Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 127

Frjáls verslun - 01.10.2003, Side 127
Wcdncsdoy Novcmbcr 19 2003 írror MEWSPSPER OFIHE VEflR 32p WORLD Exclusive As Bush arrives, we reveal Mirrorman has been a Palace footman forWO MONTHS in the biqqest royal security scandal ever THE biflflesl royal sacurtty scandal evsr !s exposod today by • Mlrror nf ‘ man En*Buckingham Pi 1 STOWYt PflGES 2,3,4,5,6,7,8,9,K>,n, 12,13,14/8.15 Umfjöllun Daily Mirror um blaðamann sinn Ryan Perry í Buckinghamhöll vakti ótrúlega athygli og umtal um öryggisgæslu í höllinni. því hvað einkavistarverurnar eru ósmekklegar og ögn hallæris- legar - líkjast 5 stjörnu hóteli fyrir 30 árum. Þeir innanhtissarki- tektar og hönnuðir, sem hafa tekið Bretland og heimsbyggðina með trompi, hafa ekki verið kallaðir til hallarþjónustu. Ekki er það þó af ijárskorti, en allur reksturinn á Konungsfjölskyldunni hf. er brenndur sama marki og framkoman við þjónana, sem mega ekki ganga á miðjum göngunum heldur eiga að halda sig við veggina og búa í afar snautlegum herbergjum og deila bað- herbergjum. Bragurinn er firna gamaldags. Svo gamaldags að þingneihd, sem sett var í málið, skilaði mjög gagnrýninni skýrslu, þar sem er bent á að rétt eins og þegar forstjórar flétta einkaneyslu saman við fyrirtækið, þá stangist á hvernig Jjölskylduumsvifin eru annars vegar á vegum hins opinbera, af því ijölskyldan fær um 300 milljónir punda árlega og hins vegar einkarekstur, þar sem ýmsum ættingjum er til dæmis heimilt að búa í glæsivistarverum í höllum fyrir lægri leigu en á aumasta herbergi í London. Fornaldarbragur- inn skýrir einnig að hluta af hveiju Perry gat labbað inn í vinnu sem hann sá auglýsta á netsíðu hallarinnar. Umsóknina sendi hann inn undir eigin nafni. Ef einhver hefði haft fyrir að gera netleit hefðu fundist eftir hann greinar úr Mirror með myndum af honum. Meðmælin voru frá fastagesti á krá í Wales, þar sem hann vann og þau athugaði höllin með þvi að hringja í farsíma fastagestsins, þar sem hann sat á kránni að vanda. Og einn tveir þrír, þá var Perry kominn í vinnu og á skömmum tíma var búið að vígja hann inn í öll leyndarmálin um innstu þarfir konungs- fjölskyldunnar og hvað hver segir um hvern. I höllinni hvila allra augu á fjiilskyldunni, allir kjafta um hana og slúðrið berst frá þeim hæstu niður til þeirra lægstu. Bretar Vilja fjölskylduna áfram Vafalaust hefur Perry skor ið sig úr öðrum starfsmönnum fyrir áhuga og greind. Það eru gífurleg mannaskipti í starfsmannaliðinu, tengt því að launin eru óvíða lægri en hjá Konungstjölskyldunni hf., um 11 þús- und pund á ári, tæplega 1,5 milljónir króna, sem hrekkur niður í um 9 þúsund, þegar búið er að draga frá húsnæði og fæði. Hver vill vinna fyrir slík laun? Hér áður fyrr voru ýmsir tilbúnir til þess. Ungu fólki var sagt að það opnaði víða dyr að hafa unnið hjá Konungsfjölskyldunni hf. En þeim atvinnurek- endum fer fækkandi sem taka mark á slíku. Langflestir sem sækja um vinnu eru utan af landi og Jjölskyldan ku reyndar taka sveitamenn fram yfir aðra. Það getur svo hver og einn spáð í af hverju svo sé, en drottningin er reyndar fræg áhuga- kona um sveitalíf og er góð í að herma eftir mállýskum. En þrátt fyrir allt hefur stuðningur almennings við ijölskylduna aukist samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Guardians: I fyrra álitu 43 prósent að Bretar væru verr settir án Jjölskyldunnar, en nú telja 57 prósent að svo væri. 33 prósent álíta að betra væri að vera án hennar, 31 prósent í fyrra, en aðeins 10 pró- sent geta ekki svarað, voru 26 prósent í fyrra. Það er víðáttumunur á bresku konungsljölskyldunni og þeim norrænu. Einu sinni rakst ég á Margréti Þórhildi Dana- drottningu á útsölu í gardínubúð rétt hjá Amalienborg, þar sem hún var alein að gera góð kaup, en ég býst ekki við að eiga slika uppákomu í vændum með nokkurn úr Qölskyld- unni hér. Danadrottning kemur keyrandi í glæsibíl sínum til að vera viðstödd þingsetningu, vindur sér inn, heilsar þeim sem þarf, sest í sætið sitt í þingsalnum, hlustar á forsætisráð- herra flytja stefnuræðu og hverfur svo á brott - alls um klukkustundar törn. Bretadrottning keyrir í gullvagni til þing- setningar, fetar sig inn í hermelínskikkju, hirðmenn og aðrir ganga aftur á bak frá henni og það er heilt leikrit að koma henni í salinn, þangað sem þingheimur er kallaður inn af sér- stökum embættismanni, sem drepur á dyr með svörtum staf. Þingheimur marsérar fyrir hana, nema einn þingmaður, sem er í ‘gíslingu’ í þingsalnum, af því hér er verið að leika forna atburði. Svo les drottningin ræðu sem foi’sætisráðherrann hefur skrifað, jafnvel þó ráðherrann sé sjálfur fluglæs, og svo hverfur hún heim í höllina. Þetta tekur rúmlega hálfan dag. Þetta er ‘cool Britain’ anno 2003, líka dæmigert fyrir andann í Konungstjölskyldunni hf. Bush I Bucklngham Á stundum tekur drottningin á móti gestum og Bush var einn þeirra. Venjulega eru það konung- legir gestir, sem fá að gista í höllinni. Enginn Bandaríkjaforseti þess verðugur síðan 1918, fyrr en Bush nú. Auðvitað var heim- sóknin að frumkvæði drottningar heldur var þetta pólitískt framtak Tony Blairs forsætisráðherra til að styrkja sig og Bush. Hér spurði hver um annan þveran af hverju nú, af hveiju Bush? Flestir álíta að þetta sé sérstök ósk Bush, sem ætli að nota hallarmyndirnar sér til framdráttar í kosningabar- áttunni á næsta ári. Ávinningur Blair var umdeildari, en hann hafði áhuga á að landsmenn sæju aðrar hliðar á Bush en venju- lega, í von um að það efldi vinsældir hans og stuðninginn við Iraksaðgerðirnar. SIi 127
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.