum vaktað hlið
undir vökulum augum eftirlitsmyndavéla. í fyrra var
mikið uppistand þegar gamanleikari nokkur, klædd-
ur eins og Bin Laden, klifraði yfir hallarveggi og fékk síðan að-
stoð lögreglu til að komast í afmælisveislu annars sonar Karls
Bretaprins. Enskir lögregluþjónar eru annálaðir fyrir kurteisi
og þessir brugðust ekki, enda voru gestir í grímubúningum.
David Blunkett innanríkisráðherra lofaði bót og betrun í örygg-
ismálum, en það breytti því ekki að Perry átti nú greiðan að-
gang að vinnu í höllinni.
Konungsljölskyldan er fyrirtæki Konungsflölskyldan er að
mörgu leyti eins og fyrirtæki. Eignirnar eru miklar og eigna-
umsýslan því umfangsmikil. Nútímafyrirbæri eins og öryggis-
gæsla hefur auðvitað líka skilað sér inn til þessa fyrirtækis, en
gallinn er að þar er andinn enn svo ótrúlega gamaldags að
breytingar ganga hægt. Drottningin var í 133. sæti yfir auðug-
ustu Bretana á síðasta auðkýfingalista Sunday Times, sem
birtist árlega. Persónulegar eignir hennar eru metnar á 250
milljónir punda, krúnan er annar handleggur. Konungsljöl-
skyldan hf. Buckingham höll er eign krúnunnar, en sjálf á
drottningin tvær aðrar hallir, að Sandringham og Balmoral, auk
fleiri húseigna. Krúnan á listaverk að verðmæti 10 milljarða
punda, en listaverk drottningar eru bara metin á 2 milljónir.
Utan um eignir hennar er fjárfestingasjóður, metinn á 80 millj-
ónir, en hann hefur skroppið saman undanfarin misseri eins og
fleiri slikir sjóðir.
Kynhneigð Karls Eflir að hafa spáð í kynhneigð Karls Breta-
prins í kjölfar ‘uppljóstrana’ fyrrum
hallarstarfsmanns hafa landsmenn
undanfarið getað skemmt sér yfir
þeirri innsýn sem frásögn Perrys
gefur í hallarlífið, eins og að í svefn-
herbergjum hinna konungbornu eru
engar vekjaraklukkur heldur eru
ijölskyldumeðlimir vaktir daglega
eins og í ævintýrum, af þjóni sem
stikar inn, dregur gluggatjöldin frá
og býður góðan dag, við misjafnar
undirtektir. Ymsir voru skeknir yfir
Konungsfjölskyldan er fyrir-
tæki. Eignirnar eru miklar
og eignaumsýslan umfangs-
mikil. Örygtisgæsla hefur
auðvitað skilað sér inn til
þessa fyrirtækis Gallinn er
bara sá að þar er andinn
enn svo ótrúlega gamaldags
að breytingar ganga hægt
126