Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 82

Frjáls verslun - 01.03.2004, Side 82
Eitt af opnu rýmunum. Um og yfir 100 manns starfar í hverju slíku en lítill sem enginn hávaði er vegna þess. Loftplöturnar gleypa í sig hljóðið. Ásgeir Ásgeirsson arkitekt hjá Tark, en sú teiknistofa sá um hönnun hússins. Þarna er hægt að opna á milli ef þörf er á og stækka þannig rýmið talsvert. a að setja hann þar sem útsýni sé mikið og gott heldur nota slíkt rými fremur undir vinnusal þar sem fólk sé allan daginn. Það sem kannski vekur helst athygli í húsinu er að þar svífur andi naumhyggju (mínímalisma) yfir vötnum. Þar er enginn íburður, öll húsgögn eru einföld að gerð og hönnuð og valin af Tark svo að heildarmynd verður á öllu. „Við notuðum íslenska birgja efdr föngum. Axis smíðaði skrifborðin eftir okkar hönnun, gólfefnin eru frá Agli Arnasyni, einnig klæðningin utan á húsinu,“ segir Asgeir. „Stólarnir eru frá Mira (Pennanum) og valdir með tilliti til notagildis. Sami spónn er á öllu því að Axis og Víkurás, sem smíðaði hurðirnar, keyptu spón á sama stað að okkar ósk. Þannig kemur samræmt útlit á allt tréverk. A gólfinu er parket nema í stigum þar sem sami steinn er og í anddyri. A efstu hæð er fundasalur sem hægt er að stækka um helming með því að opna á milli. Þar inni er gríðarstórt skrifborð, um 7 fin að stærð, sem að sögn Asgeirs gengur undir nafninu flugvöllurinn vegna stærðarinnar. Borðið er að því leyti til sérstakt að það er sett saman úr einingum og því auðvelt er að taka það í sundur ef nota á salinn til annars. A örstuttum tíma getur fundarsalurinn því breyst í veislusal ef þarf. „Við höfðum mikla ánægju af því að vinna þetta verkefni og unnum það í góðri samvinnu við verkkaupann sem var tilbúinn að skoða alla möguleika. Arangurinn er að okkar mati mjög góður og húsið hentar vel til þeirrar starfsemi sem í því er.“ 00 I svona herbergjum fara fram óformlegir fundir og spjall en í herberginu er fullkomin aðstaða til funda. Hefðbundið fundaherbergi. 82

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.