Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 129

Frjáls verslun - 01.10.2003, Page 129
FÓLK Texti: Vigdis Stefánsdóttir Kjartan Kristjánsson, sjóntækja- og sjónfræðingur. FV-mynd: Geir Ólafsson Kjartan Kristiánsson, Optical Studio fk nnar eigenda Optical Studio gler- ■ Maugnaverslananna, Kjartan Krist- ■ ■jánsson sjóntækjafræðingur, hefur mörg járn í eldinum og situr ekki auðum höndum. „Eg hef alltaf haft mörg áhugamál og stunda þau eftir því sem ég hef getað,“ segir Kjartan. „Eg er þannig innréttaður að mér finnst gott að stunda einstaklings- íþróttir og áhugamál þar sem ég þarf ekki að taka tillit til margra annarra. Það áhugamál, sem hefur átt hug minn allan undanfarin sumur, er fluguveiði sem ég stunda í ánni Lónsá á Langanesi. En Lónsá er í landi Grundar sem nú er í eyði en er í eigu svila míns Hauks R Hauks- sonar. Þangað fer ég allt að fimm sinnum yfir sumarið og tel það mikinn kost að þarna er ekkert gsm-samband. Eg hef líka stundað langhlaup í rúm- lega 18 ár og hleyp allt árið um kring, minn besti tími í keppni í hálfmaraþoni er 1,29 klst. og í 10 km 39 mín. Eg er svo lán- samur að hafa lagt stund á fimleika á mínum yngri árum sem gerði mér auð- veldara að takast á við það álag á líkamann sem langhlaupum fylgir nú á miðjum aldri.“ Kjartan lætur sér ekki nægja að hlaupa, hann hefur einnig gert mikið af því að hjóla og á forláta fyallahjól. „Eg á það líka til að setja á mig línuskauta eða hokkískauta, en það sport stundum við Kjartan Yalur, 12 ára sonur minn, sam- an,“ bætir hann við. „Samfara þessu er ég áhugaljósmyndari og á forláta Hassel- blad myndavél sem ég nota reyndar helst til að mynda barnabörnin tvö en einnig til að mynda auglýsingar fyrir fyrirtækið. Allar stækkanir bæði í lit og svart hvítu vinn ég sjálfur í myrkraherberginu mínu heima, en stundum þar fer nú fekkandi vegna innreiðar digital í ljós- myndaheiminn. Eg hef þrívegis verið með ljósmyndasýningar á Kjarvals- stöðum og varð þess heiðurs aðnjótandi árið 1978 að Iistasafn íslands keypti af mér ljósmynd, en á þeim árum var það óþekkt að Listasafnið keypti ljósmyndir sem mjmdlist“ Það þykir vafalitið mörgum merkilegt hvað Kjartan hefúr mörg áhugamál og getur sinnt þeim vel en hann er þekktur fyrir sinn mikla eldhug og að stunda allt af krafti sem hann gerir, hvort sem það er tómstundastarf eða vinna. „Margar af mlnum bestu viðskipta- hugmyndum hef ég fengið þegar ég er að hlaupa eða veiða,“ segir hann. „Það er manni nauðsynlegt að fara í annan gír og búa þannig í haginn fyrir hugmyndir og það hefur reynst mér vel að sinna áhuga- málunum því oft eru ákveðin efni sem þarfnast lausnar sem þá kemur þegar ég hef sett hugann í e.k. hvíld við annað.“ Kjartan, sem er sjóntækja- og sjón- fræðingur að mennt, hefur rekið versl- anirnar Optical Studio, sem eru ijórar talsins, og Gleraugnaverslunina í Mjódd, Gleraugnaverslun Suðurlands og Gler- augnaverslun Keflavíkur um árabil. Hann hefúr mikla reynslu í starfi, og var fyrstur íslenskra sjóntækjafræðinga til að hefja sjónmælingar fyrir opnum tjöldum í nýrri verslun sinni í Smáralind, Optical Studio EX. Gömul og úrelt lög hömluðu sjóntækjafræðingum að stunda starf sitt, sem þeir höfðu menntað sig í, og veitir þeim starfsréttindi í þeim löndum sem við íslendingar viljum helst miða okkur við. En lög um starfsréttindi sjónfræð- inga eru nú á frumvarpalista ríkisstjórn- arinnar í vetur enda hefur landlæknir mælst til þess að starfsréttindi okkar verði staðfest sem fyrst. „Það hefur verið sagt um mig að ég sé bíladellukarl í viðbót við allt annað,“ segir Kjartan. „Eg get auðvitað ekki neitað því að ég hef talsverðan áhuga á bílum eins og margir karlar og á góðan sportbíl sem ég hef gaman af að aka. En mér finnst líka gott að vera heima og hef þar 12 feta snóker-keppnisborð sem ég nota óspart." Líklega er það svo að þeir sem mest hafa að gera i vinnunni, finna sér líka mestan tímann til að sinna áhugamálum. Að minnsta kosti hlýtur því að vera þannig háttað með Kjartan Kristjánsson sem þrátt fyrir umfangsmikinn rekstur gefur sér tíma til að sinna sjálfum sér. SU 129
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.