Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 64
Þá má sjá húsnæði Bílanausts lengst til hægri.
banki er með höfuðstöðvar sínar í hverfinu sem og Straumur-
flárfestingarbanki, íbúðalánasjóður, LÍN (Lánasjóður
íslenskra námsmanna) og SPV (Sparisjóður vélstjóra).
SPRON er með útibú í hverfinu, við Hátún.
Enyin sata skákar Boryartúni Þessi sjö ijármálafyrirtæki
voru með yfir 137 milljarða króna í tekjur á síðasta ári. Eigið
fé þeirra er 140 milljarðar kr. og hagnaður síðasta árs eftir
skatta var um 21 milljarður kr. Svona tölur sjást hvergi annars
staðar á svo litlu svæði á íslandi. Engin önnur gata eða hverfi
skákar núna Borgartúnshverfinu!
Mörg önnur þekkt fyrirtæki hafa hreiðrað um sig í
hverfinu. Þar má nefna Nýherja, OgVodafone, KPMG,
Kaupás (Nóatún), Smith & Norland, Hótel Cabin, VSÓ, Hag-
stofuna, Björninn, Bílanaust, Johan Rönning, Öryggis-
miðstöðina, Sólargluggatjöld, Heim (útgefanda Frjálsrar
verslunar), Fasteignamat ríkisins, Ríkissáttasemjara og áfram
mætti telja. Hús atvinnulífsins er við Borgartún og hýsir þar
ijölmörg samtök innan atvinnulífsins. ESSO er með bensín-
afgreiðslu við Borgartún og þar er Subway.
Það fer vel á því að Hagstofan og KPMG séu í hverfinu.
Hagstofan heldur utan um allar hagstærðir í landinu og
KPMG er stærsta endurskoðunarstofa landsins og stillir upp
margri milljarðaársskýrslunni. Fjármagnið flæðir um hverfið.
Borgartúnið iðar af bílaumferð á góðum degi. Það er af
sem áður var þegar þetta var róleg gata. Mörgum finnst sem
umferðarþunginn í götunni sé allt of mikill og hafa á orði að
gatan sé „sprungin“.
Margar nýbygyinyar Margar nýbyggingar hafa risið við
Borgartún á síðustu árum. Nefna má hús Nýheija, Hótel
Cabin, Hús atvinnulífsins, KPMG-húsið, Höfðaborg, hús KB-
banka, hús Og Vodafone, stórhýsi Straums og Útlendingaeft-
irlitsins. Islenskir aðalverktakar eru með stórhýsi í smíðum
við Borgartún 25. Hagstofan er í nýuppgerðu húsi við Borg-
artún 21 - en í því var Fasteignamat ríkisins áður. Vegagerðin
með alla sína milljarða í vegaáætlanir er við Borgartún 5 til 7.
KB-banki er stærsta fyrirtækið í Borgartúnshverfinu -
með tekjur upp á 51,3 milljarða kr. og íslandsbanki er í öðru
sæti með 33,7 milljarða í tekjur.
Þess má geta að á lista Fijálsrar verslunar yfir 300 stærstu
fyrirtæki landsins er Kaupás í 19. sæti, Og Vodafone í 50.
sæti, Nýheiji í 56. sæti, SPV í 81. sæti og KPMG í 111. sæti
listans.
Byggingafélagið Eykt var um árabil með aðsetur við
Borgartún. Það reisti Höfðaborgina og hús KB-banka, auk
þess sem það gerði upp húsnæðið sem Hagstofan er í. Eykt
er núna með höfuðstöðvar í stórhýsi sínu við Lyngháls 4.
En svona er sagan. Fátækrahverfið er orðið að miðstöð
ijármála á íslandi. Œ]
64