Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Síða 76

Frjáls verslun - 01.03.2004, Síða 76
Jón Norland, framkvæmdastjóri Smith & Norland. SMITH OG NORLAND: 30 AR í NÓATÚNI „Arkitekt hússins var Jón Haraldsson heitinn, en faðir minn, Sverrir Norland rafmagnsverkfræðingur, hefur að öðrum ólöstuðum haft mestan veg og vanda af öllum byggingarframkvæmdum allt frá upp- hafi til þessa dags. Við byggingu fyrra húss- ins, sem í daglegu tali kallast lagerbygg- ingin, var alls hófs gætt og enginn óþarfa íburður hafður í innréttingum og öðru. Eg man þó eftir því að hafa hugsað með mér á sinum tíma, þegar húsið var fullrisið: Hvers vegna í ósköpunum er verið að reisa svona stórt hús? Er þetta ekki algjört glapræði? En húsið er fyrir löngu orðið of lítið, búið er að bæta við það og enn vantar rými,“ segir Jón kímileitur. ,j\ður en flutt var í Nóatúnið hafði fyrirtækið verið á Suðurlandsbraut 4 og þar áður í Hafnarhúsinu við Tryggva- götu og þetta þótti mikill munur, bæði á hús- næði og aðgengi. Eftir að Jón arkitekt Haraldsson lést, tók Gunnar Oskarsson arkitekt við hlutverki hans og hefur síðan séð um alla hönnun fyrir okkur og leyst það með sóma eins og hans er von og vísa.“ Fagfyrirtækið Fallegt listaverk, vængjaður steinn úti í lítilli tjörn, vekur athygli vegfarenda. Verkið er eftir Magnús Tómasson mynd- listarmann, sem sömuleiðis á heiðurinn af öðru listaverki inni í húsinu, fuglinum sem brýnir gogg sinn á demantsfjallinu. „Þessi listaverk koma til af því að Magnús og faðir minn kynntust árið 1970, þegar Magnús sá um hönnun og uppsetningu á bás Smith & Norland á sýning- unni Veröld innan veggja í Laugardalshöllinni," segir Jón. „Þeim varð vel til vina og faðir minn ákvað þá strax að ef og þegar hann byggði húsnæði yfir fyrirtækið, myndi hann biðja Magnús um að gera eitthvað þar og við það stóð hann.“ Smith & Norland er þekktast fyrir innflutning á vörum frá þýska stórfyrirtækinu Siemens AG. Frá Siemens kemur raf- búnaður af öllum gerðum og stærðum, bæði til heimilisnota og iðnaðarnota. ,Auk þess skiptir Smith & Norland við fjöl- mörg önnur fyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum," segir Jón. „Segja má að við bjóðum flest allt sem tengist rafmagni og höfum borið gæfu til þess að halda okkur innan þess ramma en um leið sérhæfa okkur talsvert. Viðskiptavinir okkar eru m.a. rafverktakar, orkuveitur, sjúkrahús, iðnfyrirtæki sem og ýmis önnur fyrirtæki auk almennings, svo að flóran er breið. Hér innandyra er samankomin mjög breið þekking á rafmagni og rafmagnsvörum og margir starfsmenn með sérmenntun á rafmagnssviði. Því getum við sagt með sanni, að Smith og Norland sé fagfyrirtæki í öllu því sem snertir rafmagn.“ S3 Framsýnin heíur margborgað sig. Smith & Norland er nú á besta stað í bænum. Fyrirtækið Smith & Norland hf. hefur haft aðsetur í Nóa- túni 4 um 30 ára skeið. Að vonum hefur margt breyst á þeim tíma og segir framkvæmdastjórinn, Jón Norland, að í raun sé vart hægt að þekkja hverfið í kring sem hið sama. „Við erum hér þar sem Höfðaborgin gamla var,“ segir Jón. „Það þótti kannski frekar undarlegt á sínum tíma að reisa hér verslunarfyrirtæki á borð við Smith & Norland, en það má með sanni segja að framsýnin hafi margborgað sig. Nú erum við hér á besta stað, í hringiðu mikils athafnahverfis, og allt aðgengi mjög gott.“ Það var hinn 15. desember árið 1972 sem fyrsta skóflustungan var tekin að húsinu og flutt var inn í það um verslunarmannahelgina 1974. Árið 1984 var síðan flutt inn á jarðhæð nýrrar byggingar á lóðinni og verslun opnuð þar. Ári seinna fóru skrifstofur fyrirtækisins einnig í sama hús. 76
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.