Frjáls verslun - 01.03.2004, Page 93
RAFRÆN VIÐSKIPTI GETA SPARAÐ MILLJARÐA í ATVINNULÍFINU
Tregða meðal stjórnenda?
Rafræn viðskipti hafa milljarða sparnað í för með sér fyrir atvinnulífið. Tæknilegum hindrunum
hefur verið rutt úr vegi. Stjórnendur fyrirtækja eru samt tregir til að taka upp rafræn viðskipti.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Fyrirtæki geta sparað háar fjárhæðir með því að taka upp
rafræna viðskiptahætti. Vegna reikningsútgáfu nemur sá
sparnaður tugum prósenta, jafnvel allt að 80% af núver-
andi kostnaði, og getur sparnaðurinn því numið milljörðum
króna á ári í heild sinni. Um það eru allir í atvinnulífinu sam-
rnála en einhverra hluta vegna er tregða meðal stjórnenda í
atvinnulífmu að leggja áherslu á þessa innleiðingu. Henni er
sífellt ýtt til hliðar og önnur verkefni látin ganga fyrir. Það
getur tekið allt að tvö ár frá því að fyrirtæki tekur ákvörðun
um að innleiða rafræn viðskipti þar til innleiðingunni er lokið
og þessum viðskiptaháttum hefur verið komið á. Þrátt fyrir
þann gríðarlega sparnað sem allir eru sammála um að af
þessu hljótist.
Tökum einfalt dæmi til að gefa hugmynd um sparnað í
stóru fyrirtæki. Miðað er við seðilgjöld upp á 200 krónur eins
og eru til dæmis innheimt vegna reikninga hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Gefum okkur að viðskiptavinir séu 77 þúsund
talsins, fyrirtæki og einstaklingar, sem fá einn reikning á
mánuði hver. Ef viðskiptin fara eingöngu fram með rafrænum
hætti sparast 15,4 milljónir króna á mánuði og 184,8 milljónir
á ári. Þarna er eingöngu um eitt fyrirtæki að ræða. Almennt
má benda á að umsýsla pantana kostar 6-8.000 krónur hjá
hverju fyrirtæki og er talað um að hægt sé að ná þeim
kostnaði niður í 1.200 krónur eða um 20% af heildarkostnaði í
rafrænum pöntunum. Það er því ljóst að það er hægt að spara
háar íjárhæðir á þessu sviði.
Innleiðingin gengur hægast „Það eru til fyrfrtæki sem fá
senda rafræna reikninga enda þykir verulegt hagræði af því en
þessi fyrirtæki eru ekki mörg. Það er mjög hagkvæmt að fá
reikningana senda rafrænt, sérstaklega ef fyrirtæki eru í fyrir-
tækjaviðskiptum. Kaupendurnir fá þá reikningana beint inn í
bókhaldskerfið hjá sér og það samþykktarferíi sem er í fyrir-
tækinu. Þessi lausn er vel þróuð en innleiðingin er ekki mjög
langt komin. Þetta eru ekki mjög útbreiddir viðskiptahættir,"
segir Rúnar Már Sverrisson, formaður SARIS, Samráðs um
rafrænt ísland. Þarna segir hann að komi tvennt til, bæði
tæknilegar hindranir, tæknileg samræming á bókhalds-
gögnum milli kerfa og svo mannlegi þátturinn. „Upplýsingar
þurfa að verða rafrænar til að þetta gangi. Þar hafa menn
strandað á samræmingunni en það er ekki tæknilegt vandamál
í dag. Þetta er meira útfærsluatriði og mannlegt vandamál. Það
er innleiðingin sem gengur hægast,“ segir hann og játar því að
það sé „ákveðin tregða hjá fólki að gera þetta með þessum
hætti. Fólk er vant að fá reikninga i umslagi og það hefur
reynst erfitt að fá það til að nýta sér rafræn viðskipti í gegnum
tölvur."
Verður algengt Orkuveita Reykjavíkur er í hópi þeirra fyrir-
tækja sem hafa lagt áherslu á að innleiða rafræna viðskipta-
hætti. Af þeim 136 þúsund reikningum, sem Orkuveitan
sendir út á mánuði, fara 55 prósent fram með rafrænum hætti
og er þá pappírsyfirlit sent út einu sinni á ári. Mestmegnis er
þarna um einstaklinga að ræða sem láta skuldfæra orkureikn-
ingana sína á kort eða bankareikninga. Eysteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri sölusviðs, segir að Orkuveitan stefni að því
að öll viðskiptin fari fram með rafrænum hætti. „Við höfum
boðið þessa þjónustu með þátttöku í Span hf., sem býður upp
á þessa viðskipti, en því miður eru ekki nógu mörg fyrirtæki
komin inn á þetta svið til að það hafi virkilegan sparnaði í för
með sér. Þetta er tilraunastarfsemi ennþá en ég sé fram á að
þetta verði mjög algengt form í þessum viðskiptum." SD
184 MILLJÚNIR SPARAST HJÁ EINU FYRIRTÆKI
Seðilgjöld nema 200 krónum og uiðskiptavinir eru 77 á mánuði og 184,8 milljónir á ári. Parna er um raun-
þúsund talsins, fyrirtæki og einstaklingar. Peir fá einn uerulegt dæmi að ræða af einu fyrirtæki. Það er þuí Ijóst
reikning á mánuði huer. Ef þessi viðskipti fara eingöngu að sparnaðurinn er margföld þessi upphæð í atuinnu-
fram með rafrænum hætti sparast 15,4 milljónir króna lífinu öllu.
93