Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Síða 128

Frjáls verslun - 01.10.2003, Síða 128
Hrafnhildur Njálsdóttir, hársnyrtir og eigandi hársnyrtistofunnar Salon Reykjavík í Árósum. „Ég bý á yndislegum stað, í sumarhúsi 300 metra frá ströndinni. Mér hefði aldrei dottið í hug að það ætti fyrir mér að liggja að búa í sumarhúsi en mér hefur hvergi nokkurs staðar liðið eins vel," segir hún. Mynd: Guðrún Helga Sigurðardóttir Hrafnhlldur Njálsdóttir, Salon Reykjavík Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur, Árósum w Eg er í fullu starfi við að reka þessa hárgreiðslustofu, Salon Reykjavík, ásamt kollega mínum, Jonnu Magdalenu Pedersen. Við eigum þessa stofu saman og höfum rekið hana í rúm- lega eitt ár. Stofan er á besta stað í hjarta Arósa. Það voru margir sem vildu kaupa þennan rekstur, hann var dýr og það var mjög dýrt að borga sig inn í húsnæðið en viðtökurnar hafa verið frábærar, við getum ekki sagt annað. Á mörgum stöðum þarf að borga svokallaða „lykla- peninga” til að fá lykilinn afhentan og það getur kostað allt að 10 milljónum íslenskra króna. Innréttingarnar eru þær dýrustu á markaðnum, allar hann- aðar af Philip Starck. Það var því mjög dýrt að hefja þennan rekstur enda ekkert til sparað af okkar hálfu. Það er mikil vinna að starfa sjálfstætt og við höfum ekki haft tíma fyrir annað, að minnsta kosti hefur lífið verið þannig undanfarið ár,“ segir Hrafnhildur Njáls- dóttir, eigandi hársnyrtistofúnnar Salon Reykjavík í Árósum. Hrafnhildur er þekkt á Islandi fyrir að hafa byggt upp fyrirtækið Jurtagull um framleiðslu og þróun á hársnyrtivörum úr íslenskum jurtum fyrir nokkrum árum en Sól- heimar í Grímsnesi keyptu 80% hlut í fyrirtækinu fyrir tæpum þremur árum. Opnunartíminn hjá Salon Reykjavík er langur. „Engum nema Islendingum dytti í hug að hafa opið 55 tíma á viku. Við opnum klukkan 9 á morgnana og tvo daga í viku, miðvikudaga og fimmtu- daga, höfum við opið til klukkan sjö. Við höfum svo opið til Jjögur á laugardögum. Þetta er óvenjulegt. Það er dýrt fyrir fólk að taka sér frí úr vinnu til að fara í klipp- ingu og við viljum gefa fólki tækifæri til að láta klippa sig án þess að taka sér frí úr vinnu. Danir eru fastheldnir og ekki eins nýjungagjarnir og við Islendingar og maður þarf að hafa fyrir því að afla sér viðskiptavina. Danir skipta ekki um hár- snyrti jafn ört og Islendingar sem alltaf eru tilbúnir til að prófa eitthvað nýtt. Ef þeir eru ánægðir eru þeir afskaplega tryggir. Við þurftum að fara í auglýsinga- herferð fyrst eftír að við byijuðum og það má segja að við höfum virkað sem eins konar lifandi landkynning. Við spjöllum við viðskiptavinina, leiðbeinum þeim og fræðum um Island og fyrr á þessu ári vorum við með keppni í sam- vinnu við Flugleiðir og var vinningurinn ferð til Islands. Þetta hefur verið þungur FÓLK róður og við höfum aldrei fengið fúll laun þetta árið en við fengum góða hjálp hjá íslenskri konu, Sigrúnu Þormar, áður en við fórum út 1 þetta. Hún vann með okkur viðskiptaáætlunina og sér nú um bókhald stofunnar. Það er óneitanlega plús að hún hefur farið sjálf í gegnum þetta ferli,“ segir Hrafnhildur. Hrafnhildur er fædd og uppalin í Keflavík. „Eg kláraði hárgreiðsluna fyrir 22 árum og fór þá strax út í stofurekstur. Árið 1986 flutti ég ásamt fjölskyldu minni til Danmerkur og fyrrverandi maðurinn minn fór í nám. Við bjuggum í Horsens og ég vann þar á mjög góðri stofu. Þegar hann var búinn fluttum við til baka og nokkrum árum seinna fór ég af stað með fyrirtækið Jurtagull, framleiðslu á hár- snyrtivörum úr íslenskum jurtum. Eg hafði eiginlega fengið hugmyndina að því meðan ég bjó hérna. Eg rak þetta fyrirtæki í sex ár og lenti svo í erfiðum hjónaskilnaði sem var mér næstum ofviða. Eina leiðin fyrir mig var að fara í burtu til að geta unnið mig út úr þvi. Eg hafði ákveðið að fara í nám í arkitektúr því að það hefur verið draumur frá því ég var unglingur og ákvað að fara í listanám til að undirbúa mig fyrir arkitektanámið. Eg fann mig svo vel í listanáminu að ég ákvað að fara ekki í arkitektaskólann. Þegar gengið var á aurana mína ákvað ég að fjárfesta í hársnyrtistofunni til að geta haldið mér uppi. Um leið og stofan fer að ganga betur getum við ráðið manneskju í hálft starf og þá getum við minnkað vinnuna aðeins við okkur. I janúar byija ég aftur í listaskólanum og stunda hann einn dag í viku með vinnu. Þegar stofan er farin að rúlla áhyggju- laust get ég svo vonandi aukið námið.“ Fyrir utan listina hefur Hrafnhildur einkum áhuga á andlegum málefnum og útivist. „Eg bý á yndislegum stað, í sumarhúsi 300 metra frá ströndinni. Mér hefði aldrei dottið í hug að það ætti fyrir mér að liggja að búa í sumarhúsi en mér hefur hvergi nokkurs staðar liðið eins vel. Það er engin götulýsing í hverfinu og íbúarnir vilja ekki slíka lýsingu því að við sjáum stjörnurnar," segir hún. Hrathhildur á tvö börn með fv. manni sínum, Tönju Ann, 15 ára, sem býr hjá henni í Danmörku, og Helga Þór, 22ja ára háskólanema. Sll 128
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.