Frjáls verslun - 01.07.2004, Page 89
STJQRNUN
Greinarhöfundur, Herdís Pála Pálsdóttir, er sérfræðingur í
starfsmannaþjónustu íslandsbanka.
starfsfólk sitt til að auka ijölmenningarhæfni sína. Jafnvel að
vera með eitthvað á vinnustaðnum sem minnir starfsfólk á að
meta alla einstaklinga jafnt sem manneskjur, til dæmis að gefa
öllum boli eða barmmerki með einhverri mynd eða merki sem
minnir á ijölmenningu og styrkleika hennar. Breytt hugarfar er
það sem þarf. Þetta nýtist bæði í samskiptum innan fyrirtækis
og utan þess því viðskiptavinirnir eru heldur ekki allir eins.
Hver er ávinningur af auknum fjölbreytileika? ólíkur starfs
mannahópur leiðir mjög oft af sér aukna nýsköpun og tjöl-
breyttari hugmyndir og nýjungar. Eigendur og stjórnendur
ættu að gera sér þetta ljóst og vinna markvisst út frá því.
Hin hliðin á teningnum er að vísu sú að ijölbreytilegur
starfsmannahópur getur leitt til örari mannabreytinga (hærri
starfsmannaveltu) og aukinna árekstra á vinnustaðnum. En
vinna má gegn því með þjálfun fólks í að starfa í ólíkum hópum
og hvernig taka beri á árekstrum sem kunna að koma upp.
Ef stjórnendur fýrirtækja bregðast ekki við kröfu sam-
félagsins í þessum efnum munu fyrirtæki þeirra líða fyrir það
með einum eða öðrum hætti. Til dæmis getur þetta þýtt minni
viðskipti við ákveðna hópa í samfélaginu. Auk þess sem ímynd
fyrirtækjanna getur skaðast.
Það getur verið mjög dýrkeypt ef fyrirtæki láta hæfileika og
framlag starfsfólks fram hjá sér fara. Ef við ættum öll að vera
eins hefðum við sjálfsagt verið sköpuð eins en þá væri heimur-
inn líka frekar einsleitur.
Það er aðdáunarvert þegar fólk hefur hugrekki til að
bijótast úr viðjum vanans og taka áhættu með nýjum hug-
myndum og aðferðum. En það sorglega er að stundum
vinnur menning fyrirtækja gegn slíkri hegðun og þetta getur
jafnvel spillt fyrir möguleikum þessa fólks á frama innan fyrir-
tækisins - þótt hugmyndirnar og aðferðirnar kunni að vera
fyrirtækinu til góðs. Það er einu sinni svo að mörgæsir er
sjaldnast hrifnar af því að fá páfugl í hópinn og vill gjarnan
breyta honum eða fá hann til að líkjast þeim.
Áhrif fjölmenningar á ímynd vinnustaða Þó að ekki hafi
verið nákvæmlega mælt hveiju ijölmenning í fyrirtækjum
skilar í krónum og aurum þá eru flestir sammála um að hún
skilar sér í bættri ímynd og hafi þannig íjárhagslegan
ávinning.
Ýmsar markaðsrannsóknir benda á að kaupmáttur kvenna
og ýmissa minnihlutahópa fari vaxandi og þau fyrirtæki, sem
höfða til þessara hópa, eru líklegri til að ná stærri hluta við-
skipta þeirra.
Stjórnendur eru ekki alltaf nægjanlega meðvitaðir um sýn
almennings eða hins almenna starfsmanns á fyrirtækið og
hvernig það stendur sig í að gefa öllum tækifæri innan þess.
Gott væri að mæla sýn mismunandi hópa á tækifæri sem
bjóðast innan fyrirtækisins. Það segir til um stöðuna eins og
hún raunverulega er og gefur stjórnendum ábendingar til að
vinna út frá.
Leiðir skortur á fjölmenningu til málaferla? Þó að á íslandi
sé ekki mikil hefð fyrir málaferlum á hendur fyrirtækjum sem
mismuna hópum samfélagsins, eins og þekkist erlendis, þá
er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér. Mikil umræða
hefur til dæmis verið upp á síðkastið um stöðu kvenna í
stjórnum og stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja og á
ráðstefnu sem haldin var fyrr í sumar, og bar yfirskriftina
„Yöld til kvenna“, voru uppi raddir um að konur færðu við-
skipti sín frá eða sniðgengju þau fyrirtæki sem nýta ekki hæfi-
leika kvenna sem skyldi. Það gæti nú kostað sitt og kannski
ráð að byrgja brunninn strax.
Reglulega heyrir maður eða les um erlend fyrirtæki sem
standa í málaferlum eða öðrum óþægindum vegna þess að
þau hafa, eða eru talin hafa, brotið á minnihlutahópum. Er
þetta eitthvað sem við munum sjá á íslenskum vinnumarkaði
í nánustu framtíð þegar íslenskt þjóðfélag er að breytast, t.d.
vegna aukinnar ijölmenningar sem orðið hefur á síðustu
árum með flutningi margra ólíkra útlendinga til landsins?
Að lOkum Þeir vinnustaðir sem vilja skara fram úr í sam-
keppni ættu að íhuga hvort þeir eru of fastir í því að gera hlut-
ina eins og þeir hafa alltaf gert þá - og hvort þeir séu hugsan-
lega ekki að nýta sem best hæfileika starfsmanna sinna; sem
vonandi er fjölbreytilegur hópur. 33
Greinarhöfundur, Herdís Pála, er sérfrœðingur í starfsmanna-
þjónustu íslandsbanka og áhugamanneskja um að nýta hæfi-
leika hvers einstaklings eins og hann er.
89