Frjáls verslun - 01.03.2004, Qupperneq 46
NÆRMYND AF ANDRA MÁ INGÓLFSSYNI
„Hann er afar árangursmiðaður í öllu sem hann
tekur sér fyrir hendur og mjög meðvitaður um
reksturinn á hveijum tíma,“ segir Þorsteinn.
Heimsferðir hafa verið að gera það gott öll
árin frá stofnun. Kunnugir segja Andra Má hafa
„low-cost“ hugtakið á hreinu, viti hvernig eigi að
reka ferðaskrifstofu fyrir sem minnstan tilkostn-
að en þó þannig að sómi sé að.
„Andri Már er afar varkár maður og veit nákvæmlega hvað
hann er að gera. Kaupin á Eimskipafélagshúsinu eru þaul-
hugsuð og þar er ekki anað að neinu. Hann stígur yfirleitt var-
lega til jarðar og er ekki sérlega vel við að láta koma sér á
óvart," segir Þorsteinn.
Fleiri taka í sama streng, segja hann vilja vita hvað er handan
hornsins, hvort sem hann er að taka ákvarðanir í viðskiptum
eða ferðast. ,Andri er ekki þessi týpa sem tekur áhættu í
viðskiptum,“ segir kunningi Andra Más. Hann bætti við að í ljósi
þessa þurfi ekki að koma á óvart að honum hafi ekki liðið
sérlega vel þegar hann rak ferðaskrifstofuna Veröld ásamt
fleirum áður en Heimsferðir komu til sögunnar. Það hafi verið
óttalegt basl. Sá rekstur hafi hins vegar verið eldskírn Andra
Más í ferðabransanum.
Pabbahlutverkið Reyndar lærðist Andra Má snemma að
standa á eigin fótum því móðir hans flutti til Svíþjóðar þegar
hann var í menntaskóla. Bjó hann þá með Evu Mjöll systur sinni
sem þekkt er sem fiðluleikari. Andri Már er annars mikill
fjölskyldumaður. Hann á þrjú hálfsystkini sammæðra, Kristján,
Hafdísi og Sif, og hefur hann mikið samband við þau. Hann
hefur hins vegar minna samband við systur sínar samfeðra.
Laufey, móðir Andra Más, hefúr komið að ferðastjórn á Kanarí-
eyjum ásamt núverandi manni sínum, Sigurði Guðmundssyni.
Andri er nýorðinn pabbi en sambýliskona hans, Valgerður
Franklínsdóttir, eignaðist strák í september síðastliðnum.
Kunningjar Andra Más segja hann mjög upptekinn af föður-
hlutverkinu, það hafi veitt honum nýja sýn á tilveruna. Pabba-
hlutverkið féll líka í góðan jarðveg í vinnunni en Heimsferðir
eru kvennavinnustaður og samband Andra Más við starfs-
fólkið mjög gott.
Vel kynntur Andri Már hefur fágaða útgeislun, kemur vel fyrir
og er vel kynntur. Honum lætur vel að stjórna fólki. Kunnugir
segja hann afar laginn við að ná því besta út úr starfsfólki sínu
sem er mjög húsbóndahoflt enda lítið um mannabreytingar hjá
Heimsferðum. Einn samstarfsmaður Andra Más til margra ára
sagði hann mikinn nákvæmnismann. „En hann er afar
jákvæður og mannlegur í allri franflíomu og annt um að hafa
góðan anda í fyrirtækinu. Hann vill frekar vera félagi starfs-
fólksins en yfirmaður. Hann getur stokkið í öll störf. Ef maður
er strand í verkefnum er hann fljótur að finna lausnir. Eðfl máls
samkvæmt getur stundum gengið á ýmsu í ferðabransanum en
hann er alltaf yfirvegaður og er aldrei með óðagot.“
Annar kunningi Andra Más segir hann svo vel inni í öllum
störfum að hann sé t.d. með þegar verið er að setja upp tölvu-
kerfin í fyrirtækinu og hann þekki þau út og inn. „Hann þekkir
sitt fyrirtæki frá a til ö. Það er auðvitað
mikill styrkur en kannski er galfinn sá
að hann vill stundum vasast í of mörgu
sjálfur."
Sveinn Líndal hjá auglýsingastof-
unni Nonna og Manna hefur þekkt
Andra Má í nokkur ár en þeir eru góðir
vinir. „Hann er algjör klettur sem hægt
er að treysta fullkomlega. Hann er fljótur að skilja hismið frá
kjarnanum og finna lausnir. Það er yfirleitt mun auðveldara að
taka ákvörðun eftir samtal við Andra Má.“
Fleiri taka í sama streng, segja hann fljótan að sjá hvort
eitthvert vit sé í tækifærum eða ekki. Þá sé hann lunkinn að
koma hlutum þannig fyrir að alltaf sé leið út þó útlit sé fyrir
torfærur. Þannig sitji hann ekki fastur í dýrum samningum ef
hlutirnir virðast ekki ganga upp.
Andi Már er mikill tungumálamaður. Þegar hann hefur upp
raust sína á spænsku heyra Spánverjar ekki að útlendingur sé
á ferð. Hann situr í stjórn Hispanica, spænsk-rómanska
menningarfélagsins á Islandi. Hann er ræðismaður Mexíkó á
Islandi og er varamaður í stjórn Verslunarráðs íslands.
Vinirnir Andri á traustan vinahóp en þar er m.a. að finna
Þorstein M. Jónsson og Svein Líndal sem þegar hafa verið
nefndir til sögunnar, Þórð Þórðarson lögmann, Ólaf Gunnars-
son, son Gunnars Ragnars, og Guðmund Hjaltason, fram-
kvæmdastjóra Kers. Viðmælendur FV bera Andra Má aflir vel
söguna. Þegar spurt er hvort hann sé gallalaus verður löng
þögn þar sem menn humma lengi vel. Þó nefna menn honum
til lasts að hann vilji hafa allt fyrirsjáanlegt, sé ifla við óvæntar
uppákomur. Gangi það svo langt að menn beinlíns hvetja hann
til að slaka á og láta reka á reiðanum smástund. Þó ekki sé
nema til að fá smá spennu í hlutina. Einn nefiidi að hann hefði
tilhneigingu til að vera miðpunktur í hópi. Ekki þannig að hann
léti mikið á sér bera heldur vildi hann gjarnan sitja fyrir miðju.
Hann kynni ekki sérlega vel við sig úti á enda. „Hann er svolítill
fullkomnunarsinni sem kannski skýrir þetta að einhverju leyti,“
sagði einn kunningi Andra Más.
Fagurkerinn Andra er umhugað að halda sér í formi, er reglu-
legur gestur í líkamsræktinni í Laugum, hleypur 10 km hlaup í
Reykjavíkurmaraþoni og fer í lengri göngur með vinum sínum
á sumrin. Hann er ekki hópíþróttamaður og les frekar bók eða
hlustar á ljúfa tónlist í stað þess að æsa sig yfir enska boltanum
í sjónvarpinu. Og þó hann hafi gaman að góðum bílum er hann
ekki manngerðin sem vælir fyrir horn. Hann er ekki mjög
kappsfullur þegar kemur að öðru en vinnunni, það virðist ekki
mikifl stráksskapur í honum.
,Andri er svolítill sólóisti. Hann hefur dálæti á gönguferðum
og vill gjarnan hafa einhvern með sér. Þegar heim er komið eða
menn hittast á veitingahúsi fer ekki á milli mál að hann er mikill
fagurkeri. Hann hefur yndi af góðri tónlist, les mikið af bókum
og veit fátt betra en góðan mat og gott vín,“ segir kunningi
Andra Más. Fleiri tala um fagurkerann Andra Má og bæta við
að hann sé svolltill lífskúnstner. Enda kippi honum í kynið. 33
Sveinn lindal:
„Hann er algjör klettur
sem hægt er að treysta
ftillkomlega. Hann er fljótur
að skilja hismið frá kjarn-
anum og finna lausnir.“
46