Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 35
bættum vélakosti í kortaframleiéslu erum
við með tæki eins og þau gerast best
annars staðar í heiminum.
Endalausir möguleikar
Karl litur björtum augum til framtíðar-
innar. „í nýju og rúmgóðu húsnæði og með
fullkominn vélakost eru möguleikarnir
endalausir. Við höfum ávallt fylgst vel
með nýjustu tækni í korta- og límmiða-
gerð og árið 2002 voru tekin í notkun hjá
okkur ný tæki til að framleiða hleðslukort,
skafmiða, plastkort og pappírskort með
eða án segulrandar, þjófavarnarlausnir og
margt fleira. Með nýju kortaverksmiðjunni
eykst fjölþreytnin til muna og við getum
nú framleitt öll kort (multilayers) úr plasti
eða pappír. Getum einnig framleitt
svokölluð snertilaus kort með örgjörva,
smartkort og síðast en ekki síst kort með
skynjurum af ýmsum toga, en slík kort
eru mikil tæknibylting í flutningi við-
kvæmrar vöru á milli landa. Þessi kort
geta meðal annars verið með skynjara
sem mælir hitastig í vöru og einnig geta
þau mælt rakastig vöru ( flutningi milli
staða innanlands eða í flutningi milli
landa. Hægt er að stilla mælingatíðni,
t.d. láta kort mæla hita/rakastig á 15
mín. fresti, oftar eða skemur."
Það er sem sagt í mörg horn að líta
hjá Karli og hans mönnum í Vörumerk-
ingu, en áætlað er að flytja í september
og nýja vélin, sem sett er saman í Japan,
er væntanleg í október. 33
... ES»
Uorumsrhing
Bæjarhrauni 20 - 220 Hafnarfirði - simi 555 3588
www.vorumerking.is
Bæjarhraun 20.
Bæjarhraun 24.