Frjáls verslun - 01.07.2004, Blaðsíða 80
Jón Erlendsson, framkvæmdastjóri Zo-on, við jakka frá fyrirtækinu.
Mynd: Geir Ólafsson
Zo-on er
fslenskt
vörumerki
Margir kannast við vörumerkið Zo-on og halda
að þar sé erlend framleiðsla á ferð. Svo er ekki.
Þetta er ekta íslenskur útivistarfatnaður.
Eftír Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Zo-on fatnaðurinn er íslenskur skíða- og brettafatnaður,
golffatnaður og síðast en ekki síst - útivistarfatnaður.
Fyrirtækið Sportey, sem á og rekur Zo-on, var stofnað
fyrir tæpum níu árum og byrjaði með þrjú vörumerki í fram-
leiðslu. Nú hafa vörumerkin verið sameinuð í eitt, Zo-on.
Hönnunin var í upphafi finnsk enda Finnar ákaflega framar-
lega í allri hönnun en nú er megnið af framleiðslunni íslensk
hönnun þó að eitthvað sé ennþá hannað í Finnlandi. Aðal-
markaður Zo-on er Island en fyrirtækið er einnig nýlega farið
að selja vörur sínar í Þýskalandi og Frakklandi, sem eru
stærstu markaðirnir fyrir utan heimamarkaðinn,
auk Austurríkis, Sviss, Belgíu, Hollands, Dan-
merkur, Grænlands og Tékklands.
Stórar pantanir bara smápantanir Zo-on er í
eigu Magnúsar Arnasonar, tjárfestis og heildsala,
auk að minnsta kosti átta annarra, þar á meðal
erlendra aðila. Framkvæmdastjóri er Jón
Erlendsson en starfsmennirnir eru samtals 5-6.
Heildarvelta Zo-on var um 130-140 milljónir króna árið 2003,
þar af voru um 70% á heimamarkaði, og hefur fýrirtækið
ýmist sýnt hagnað eða tap. Jón segir að það hafi verið á
sléttu á síðasta ári og sýni hagnað á þessu ári. Á næsta ári
telur hann að erlendi markaðurinn verði stærri en sá
íslenski. Stórar pantanir eru byrjaðar að berast að utan, sér-
staklega frá Þýskalandi og Frakklandi, og þessar pantanir
eru „smápantanir" lýrir erlendu fýrirtækin þó stórar séu
fyrir það íslenska. Þannig hefur Zo-on fengið pöntun frá
sportvörukeðjunni Sport 2000 í Þýskalandi en hún hefur
1.100 búðir innan sinna vébanda. Keðjan er einnig í öðrum
Evrópulöndum en verslanirnar þar starfa sjálfstætt svo að
Zo-on fatnaðurinn fer ekki sjálfvirkt þar í sölu. Jón telur að
um 28-29 þúsund flíkur frá Zo-on verði seldar á íslandi í ár.
„Okkur hefur legið á að komast á erlendan markað því að
ekki er gott að vera of háður íslenska markaðnum. Hér eru
tvær keðjur ráðandi, Baugur og Kaupás,“ segir hann.
Tengt íslandi í markaðssetningu Zo on fatnaðurinn hefur
náð sterkri stöðu á íslandi. Mörg skíðafélög hafa keypt Zo-on
skíðafatnað í stórum stíl, öll golflandslið á íslandi leika í Zo-on
fatnaði þar sem Zo-on og Golfsamband íslands hafa gert sam-
starfssamning sín á milli. Þá er útivistarfatnaður fýrirtækisins
mjög sterkur í samkeppninni að mati Jóns. Fyrirtækið kemur
með 120 nýjar vörulínur á ári sem er bæði fatnaður fyrir sumar
og vetur. Meðal annars er von á flíslínu á næsta ári. Hann
bendir á að samkeppnin sé mjög hörð, sérstaklega við inn-
fluttu merkin. Sama gildi á erlendum markaði. Zo-on hafi því
fjárfest fýrir tugi milljóna í markaðssetningu erlendis, bæði
sýningum og kynningarefni af ýmsu
tagi. Zo-on fatnaðurinn er stíft tengdur
Islandi í markaðssetningunni: „If it
makes it in Iceland, it makes it
anywhere," segir í bæklingunum.
Zo-on fatnaðurinn er fyrst og
fremst framleiddur í fimm verk-
smiðjum í Kína en einnig í Pakistan,
Indlandi og Tyrklandi. 33
Zo-on fatnaðurinn er
stíft tengdur Islandi í
markaðssetningu fyrir-
tækisins: „If it makes it
in Iceland, it makes it
anywhere," segir í
bæklingum fyrirtækisins.
80