Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 79
aldar. Vörurnar voru seldar til Bandaríkjanna, Kanada, Bret-
lands, Noregs og Hollands. Sjófatnaðurinn er að mörgu leyti
markaðsleiðandi á erlendum mörkuðum, t.d. í Nova Scotia í
Kanada. 66°Norður framleiðir einnig regnfatnað fyrir gríska
herinn og hefur gert um nokkurra ára skeið. 66°Norður
hefur til langs tíma framleitt sérfatnað fyrir íslensku lögregl-
una, björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar og
sjúkrahúsin í landinu, fyrir utan allan almennan markað.
Fyrirtækið rekur nú sex verslanir á Islandi fyrir utan nokkrar
66°Norður einkaleyfisverslanir úti á landsbyggðinni, tvær
verslanir í Hollandi og tvær eigin verslanir í Riga í Lettlandi.
Útflutningur er að heijast til Frakklands og Þýskalands og
þegar hafinn til Noregs og Svíþjóðar. I Svíþjóð hófust á þessu
ári viðskipti við yfir 60 verslanir, þar á meðal þijár mjög
þekktar í Stokkhólmi. Þá eru vörur 66°Norður einnig á
boðstólum í sjö verslunum í Danmörku og síðast en ekki síst
er útflutningur að hefjast til Bandaríkjanna, þar á meðal til
þekktra verslanakeðja, svo sem Urban Outfitters.
.Aukningin innan fyrirtækisins hefur hingað til verið
eingöngu á innlendum markaði. Tekjurnar hafa tvöfaldast á
þremur árum. Við höfum nú náð samningum við Bandaríkja-
menn sem skipta hundruðum milljóna króna á næstu þremur
árum. Það var bandarísk kona, sem hafði komið hingað sem
ferðamaður og kynnst fatnaði 66°Norður á ferðum sínum um
landið, sem hafði samband við okkur. Hún sóttist eftir því að
fá einkaleyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum. Við
náðum samkomulagi sem leiddi af sér fyrrgreindan samning.
Hún hefur nú þegar sjö tíl átta menn í vinnu við að selja í
verslanir í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna og stýrir
aðgerðum frá Connecticut á austurströndinni þar sem aðal-
stöðvar fyrirtækisins eru. Þetta fyrirtæki hefur hafið gagngera
markaðssókn í Bandaríkjunum þar sem kynning á Islandi er
meginþemað ásamt sögu 66°Norður og fatnaði þess. Við
erum af þessum sökum að auka við framleiðslu okkar í
Lettlandi til að geta annað aukinni eftirspurn,“ segir hann.
Verksmiðjan,
'MÁX
Imynd að íslensk-ítölsku irumkvæði 66°Norður hefur vakið
athygli fyrir sterka útivistarímynd og öfluga markaðssetningu.
1997-1998 var farið í það að breyta ásýnd fyrirtækisins til
nútímahorfs og hafin tækniframleiðsla á útivistarfatnaði með
breyttu vörumerki og nútímalegri ásýnd. 66°Norður merkið
er „táknrænt fyrir stöðu lands-
ins,“ segir Þórarinn Elmar.
„Þessi gráða er næst 67. gráðu
sem er pólargráðan. Nafnið er
líka dálítið myndrænt. Ekki þar
fyrir. Það er ekki nóg að hafa gott
nafn, maður þarf að hafa góða
ímynd með eftirsóttri vöru. Það
hefur haldið okkur gangandi. Ný
ímynd fyrirtækisins er að ffum-
kvæði ítalsk-íslenskra hönnuða
sem starfa í Mílanó á Italíu. Þeir
höfðu að fyrra bragði samband
við okkur og kynntu okkur hug-
MAfrM-wtwM, /i,
Sjófatnaðurinn var sú grunnframleiðsla sem fyrirtækið
hefur verið með í nær 80 ár. Sú framleiðsla er enn í fullu
gildi, auk þess sem fyrirtækið framleiðir vinnufatnað af
ýmsum gerðum.
mynd að breytingum á fyrirtækinu. Við keyptum þessa
hugmynd. I henni fólst m.a. nýtt búðarkonsept en samkvæmt
því áttu búðirnar að líta út í ákveðnum nútímastíl," segir Þórar-
inn Elmar.
I dag starfar í fyrirtækinu fimm til sex manna hönnunar-
deild en fyrirtækið hefur tvívegis hlotið „Polartech" hönnunar-
verðlaunin, 2002 og 2004. Þau verðlaun eru veitt fyrirtækjum
sem skara fram úr í framleiðslu á „Polartech" flísfatnaði.
Tískan á sjöunda áratugnum. Sjóklæðagerðin -
66°Norður fékk Halldór Pétursson til að teikna
myndirnar í auglýsingabækiingi fyrirtækisins.
ViMyl f/Tmi""’-- l'/irril
Góð hönnun, þróun og gæði Spurður að því hver sé
lykillinn að góðu gengi á jafnerfiðum markaði og fataiðn-
aðurinn er, þar sem óneitanlega er mesta offramleiðslan,
segir Þórarinn Elmar það vera góða hönnun, stöðuga þróun
og mikil gæði. Ef þetta þrennt sé fyrir hendi þá sé auðvelt að
byggja upp sterka ímynd. Islenski markaðurinn sé gífurlega
harður. Fyrirtækin verði að gera sitt besta, markaðurinn sé
þröngur og fólk hugsi samtímis um verð og gæði. Það skipti
líka máli að fatnaðurinn sé tískutengdur, hvort sem það er
útivistarfatnaður eða vinnufatnaður. Þetta þurfi allt að vera í
samræmi við tískuna.
Hvað ijármálin varðar þá vill Þórarinn Elmar ekki gefa upp
neinar tölur frekar en forsvarsmenn hinna fyrirtækjanna sem
rætt er við í þessari grein. Hann
segir þó að fyrirtækið hafi hagn-
ast árið 2002, eftir flutningana, í
fyrsta skipti eftir tveggja ára tap.
Árið 2003 hafi hagnaðurinn
aukist og verði samkvæmt
áætlun ásættanlegur árið 2004.
Þetta sé í samræmi við áætlun og
kannski betur en það. Banda-
ríkjamarkaður verði þó harður til
að hasla sér völl á og þar hafi
fyrirtækið skuldbundið sig til að
geta aukið framleiðslu sína veru-
lega næstu þrjú til flögur árin. BU
FÓORADIR
79