Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 74
ESSO:
IMesti á Essostöðinni
í Borgartúni
Alla daga ilmar stöðin af nýbökuðu brauði, enda
er stöðugt verið að baka, segir Helga Krist-
mundsdóttir, stöðvarstjóri í Borgartúni. Hún
segir viðskiptavini kunna vel að meta að geta gripið
með sér nýbakað rúnstykki eða annað. „Við bjóðum
einnig íýrirtækjum sem það vilja að baka og útbúa
fyrir þau fundabakka og gildir einu hversu stór fundurinn er.
Fyrirvarinn þarf ekki að vera mikill, aðeins um ein klukku-
stund eða svo en það fer auðvitað nokkuð eftir stærð fundar-
ins. Við smyijum rúnstykki og höfum á bakkanum vínar-
brauð eða annað sem beðið er um og ef til vill drykkjarföng
Esso rekur
þægindavöru-
verslanir með miklu
vöruúrvali, m.a. í
Borgartúni.
geta menn komið á sunnudögum og keypt
með góðum afslætti nýbakað brauð og sæta-
brauð til að hafa með rnorgunkaíXmu."
Ódýrt bensín Með því að dæla sjálfir geta
viðskiptavinir sparað umtalsvert í þensín-
kostnaði. „Við kappkostum að bjóða samkeppnishæft verð í
sjálfsafgreiðslunni," segir Helga. „Samkeppni hefur aukist
mjög á bensínmarkaði og nú er hægt að velja á milli ýmissa
leiða við að taka bensín."
einnig.“
„Hingað koma um 1.200 manns daglega til að reka ýmis
erindi," segir Helga. „Fólk kaupir auðvitað bensín en það fer
mjög vaxandi að viðskiptavinir leita eftir öðrum vörum. Fólki
þykir mörgum gott að geta komið hingað og fengið það sem
það vanhagar um, án þess að þurfa að standa í biðröðum.“
Gestir Hótel Cabin, sem er beint á móti stöðinni í Borgar-
túninu, kunna vel að meta þjónustuna og segir Helga þá
þakkláta viðskiptavini. „Þetta er gjarnan fólk sem stoppar
stutt og má ekki vera að því að leita lengi eftir þjónustu en
vanhagar um eitthvað smálegt. Það þykir þægilegt að geta
gengið yfir götuna og fengið allt sem þarf á einum stað og
vegna þess hvað opnunartími er langur getur fólk komið
þegar því hentar.“
Afsláttardagar „Til að mæta enn frekar óskum viðskipta-
vina höfum við gert þrjá daga vikunnar að sérstökum
afsláttardögum,“ segir Helga.
„Laugardagar eru almennt kallaðir nammidagar og því
ákváðum við að bjóða 52% afslátt á sælgæti á laugardögum.
Það mæltist vel fyrir og við ákváðum að gera líka vel við
fullorðna og bjóða upp á blómadaga á föstudögum, en þá geta
menn rennt við á Essostöð og gripið með sér blómavönd
handa elskunni sinni á mjög góðu verði. Síðast en ekki síst
Safnkortin góð Nýlega kjmnti Esso til sögunnar nýtt
Safnkort sem er sparnaðarkort, ætlað öllum sem kaupa vörur
eða þjónustu á þjónustustöðvum Esso, í Nesti, Hraðbúðum,
smurstöðvum, grillskálum eða hjá öðrum samstarfsaðilum
sem tengjast Safnkortinu. Viðskiptavinir fá til að mynda 1
krónu í afslátt af hveijum lítra auk 3% afsláttar af flestum
vörum í formi punkta. Punktana er hægt að nota á ýmsa vegu.
Hægt er að nota þá til að fá afslátt við næstu afgreiðslu á
bensíni en einnig býðst viðskiptavinum að kaupa ýmsar vörur
á sérstöku verði með notkun punktanna. Sem dæmi má nefna
heimabíó, stafrænar myndavélar og ferðlög, en Esso er í
samstarfi við Iceland Express og hægt er að nota punktana til
að kaupa ferðir þar.
Esso rekur um 100 stöðvar víðs vegar um land og eru 14
þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Esso rekur einnig sjö Nesti á
höfuðborgarsvæðinu. Nesti eru þægindavöruverslanir með
áherslu á helstu nauðsynjavörur og skyndibita. Subway er
rekið á völdum Nestisstöðvum, þar á meðal í Borgartúni.
„Það er ekki úr vegi að nefna það að allar stöðvarnar bjóða
gott úrval af grilltækjum og grillvörum og geta menn komið
við hér á leiðinni heim og fengið allt sem þeir þarfnast til að
grilla. Ef farið er í ferðalög er fátt sem ekki fæst í Esso, m.a.
eru leikföng þar allt árið á góðu verði,“ segir Helga að
lokum. 39
74