Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 90
FYRIRTÆKIN Á NETINU
Ragnheiður Árnadóttir, aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra, hefur fylgst með upplýsingum um Latabæjar-
þættina í Bandaríkjunum á www.nickjr.com.
Mynd: Geir Ólafsson
Ragnheiður Árnadóttir,
AÐSTOÐARMAÐUR FJÁRMÁLARÁÐHERRA:
www.isf.is ★★★
Þegar www.sporthusid.is
er hamrað inn í addressu-
línuna kemur upp ný síða.
Fyrstu viðbrögð eru vá,
meiriháttar andlitslyfting,
en þegar smellt er á líkams-
ræktarstöð sést að þetta er
bara yfirsíða íyrir allar
líkamsræktarstöðvarnar
þijár á www.isf.is sem stendur fyrir Iceland Spa & Fitness. Síðan er
smart, litirnir fallegir en bara hetta á hinar. Sýnist þær óbreyttar í
öllum aðalatriðum. SIl
www.hreyfing.is ★★★
HReynne
Heimasíðan hjá Hreyfingu
er svolítið kraðaksleg við
fýrstu sýn en virkar svo
ágætlega þegar á reynir og
er bara ágætlega skipulögð.
Þetta er viðamikil síða sem
veitir upplýsingar á öllum
sviðum líkamsræktar og
hreyfingar. Hressilegir litir
og grafíkin er svo sem,
ekkert til að kvarta yfir. Hér má þó alla vega finna myndir. Œj
Nickjr.com
Að frátöldum þeim fréttatengdu, pólitísku og við-
skiptatengdu veljum sem ég heimsæki á hveijum
degi, bæði vegna vinnu minnar og almenns
áhugasviðs, held ég að ég verði að nefna
www.nickjr.com sem nýjasta uppáhaldsvefinn minn
þessa dagana. Þar er að finna tengil á nýju Latabæjar-
þættina sem nú er byrjað að sýna í Bandaríkjunum. Það
er ekki síst íýrir tilstuðlan tveggja ára sonar míns sem
þessi síða er mikið heimsótt, en einnig verð ég að játa
að ég er sjálf einlægur aðdáandi þeirra Latabæjaríbúa.
Mér hefur fundist frábært að fylgjast með dugnaði og
velgengni Magnúsar Schevings og hans fólks, sem
sýnir það góða fordæmi sem er í anda þess boðskapar
sem er í þáttunum, þ.e. að menn uppskeri eins og þeir
sái og að það kosti íýrirhöfn að ná árangri."
Nickeloden er með vefinn www.nickjr.com.
Þegar komið er inn á síðuna má t.d. skoða Show Info,
sem er tyrir miðju, og velja LazyTown í felliflipanum
sem birtist. Þar eru myndbönd með brotum úr
þáttunum, tölvuleikir, upplýsingar um þættina,
Magnús, spjallrásir tyrir foreldra, spurningar og svo
framvegis. HD
www.mimir.is ★★
✓
Olystug síða, ekkert endi-
lega neitt illa skipulögð
heldur virkar einhvern
veginn ekki vel í fýrstu
heimsókn. Einhvern
veginn full „býrókratísk",
kannski verkalýðsleg og
ekki skemmtileg. Upplýs-
ingarnar virðast þó standa
fyllilega fyrir sínu og vel
það. Starfsemin er greinilega tjölbreytt og sterk. [
★ Lélegur
★ ★ Sæmilegur
★★★ Góður
★ ★★★ Frábær
Miðað er við framsetningu og útlit,
upplýsinga- og fræðslugildi,
myndefni og þjónustu.
Guðrún Helga Sigurðardóttir.
ghs@heimur.is
90