Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 29
VIÐTAL BÆRING ÓLAFSSON
Hann byijaði sem sölu- og markaðsstjóri hjá Vífilfelli árið
1986. Nokkrum árum síðar fór hann til höfuðstöðva
Coca Cola Company í Atlanta í Georgíu og var þar
þjálfunar- og þróunarstjóri fyrir Asíu, svo bjó hann í Hong
Kong í þijú ár, þá í Nýju-Delhi á Indlandi í íjögur og hálft ár
þar sem hann var með 15-16 verksmiðjur í fimm ríkjum og
síðan sem aðstoðarframkvæmdastjóri í Rúmeníu í tvö ár.
Bæring hefur búið i Moskvu síðustu árin og starfað hjá Coca
Cola Hellenic Bottling Company, sem er í eigu Coca Cola
Company og grískra auðjöfra. Fyrirtækið er þriðja stærsta
átöppunarkeðja í heiminum á eftir Coca Cola Enterprises í
Bandaríkjunum og Coca Cola í Mexíkó og það framleiðir,
dreifir, markaðssetur og selur öll vörumerki Coca Cola í 26
löndum, öllum löndum Evrópu og Nígeríu. Fyrirtækið er
skipulagt þannig að forstjóri fyrirtækis-
ins er með þrjá svæðisstjóra sem síðan
eru með undir sér framkvæmdastjóra í
hverju landi fyrir sig. Fyrirtækið er
rekið algjörlega sjálfstætt í hveiju landi
eftir aðstæðum á staðnum.
Rússlandi er skipt í þijá hluta og er
Bæring framkvæmdastjóri fyrir stærsta
hlutanum sem er Moskvusvæðið og 800
kílómetra radíus. Hann er með 6.000
starfsmenn og 11 verksmiðjur á sinni
könnu. Heildarvelta fyrirtækisins er 600 milljónir dollara, eða
um 45 milljarðar króna. Þar af stendur svæði Bærings fyrir 230
milljónum dollara, eða um 20 milljarða veltu.
í algjöru rugli „Coca Cola kom inn í Rússland 1993. Verk-
smiðjan var sett upp 1994 og fyrirtækið var rekið með stóru
tapi þar til við tókum við því. I Moskvu vorum við t.d. að tapa
einum milljarði króna þegar ég kom inn. Núna höfum við
snúið þessu upp í 2,5 milljarða nettóhagnað. Það hefur því
orðið sveifla upp á 3,5 milljarða á tveimur og hálfu ári, mest út
af söluaukningu og svo ýmsum hagræðingaraðgerðum.
Samningar við viðskiptavini voru algjörlega út í hött þannig
að ég byrjaði á því að segja upp öllum viðskiptasamningum og
endursemja við alla viðskiptavini. Það náðist gífurlegur
sparnaður við það. Þetta var komið út í algjört rugl. Ofljár-
festingar höfðu verið á vélum og tækjum í verksmiðjunni og
framleiðslugetan var miklu meiri en markaðurinn er. Við
þurfum t.d. ekki að ijárfesta meira í vélum og tækjum næstu
tvö til þrjú árin. Það var lítið til sparað enda er verksmiðjan
mjög góð. Eg sagði upp starfsfólki og viðskiptasamningum
við birgja. Ég endursamdi raunverulega allan grundvöllinn
fyrir fyrirtækinu og endurskipulagði fyrirtækið frá upphafi til
enda,“ segir Bæring.
Eflin fjögur „Þetta var nákvæmlega það sama og ég gerði í
Rúmeníu. Við vorum í stórtapi þar þegar ég kom inn og ég
sneri því við á tveimur árum. Sama var á Indlandi. Ég er
eiginlega kominn með það vörumerki á sjálfan mig að ég geti
komið inn í fyrirtæki og snúið rekstrinum við mjög fljótt, mjög
hratt og mjög vel. Ég kann það. Ég hef ákveðið mottó í lífinu,
Effin ijögur, Focus, Fast, Firm og Fair. Ef maður veit hvað
maður er að gera, hefur markað stefnuna og veit hvernig og
hvert maður er að fara með fyrirtækið þá getur maður snúið
rekstrinum við ef maður lifir eftir þessari formúlu."
Rússland er stórt land, 145 milljónir íbúa, og 15 milljónir
manna í Moskvu, sem er stærsta borg Evrópu. Efnahags-
vöxtur í Rússlandi var 4,5% í fyrra og verður sennilega 6,4% á
þessu ári. Þar sem efnahagsvöxturinn í Moskvu er svo stór
hluti efnahagsvaxtar landsins alls má búast við að efnahags-
vöxturinn hafi verið um 8-9% á ári síðustu þijú ár. Ráðstöfunar-
tekjur fólks eru að aukast og millistéttin er að vaxa sem er
grundvöllurinn fyrir því að fyrirtæki gangi vel. Pepsi var búið
að vera í Rússlandi í 15 ár þegar Coca Cola kom inn á mark-
aðinn 1994-1995. Árið 1998 hafði Coca Cola náð sömu mark-
aðshlutdeild og Pepsi og í
dag er Coca Cola með 47% og
Pepsi með 27% þannig að
Coca Cola hefur aukið hlut-
deild sína úr 39% í 47%.
„Coca Cola var kosið eftir-
lætis vörumerki Rússa í fyrra
og er það í fyrsta skipti sem
erlent vörumerki nær þeim
árangri. Stór hluti Rússa lítur
á Coca Cola sem innlenda
framleiðslu sem það auðvitað er. Það er allt framleitt í Rúss-
landi, jafnvel sykurinn og vatnið, og svo er vinnuaflið keypt í
landinu. Við erum núna stærsta og þekktasta vörumerkið í
Rússlandi. Við vorum líka kosnir besti birgirinn í fyrra í
könnun sem gerð var meðal 3.500 verslanaeigenda í og fyrir
utan Moskvu. Við fengum yfirgnæfandi meirihluta atkvæða
og vorum kjörnir besti birgirinn annað árið í röð.“
Mikil 09 kung Skriff innska Talið berst að því að vera vestrænn
stjórnandi í Rússlandi og það segir Bæring að sé mjög erfitt
Rússar séu yfirleitt mjög vel menntaðir, gjarnan með tækni-
menntun, en þeir séu fáir sem hafi menntun í sölu- og markaðs-
málum. Ungt fólk, sem hafi hlotið menntun sína erlendis, sé þó
að koma á vinnumarkaðinn en það taki tíma að öðlast hæfni og
reynslu. Vestræn fyrirtæki eyði verulegum ijármunum í að
skóla starfsmennina, sjálfur segist hann hafa eytt einni milljón
dollara í þjálfun og þróun starfsmanna á síðasta ári.
„Þetta er mikil og þung skriffinnska og erfitt að fá hlutina
í gegn. Stjórnendur verða að úthugsa hlutina vel fyrirfram. Ef
eitthvað bíður fram á síðustu stundu þá annaðhvort gengur
það ekki eftir eða viðkomandi stjórnandi verður að borga
undir borðið. Fyrirtæki eins og okkar gerir það ekki. Við
viljum ekki, getum ekki og munum aldrei borga mútur. Við
viljum hafa allt kristaltært á okkar borðum þannig að við
FRAMLEIÐSLA C0CA C0LA í M0SKUU UAR 27 MILLJÓNIR
KASSA ÞEGAR BÆRING K0M TIL STARFA ÁRIÐ 2001, ÁRIÐ
2003 UAR HÚN 53 MILLJÓNIR 0G í ÁR ER STEFNAN SETT Á
65 MILLJÓNIR KASSA.
„Ég er eiginlega kominn með það
vörumerki á sjálfan mig að ég geti
komið inn í fyrirtæki og snúið
rekstrinum við mjög fljótt, mjög t
hratt og mjög vel. Eg kann það. Ég
hef ákveðið mottó í lífinu, Éffin
ljögur, Focus, Fast, Firm og Fair.“
29