Frjáls verslun - 01.07.2004, Page 24
FORSÍÐUGREIN: FDRSÆTISRÁÐHERRARKIPTIN
LÆKKUN SKATTA
EKKI TEKIST SEM SKYLDI. Tekist gagnvart fyrir-
tækjum en ekki gagnvart einstaklingum. Kannski er það í
sjónmáli. Stefnt er að því að lækka tekjuskattsprósentu ein-
staklinga um 4 prósentustig á tímabilinu. Hins vegar er
erfitt að skapa varanleg skilyrði fyrir skattalækkunum nema
draga miklu meira úr útgjöldum rikissjóðs en gert hefur
verið. Rikisstjórnir
Davíðs hafa lækkað
tekjuskattsprósentu
fyrirtækja í nokkrum
skrefum úr 45% í 18%.
Þetta hefur verið gert
til að styrkja fyrir-
tækin. Hugsunin er sú
að það séu fyrirtækin
sem skapi atvinnu fyrir
fólkið. Gangi þau vel
sé verið að slá tvær
flugur í einu höggi.
Eigi fyrirtækin hins
vegar í basli sé
atvinnuöryggi og lífs-
viðurværi fólks í
hættu. Heildarskatt-
tekjur ríkissjóðs voru
28,3% af landsframleiðslu árið 1991, þegar Davíð tók við, og
verða um 29,2% á þessu ári. Þetta hlutfall hefur því hækkað
um tæp 1% á tímabilinu. Annars hafa verið mjög sérkenni-
legar umræður um „skilgreininguna“ á því hvað sé skatta-
lækkun. Er það skattalækkun ef tekjuskattsprósenta fyrir-
tækja er lækkuð úr 45% í 18%? ,Já“, segja allir. En hvað ef
fyrirtækin styrkjast fyrir vikið, hagnast miklu meira í
krónum og greiða þar af leiðandi mun hærri krónutölu í
skatta en áður. Þá segja sumir „nei“ og telja enga skatta-
lækkun fyrir hendi. Það var og! Þetta er deila um keisarans
skegg.
SKULDIR RÍKISSJÚÐS
Árið 1992: Árið 2003:
Skuldir ríkissjóSs: 166 milljarðar. 276 milljarðar
Verg landsframl.: 413 milljarðar. 806 milljarðar
Skuldir ríkissjóðs sem % af landsframleiðslu: jl . 0 34,3%
VEL GERT. SKULDIRNAR HAFA LÆKKAÐ. Árið 1992
voru skuldir ríkissjóðs 40,2% af vergri landsframleiðslu en í
lok síðasta árs voru þær komnar niður í 34,3% af landsfram-
leiðslu. Ríkið hefur grynnkað á skuldum, sérstaklega dýr-
um innlendum lánum, og náð að lækka vaxtagreiðslur - sem
aftur gefur færi á að lækka skatta síðar. Sveitarfélögunum
hefur því miður ekki tekist að lækka skuldir sínar líkt og
ríkissjóður.
LÍFEYRISSKULDBINDING RÍKISSJÓÐS
ÓLEYST VANDAMÁL EN SPYRNT VIÐ FÓTUM.
Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs eru hrikalegt dæmi. Þó er
búið að spyrna við fótum með því að skipta lífeyrissjóði ríkis-
starfsmanna í A- og B-deildir. Allir ríkisstarfsmenn sem hafa
verið ráðnir á undanförnum árum eru í A-deild sem stendur
undir sér. Gamlir ríkisstarfsmenn eru langflestir í B-deild og
Árið 1992: Árið 2003:
Lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs: 58 milljarðar 184 milljarðar
Árin 1999-2004:
Sérstakt framlag úr ríkissjóði í B-deild Lífeyrissjóðs ríkisstarfs-
— 57 MILLJARÐAR KR.
það er þar sem vandinn er hrikalegur. Lífeyrisskuldbindingar
ríkissjóðs vegna B-deildar eru 184 milljarðar króna og hafa
hækkað skarpt á undanförnum árum vegna launahækkana.
Þrátt fyrir þetta hefur ríkissjóður greitt 57 milljarða inn í
sjóðinn á síðustu árum vegna afgangs á ríkissjóði. En betur
má ef duga skal. Þetta er erfitt framtíðarverkefni og illmögu-
legt að sjá að hægt verði að standa við þessar skuldbindingar
- og komast hjá skerðingu á lífeyrisréttindum.
ERLENDAR SKULDIR
HÉR ER VANDIÁ HÖNDUM. Þótt ríkisstjórnir Davíðs hafi
einbeitt sér að því að lækka skuldir ríkissjóðs þá er allt annað
uppi á teningnum hjá einstaklingum, sveitarfélögum, tjármála-
stofnunum og öðrum fyrirtækjum. Erlendar skuldir alls þjóðar-
búsins hafa blásið út og nema núna um 157% af þjóðarfram-
leiðslu. Árið 1998 var þetta hlutfall aðeins um 70% og um 50%
nokkrum árum áður. Miklar erlendar skuldir þjóðarinnar eru
vandamál. Ekki þarf mikla búskelli til að illa fari. En ekki er
hægt að kenna ríkisstjórnum og stjórnmálamönnum um þess-
ar skuldir; það er hinn frjálsi markaður sem hefur tekið þær.
SKULDIR HEIMILANNA
MIKIÐ VANDAMÁL. Skuldir heimila sem hlutfall af ráð-
stöfunartekjum voru aðeins 20% árið 1980, þetta hlutfall var
komið í um 92% árið 1991, þegar Viðeyjarstjórn Davíðs tók
við, en er núna 180%. Vissulega er stór hluti þessara skulda
heimilanna vegna húsnæðis þannig að eignir koma á móti. En
vaxtabyrðin er þyngri og stærri hluti af ráðstöfunartekjum
fólks fer í að greiða vexti af lánum - líka neyslulánum. En auð-
vitað gerir fólk líka meira en á árum áður og veitir sér meira.
Hvort sem því líður betur eða ekki.
BYGGING ÁLUERA
GÓÐUR ÁRANGUR. Þegar Viðeyjarstjórn Davíðs tók við
árið 1991 snerist allt um „álver á Keilisnesi" og mikið mæddi
á Alþýðuflokknum í þvi máli. Ekki tókst að landa þvi. Hjólin
tóku að snúast í stóriðjumálum þegar Framsóknarflokkurinn
kom í stjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 1995. Það byrjaði
með Norðuráli í Hvalfirði. Núna er Alcoa að reisa álver á
Reyðarfirði og Landsvirkjun Kárahnjúkavirkjun í tengslum við
hana. Álverið í Straumsvík hefur sömuleiðis verið stækkað.
Umsvif ríkissjóðs
Hlutfall af landsframleiðslu
Heildartekjur: 1991 32,3% 2004 33,6%
Heildarútgjöld: 35,1% 33,0%
Tekjuafgangur: -2,8% 0,6%
Skatttekjur: 28,3% 29,2%
Samneysla: 13,2% 14,4%
24