Frjáls verslun - 01.10.2003, Qupperneq 127
Wcdncsdoy
Novcmbcr 19 2003
írror
MEWSPSPER OFIHE VEflR 32p
WORLD
Exclusive
As Bush arrives, we reveal Mirrorman has
been a Palace footman forWO MONTHS
in the biqqest royal security scandal ever
THE biflflesl royal sacurtty
scandal evsr !s exposod
today by • Mlrror nf ‘
man En*Buckingham Pi
1 STOWYt PflGES 2,3,4,5,6,7,8,9,K>,n, 12,13,14/8.15
Umfjöllun Daily Mirror um blaðamann sinn Ryan Perry í
Buckinghamhöll vakti ótrúlega athygli og umtal um
öryggisgæslu í höllinni.
því hvað einkavistarverurnar eru ósmekklegar og ögn hallæris-
legar - líkjast 5 stjörnu hóteli fyrir 30 árum. Þeir innanhtissarki-
tektar og hönnuðir, sem hafa tekið Bretland og heimsbyggðina
með trompi, hafa ekki verið kallaðir til hallarþjónustu. Ekki er
það þó af ijárskorti, en allur reksturinn á Konungsfjölskyldunni
hf. er brenndur sama marki og framkoman við þjónana, sem
mega ekki ganga á miðjum göngunum heldur eiga að halda sig
við veggina og búa í afar snautlegum herbergjum og deila bað-
herbergjum. Bragurinn er firna gamaldags.
Svo gamaldags að þingneihd, sem sett var í málið, skilaði
mjög gagnrýninni skýrslu, þar sem er bent á að rétt eins og
þegar forstjórar flétta einkaneyslu saman við fyrirtækið, þá
stangist á hvernig Jjölskylduumsvifin eru annars vegar á vegum
hins opinbera, af því ijölskyldan fær um 300 milljónir punda
árlega og hins vegar einkarekstur, þar sem ýmsum ættingjum
er til dæmis heimilt að búa í glæsivistarverum í höllum fyrir
lægri leigu en á aumasta herbergi í London. Fornaldarbragur-
inn skýrir einnig að hluta af hveiju Perry gat labbað inn í vinnu
sem hann sá auglýsta á netsíðu hallarinnar. Umsóknina sendi
hann inn undir eigin nafni. Ef einhver hefði haft fyrir að gera
netleit hefðu fundist eftir hann greinar úr Mirror með myndum
af honum. Meðmælin voru frá fastagesti á krá í Wales, þar sem
hann vann og þau athugaði höllin með þvi að hringja í farsíma
fastagestsins, þar sem hann sat á kránni að vanda. Og einn tveir
þrír, þá var Perry kominn í vinnu og á skömmum tíma var búið
að vígja hann inn í öll leyndarmálin um innstu þarfir konungs-
fjölskyldunnar og hvað hver segir um hvern. I höllinni hvila
allra augu á fjiilskyldunni, allir kjafta um hana og slúðrið berst
frá þeim hæstu niður til þeirra lægstu.
Bretar Vilja fjölskylduna áfram Vafalaust hefur Perry skor
ið sig úr öðrum starfsmönnum fyrir áhuga og greind. Það eru
gífurleg mannaskipti í starfsmannaliðinu, tengt því að launin
eru óvíða lægri en hjá Konungstjölskyldunni hf., um 11 þús-
und pund á ári, tæplega 1,5 milljónir króna, sem hrekkur
niður í um 9 þúsund, þegar búið er að draga frá húsnæði og
fæði. Hver vill vinna fyrir slík laun? Hér áður fyrr voru ýmsir
tilbúnir til þess. Ungu fólki var sagt að það opnaði víða dyr að
hafa unnið hjá Konungsfjölskyldunni hf. En þeim atvinnurek-
endum fer fækkandi sem taka mark á slíku. Langflestir sem
sækja um vinnu eru utan af landi og Jjölskyldan ku reyndar
taka sveitamenn fram yfir aðra. Það getur svo hver og einn
spáð í af hverju svo sé, en drottningin er reyndar fræg áhuga-
kona um sveitalíf og er góð í að herma eftir mállýskum. En
þrátt fyrir allt hefur stuðningur almennings við ijölskylduna
aukist samkvæmt nýlegri skoðanakönnun Guardians: I fyrra
álitu 43 prósent að Bretar væru verr settir án Jjölskyldunnar,
en nú telja 57 prósent að svo væri. 33 prósent álíta að betra
væri að vera án hennar, 31 prósent í fyrra, en aðeins 10 pró-
sent geta ekki svarað, voru 26 prósent í fyrra.
Það er víðáttumunur á bresku konungsljölskyldunni og
þeim norrænu. Einu sinni rakst ég á Margréti Þórhildi Dana-
drottningu á útsölu í gardínubúð rétt hjá Amalienborg, þar
sem hún var alein að gera góð kaup, en ég býst ekki við að
eiga slika uppákomu í vændum með nokkurn úr Qölskyld-
unni hér. Danadrottning kemur keyrandi í glæsibíl sínum til
að vera viðstödd þingsetningu, vindur sér inn, heilsar þeim
sem þarf, sest í sætið sitt í þingsalnum, hlustar á forsætisráð-
herra flytja stefnuræðu og hverfur svo á brott - alls um
klukkustundar törn. Bretadrottning keyrir í gullvagni til þing-
setningar, fetar sig inn í hermelínskikkju, hirðmenn og aðrir
ganga aftur á bak frá henni og það er heilt leikrit að koma
henni í salinn, þangað sem þingheimur er kallaður inn af sér-
stökum embættismanni, sem drepur á dyr með svörtum staf.
Þingheimur marsérar fyrir hana, nema einn þingmaður, sem
er í ‘gíslingu’ í þingsalnum, af því hér er verið að leika forna
atburði. Svo les drottningin ræðu sem foi’sætisráðherrann
hefur skrifað, jafnvel þó ráðherrann sé sjálfur fluglæs, og svo
hverfur hún heim í höllina. Þetta tekur rúmlega hálfan dag.
Þetta er ‘cool Britain’ anno 2003, líka dæmigert fyrir andann í
Konungstjölskyldunni hf.
Bush I Bucklngham Á stundum tekur drottningin á móti
gestum og Bush var einn þeirra. Venjulega eru það konung-
legir gestir, sem fá að gista í höllinni. Enginn Bandaríkjaforseti
þess verðugur síðan 1918, fyrr en Bush nú. Auðvitað var heim-
sóknin að frumkvæði drottningar heldur var þetta pólitískt
framtak Tony Blairs forsætisráðherra til að styrkja sig og
Bush. Hér spurði hver um annan þveran af hverju nú, af
hveiju Bush? Flestir álíta að þetta sé sérstök ósk Bush, sem
ætli að nota hallarmyndirnar sér til framdráttar í kosningabar-
áttunni á næsta ári. Ávinningur Blair var umdeildari, en hann
hafði áhuga á að landsmenn sæju aðrar hliðar á Bush en venju-
lega, í von um að það efldi vinsældir hans og stuðninginn við
Iraksaðgerðirnar. SIi
127