Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Síða 43

Frjáls verslun - 01.03.2004, Síða 43
11JNDÚNAPISTILL SIGRÚNAR hárprúða Nancy Dell’Olio, væri hlynnt skiptunum. Hún sér ekki aðeins um heimilisbókhaldið heldur er nokkurs konar umboðsmaður hans og þykir gallhörð í horn að taka. Meðan hann virðist alltaf heldur kindarlegur í framkomu er engin mýkt yfir henni og flölmiðlum. Það gætti nokkurrar samúðar í garð Sven Görans þegar hann var tekinn í bólinu hjá frægasta kvenkyns Svíanum hér, sjónvarpskonu að nafni Ulrika Jonsson, en Nancy var ekki lengi að kippa því máli og sambýlismanninum sjálfum í liðinn. Blaðamannafundur á sunnudagsmorgni Þegar þjáifara- málið var útkljáð á forsíðum blaðanna var enska knatt- spyrnusambandinu nóg boðið, kallaði til blaðamannafundar á sunnudagsmorgni til að kynna hver yrði þjálfari í Evrópukeppn- inni 2004 og heimsmeistarakeppninni 2006, allar götur fram til 2008. Sumsé umræddur Sven Göran Eriksson. Hann sagði ekki mik- ið á fundinum nema undraðist af hverju væri verið að krefjast þess að enski landsliðs- þjálfarinn væri einhver engill, sem mætti ekki vinna sér inn sand af peningum, mætti ekki eiga einkalíf og ætti ekki að hugleiða aðra vinnu. „Mér finnst þetta illskiljanlegt, en svona er þetta nú bara,“ sagði hann með sínum syngjandi sænska hreim. Enskum ijölmiðlum fannst hins vegar jafn illskiljanlegt að þjálfarinn væri með allan hugann við gylliboð úr öðrum áttum í stað þess að einbeita sér að boltanum og þeim fannst einnig illskiljanlegt að þjálfarinn liti á starfið sem persónulegt aug- lýsingatækifæri íýrir sig í stað þess að einbeita sér að hag liðsins og knattspyrnusambandsins. United auðugasta félag heims Ársreikningar Manchester United, auðugasta fótboltafélags í heimi, gefa innsýn í ofur- rekstur fótboltafélaganna hér. Áhangendurnir hafa hvað eftir annað orðið fýrir vonbrigðum með meistarana það sem af er árinu. Nú bætast ijárfestarnir í súra liðið og spyrja hvort það sé nokkur eftirsjá í Kenyon til Chelsea. Heildartekjur féllu ögn, úr 12,3 milljörðum króna niður í 12,2 milljarða króna. Rekstrarhagnaðurinn jókst hins vegar um 27 prósent, meira en gert var ráð fyrir, mest vegna minni rekstrarkostnaðar. Tekjur af ijölmiðlaumsvifum hækkuðu úr 3,6 milljörðum kr. í 4,4 milljarða kr. En sala af varningi féll úr 5,7 milljörðum kr. í 4,8 milljarða kr. Ofurstjarnan David Beckham, sem var seld til Real Madrid síðasta sumar, hefur að sögn gamla liðsins hans ekki valdið gamla félaginu verulegu tekjutapi. Hins vegar létti salan á launagreiðslunum. Sagt er að hann fái 100 þúsund pund á viku (13,3 milljónir kr.) hjá Real Madrid, auk auglýs- ingatekna frá íýrirtækjum eins og Vodafone, Pepsi, Adidas og Police-sólgleraugnafyrirtækinu. Hann hefur verið dálæti aug- lýsenda því hann hefur verið ímynd hins góða fjölskyldu- föður, en það dálæti gæti gufað upp ef framhjáhaldsfréttir fara að loða við hann. Veðhlaupahestur á eftírlaimum er líka peningavél. Þegar kom að undaneldinu ætluðu Irarnir að hafa ágóðann fyrir sig. Ferguson var heldur óglaður yfir Jjeinuskijjtum. Sir fllex reifst Út af sæðunum Gáfaðir og glæsilegir karl- menn geta sjaldnast gert mikið úr sæðinu sínu, nema helst til eigin nota. Öðru máli gegnir um sæði úr annáluðum veðhlaupahestum. Sæðissala úr einum hesti getur velt hundruðum milljóna króna á ári, eins og Sir Alex Ferguson, þjálfari Manchester United, veit orðið allt um. Um leið hefur málið líka dregið athyglina að ijármálaumsvifum þjálfarans og áhrifum þeirra á sjálft starfið. írsku milljónamæringarnir John Magnier og JP McManus eiga fjárhaldsfélag, Cubic Expression, sem á stærsta hlutinn í Manchester United, 28,9 prósent. Ferguson og írarnir hafa verið nánir vinir um árabil og hafa horft með gleði á félagið vaxa og dafna undir 17 ára stjórn Fergu- sons og verða ríkasta fótboltafélag í heimi. Bæði Ferguson og írarnir hafa jafnframt átt og rekið veðhlaupahesta. Sagt er að Fergu- son eigi hlut í sex góðum hestum. Irarnir eignuðust á sínum tíma einstakan hest, Rock of Gibraltar, sem á hlaupaárum sínum krækti í flest þau verðlaun sem hægt var að ná í og sló öll met í verðlaunasöfnun. Til að gleðja vininn Ferguson gáfu írarnir honum helming ágóðans af hestinum. Veðhlaupahestur á eftirlaunum er líka peningavél. Þegar kom að undaneldinu ætluðu írarnir að hafa ágóðann fyrir sig. Ferguson var heldur óglaður yfir þeim skiptum. Hann reiknaði með að sæðissalan skilaði af sér 10 milljónum punda á ári, svo sér bæru 6,6 milljarðar króna á ári á meðan hesturinn sé hafður til undaneldis. Eftir langt þóf ákvað hann að draga vinina fyrir dóm á írlandi. Þessu tóku írarnir ekki með þegjandi þögninni, heldur fóru að krukka í leikmannasölur Manchester, sem Jason Ferguson, sonur þjálfarans, hefur séð um og orðið milljóna- mæringur á. Liður í átökunum voru 99 spurningar um sölur sem þeir vildu fá svarað. Sem dæmi um umboðslaun má nefna að þegar Manchester keypti Louis Saha í janúar og greiddi 1,7 milljarða króna fyrir, námu umboðslaunin 100 milljónum króna. Á endanum hringdi Sir Alex sjálfur í Magnier í sumarhús hans á Barbados til að friðmælast. Fréttum ber ekki alveg saman um hver endanlega lausnin var en svo virðist sem Sir Alex hafi sættst á að fá afrakstur fjögurra sæðisgjafa á ári, eða aðeins lítið brot af tekjunum. Málaferlum verður þá hætt og einnig draga írarnir til baka meiðyrðamál gegn þjálfar- anum. Það er stundum sagt að stórfyrirtæki séu karlaheimur, en þar er þó kvenfólk viðloðandi, jafiivel í einstaka stjórnarher- beraum. í fótboltaheiminum eru alls engar konur í augsýn, nema í svefnherbergjunum og sem útgjaldaliðir á kredit- kortareikningum. Fótboltaheimurinn er því hugsanlega gott dæmi um hvernig viðskiptaheimurinn væri ef þar nyti alls engra kvenna við: Algjörlega vaðandi gróðahyggja, hags- munapot og gegndarlaus græðgi. Verst að Freud er ekki lengur á lífi til að túlka fyrir okkur hina raunverulegu merk- ingu þessarar hamslausu þarfa fótboltakarlanna... Qfl 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.