Frjáls verslun - 01.07.2004, Page 23
FQRSIÐUGREIN: FDRSÆTISRAÐHERRA5KIPTIN
samkeppnislög sem ætlað var að vinna gegn einokun og
hringamyndun á Islandi. Síðastliðin ár hefur hins vegar átt
sér stað umræða um að Samkeppnisstofnun og samkeppnis-
lögin dygðu ekki til að koma í veg fyrir auðhringa og sam-
þjöppun valds eins og það birtist í formi sterkra viðskipta-
blokka og að um þessar samsteypur þyrftu sérstök lög.
Gera verður ráð fyrir að þau mál verði í brennidepli á kom-
andi þingi þótt ýmsir dragi í land með það eftir nýútkomna
skýrslu auðhringanefndar Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra. Skýrslan ber heitið „íslenskt við-
skiptaumhverfi" og þar er ekki lagt til að sérstök lög verði
sett gegn auðhringum. I þessu máli mun mæða á alþingis-
mönnum sem eru nokkuð brenndir af eldheitri umræðunni
um ijölmiðlafrumvarpið frá síðasta vori og sumri.
SALA RÍKISBANKANNA
MIKIÐ AFREK OG SÉRLEGA MIKILVÆGT. Þetta var
eitt af helstu markmiðum Viðeyjarstjórnarinnarvorið 1991 en
náðist aldrei. Hins vegar hafa ríkisstjórnir Davíðs verið dug-
legar við að einkavæða opinber fyrirtæki og er hann orðinn
býsna langur listinn þar um. Sala Símans mistókst herfilega.
En sala ríkisbankanna tveggja sem og Fjárfestingarbanka
atvinnulífsins, FBA, tókst með miklum ágætum. Þó hefur það
verið gagnrýnt af nokkurri hörku að við söluna skyldi „dreifð
eignaraðild" ekki hafa verið höfð að leiðarljósi og hafa sumir
nefnt söluna á ríkisbönkunum tveimur „einkavinavæðingu"
og að of lágt verð hafi fengist fyrir þá. Eftir söluna hafa
bankarnir gert hluti sem þeim leyfðist ekki áður og er sam-
keppnin á ijármálamarkaðnum grimmileg og hefur leitt til
umtalsverðrar raunvaxtalækkunar undanfarnar vikur.
LÁGIR RAUNVEXTIR
EKKI NÆGILEGA GÓÐUR ÁRANGUR. Vextir ráðast
hins vegar á markaði. Því miður hafa háir raunvextir ein-
kennt viðskiptalífið á Islandi í tíð ríkisstjórna Davíðs. A tíma-
bilinu var sjálfstæði Seðlabankans styrkt og á hann núna að
einbeita sér að verðbólgumarkmiðum. Vextir eru eitt hans
helsta stýritæki. Sumir segja að útilokuð sé lækkun raun-
vaxta á Islandi til jafns við þá vexti sem tíðkast í Evrópu
nema íslensku krónunni verði kastað og tekin upp evra.
Aðrir segja lækkun raunvaxta útilokaða í svo litlu hagkerfi á
meðan það er svo þanið (full atvinna) og afleiðingin verði
bara sú að verðbólgan rjúki upp og óstöðugleiki myndist.
Þrátt fyrir háa raunvexti obbann af stjórnartíðinni hafa raun-
vextir lækkað snarlega síðustu vikurnar eftir að bankarnir
hófu að bjóða 4,2% íbúðalán til allt að 40 ára og uppgreiðslu
á óhagstæðari lánum. Ekki verður annað séð en að mikil
samkeppni bankanna hafi þrýst raunvöxtunum niður. Eðli-
lega hefur Seðlabankinn af því áhyggjur. Einhver orðaði það
svo að það hafi ekki verið fyrr en KB-banki varð „útlendur
banki“ að samkeppnin varð fyrir alvöru á Ijármálamarkaði.
Afleiðingin getur orðið sú að dagar Ibúðalánasjóðs verði
taldir. Hann hefur ekki sama svigrúmið og bankarnir til að
lækka vexti. Sama er að segja um lífeyrissjóðina.
Engjateigi 5 «105 Re
23