Frjáls verslun - 01.03.2004, Page 88
Gylfi Gíslason, fjármálastjóri Eyktar.
væri vænlegt svæði til endurnýjunar, í takt við það
sem gerist í öðrum borgum,“ segir Gylfi Gíslason,
fiármálastjóri Eyktar. „Við byggðum fyrst Höfða-
borgina, sem var fyrsta húsið í þessu nýja
Borgartúni, en það hús var leigt strax á byggingar-
tíma. Við byggðum einnig við hús nr. 21a sem nú
hýsir m.a. Hagstofuna og hús nr. 19, nýju höfuð-
stöðvar KB-banka.
Hjá Eykt, sem hefur aðsetur í nýju húsnæði við
Lyngháls, starfa nú um 150 manns að jafnaði.
Vaxandi fjöldi reynslumikilla verk- og tæknifræð-
inga hefur komið til liðs við fyrirtækið og flestir
verkstjórar eru húsasmíðameistarar. Pétur Guð-
mundsson er nú aðaleigandi fyrirtækisins en hann
keypti hlut Theodórs fyrir rúmum tveimur árum.
„Við höfum tekið þann pólinn í hæðina að halda
samkeppni meðal hönnuða um hönnun stærri
bygginga," segir Gylfi. „Þannig héldum við sam-
keppni um næsta stórverkefni okkar
sem er Höfðatorg, neðst í Borgar-
túni, en þar munum við byggja um
24.000 fm húsnæði sem ætlað er
fyrirtækjum og stofnunum. Þar
völdum við afskaplega skemmtilega
tillögu frá Pálmari Kristmundssyni
arkitekt sem við höfum síðan þróað áfram.“
Hjá Eykt er lögð mikil áhersla á vönduð vinnu-
brögð og þarfir viðskiptavinanna til skemmri og
lengri tíma, og hefur verið búin til gæðahandbók
sem byggir á ISO 9001 staðli.
„Hraði verkefna hefur aukist mjög, bæði
EYKT:
FRAMTÍDARSÝNIN í LAGI
- SÉRHÆFING í SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Tveir ungir menn, Pétur Guðmundsson og Theodór
Sólonsson stofnuðu Eykt í nóvember árið 1986. í fyrstu
fór ekki mikið fyrir hinu unga fyrirtæki en smám saman
sást hvað í því bjó. Fyrsta stóra verkefni þess var bygging
ÁTVR-hússins við Stuðlaháls en eftir 1996 var ljóst að fyrir-
tækið var að breytast úr því að vera miðlungsstórt verktaka-
fyrirtæki í það að vera eitt af stærri verktakafyrirtækjum
landsins.
„Menn fóru að horfa í kring um sig og árið 1997 var farið
að kaupa upp húseignir í Borgartúni þar sem ljóst þótti að þar
88
hönnun og ffamkvæmd, og sú þróun er enn í gangi,“ segir
Gylfi. „Allt miðar þetta að því að lækka byggingarkostnað og
vinna á hagkvæmari máta en um leið og þetta gerist þarf að
gæta þess vel að gæðin haldist í takt við hraðann. Við höfum
kappkostað að gera það, en við ætlum okkur að vera leiðandi
aðili í byggingu og rekstri atvinnuhúsnæðis og munum vinna
að því með því að hafa í huga þarfir nútímafyrirtækja við
hönnun og staðsetningu húsa. Við lítum svo á að við séum að
byggja til framtíðar og teljum mikilvægt að vel sé vandað til
allra vinnubragða." S!1