Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 56

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 56
Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Islands. FRÉTTIR Innlendur sparnaður lítíll Hann tók sérstaklega fram að inn lendur sparnaður væri mjög litiU. Á síðasta áratug hefði hann verið um eða undir 5% af landsframleiðslu. „Til samanburðar var algengt að hreinn sparnaður væri á bilinu 10 tíl 15% fram undir 1980. Hreinn sparnaður hefur hins vegar enn minnkað og var aðeins 1,2% á síðasta ári. Þó hefur afkoma nkissjóðs ekki verið mjög slæm - það er einkum einkageirinn sem eyðir.“ Gylli sagði að fjárfesting umfram sparnað kæmi fram sem viðskiptahalli. „Sóknin í erlend lán er hins vegar skiljanleg að því leyti að það er mjög lítið innlent lánsfé í boði og vextir eru háir.“ SKULDIR ÞJÓÐARINNAR „GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYRI“ Gylfi Magnússon dósent varar við hrikalegum erlendum skuldum og segir að bankarnir og viðskiptalífið séu afar illa undir það búin ef gengi krónunnar félli líkt og gerðist á árunum 2000 og 2001. Eftir Jón G. Hauksson Myndir: Geir Ólafsson Erlendar skuldir voru 36% af vergri landsframleiðslu árið 1980. í lok síðasta árs var hlutfallið komið í um 150%.“ Þannig komst Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Islands, að orði í athyglisverðu erindi sem hann flutti á hádegisverðarfundi viðskipta- og hagfræðinema nýlega. Gylfi sagði að greiðslubyrði erlendra langtímalána væri ríflega 60% af útflutningstekjum og við það bættist svo skamm- tlmalánin. Hann varaði við svo miklum skuldum og benti á að hrein erlend skuldastaða (eignir -r skuldir) væri neikvæð um sem svaraði tveimur þriðju hlutum af vergri landsframleiðslu og að það væru gjaldeyristekjur eins og hálfs árs - og nærri 60% af markaðsvirði allrar bíla- og íbúðaeignar heimila. Gengisfall krónunnar þyðir verulegt áfall Hann vék síðan að stöðu krónunnar og minnti á að gengisfall krónunnar árin 2000 og 2001 hefði orðið verulegt áfall lyrir þau tyrirtæki sem höfðu tekjur í krónum en höfðu fjármagnað sig með erlendu lánsfé vegna mun lægri vaxta. „Sú vogaða staða sem olli vandræðum árin 2000 og 2001 er orðin mun djarfari núna. Það er sérstakt vandamál að lánin eru tekin til skamms tíma svo að kerfið byggir á stöðugri endurfjármögnun." Bankarnir geta lent í bobba Hann taldi að þeir viðskiptavinir bankanna sem hefðu tekið erlend lán til að kaupa innlendar eignir þyldu illa verðfall á eignunum sem og lækkun krónunnar. „Þótt bankarnir taki ekki beint djarfar stöður með innlendum eignum og krónunni þá gera þeir það óbeint. Yandræði viðskiptavinanna verða sjáltkrafa vandræði lánveitenda þeirra.“ Gylfi benti á að bankarnir væru allir með áhættustýringar- kerfi. En erlendis hefði það sýnt sig að þau væru ekki óbrigðul. „Hægt er að draga þá ályktun af stöðunni núna að óeðlilegt sé að fjármagna með skammtímalánum í erlendri mynt fjárfestingu sem er með takmarkað greiðsluhæfi. Þetta er sérstaklega hættu- legt ef margir gera það. Gangið hægt um gleðinnar dyr.“ 33 Sigurður Einarsson fluttur til London Sigurður Einarsson, starfandi stjórnar- formaður KB banka, hefur flutt til London. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Eg hef verið að ferðast mikið vegna starfa minna undan- farin ár svo að þetta er ekki mikil breyting á því sem verið hefur. Ég hef verið mikið í Svíþjóð, London, Finnlandi, Lúxemborg og svo framvegis. Ég flyt til London vegna eðlis þess starfs og starfsvettvangs sem ég gegni hjá íyrirtækinu í 56 dag. Búseta í London gerir bæði starf mitt auðveldara og einfaldara jafnframt því sem það verður auðveldara fýrir viðskiptavini og starfsfólk erlendis að hafa tal af mér þar,“ segir Sigurður. Þegar Sigurður er spurður að því af hverju hann hafi ekki valið sér búsetu á Norðurlöndum, t.d. Svíþjóð, í samræmi þá við stefnu bankans að hafa Norðurlöndin öll sem heima- markað, segir hann að London sé miðstöð fjármálalífs auk þess sem sam- göngur til og frá London séu auðveldar. Það hafi haft sitt að segja. 33 Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarfor- maður KB banka, er fluttur til einnar helstu miðstöðvar fjármálalífsins í heiminum, London.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.