Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 32
FDRSÍÐUGREIN: FORSÆTISRÁÐHERRASKIPTIN
Drengshaparmaður Annar viðmælandi FV sagði að Hall-
dór væri þannig að ef hann segðist ætla að hringja á til-
teknum tíma eða koma í heimsókn þá stæði hann við það. Því
mætti treysta fullkomlega þrátt fyrir miklar annir og langa
vinnudaga.
Það þarf því ekki að koma á óvart að Halldóri Asgrímssyni
er lýst sem traustum drengskaparmanni sem stendur við orð
sín. „Hann er heiðarlegur og lofar ekki meiru en hann getur
staðið við. Hann kemur aldrei í bakið á fólki. Þess vegna er
hann yfirleitt varkár í yfirlýsingum og þegar fólk ber upp
erindi sín við hann. Hann er einkar velviljaður og er vanur að
ganga í málin og leysa þau. En fólk verður að gera sér grein
fyrir því að það getur tekið tíma að leysa mál,“ segir Stefán
Guðmundsson, fyrrverandi alþingismaður Norðurlands
vestra og góðvinur Halldórs.
Það þarf þrautseigju og einurð til að lifa af í pólitík og Hall-
dór hefur nóg af hvoru tveggja. Og ekki má gleyma því að
standa við eigin ákvarðanir, þótt misvinsælar séu, eins og nýleg
dæmi um breytingar á ráðherraliði Framsóknar sanna. Hann
þykir fastur iýrir og gefur sig hvergi en um leið er minnt á að
hann sé lunkinn að ná samkomulagi þó menn deili endalaust
um hve miklu eigi að fórna í þeim tilgangi. „Halldór getur verið
ýtinn og vill fá sínu framgengt en hann er einnig laginn við að
koma sínum málum í gegn án átaka. Það þarf alveg sérstakt lag
til þess,“ segir samferðamaður nýs forsætisráðherra.
Skapríklir Þeir sem þekkja Halldór eru ófeimnir að játa að
hann sé skapríkur maður og stundum sé stuttur í honum
þráðurinn. „Hann getur verið afar snöggur upp á lagið og
margir hrökkva í kút þegar sá gállinn er á honum. Hann lætur
menn fá það óþvegið en hann er hins vegar ekki að erfa hlut-
ina við menn. Menn vita alveg hvar þeir hafa Halldór," segir
gamall samherji. Annar bætir við: „Þeim sem gagnrýna Hall-
dór er ráðlegast að geta stutt þá gagnrýni haldbærum rökum.
Þá dokar hann við og kemst oftar en ekki að þeirri niðurstöðu
að þeir hafi sitthvað til síns máls. En ef rökin standast ekki
skoðun er eins gott fýrir menn að flýta sér burt því Halldór
þolir illa hálfkák og illa undirbúinn málflutning. Hann er
kröfuharður við samstarfsmenn sína og getur verið andskoti
leiðinlegur við fólk sem honum líkar ekki en á móti kemur að
hann hlífir sjálfúm sér hvergi."
Við þetta er að bæta að Halldór þykir yfirleitt ágætur hlust-
andi, sanngjarn og í honum rík réttlætiskennd.
Halldór talaði fyrir frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða,
kvótalögunum. Þá var mörg orrahríðin í þinginu og þá segja
kunningjar að þrátt fyrir skapríki hans sjálfs hafi oft reynt á
þann hæfileika Halldórs að róa æsta og reiða menn.
Vinnuforkur Vinnusemi og drifkraftur eru eiginleikar sem
gjarnan eru dregnir fram í samræðum um Halldór. Hann
tekur daginn snemma og týrsti viðkomustaður er oft líkams-
ræktin en þar er hann fastagestur. Halldóri er annt um heils-
una og duglegur að halda sér t formi. Hann er mikill göngu-
garpur og það dylst engum samferðamanna hans að þar er
metnaðarfullur maður á ferð. „Halldór er í essinu sínu þegar
.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Fæddur 8. september 1947
Eiginkona: Sigurjóna Sigurðardóttir
Börn: Helga (1969), Guðrírn Lind (1975) og íris Huld (1979)
Nám: Próf frá Samvinnuskólanum á Bifföst 1965
Endurskoðandi hjá Gunnari R, Magnússyni 1965-1971
Löggiltur endurskoðandi 1970
Eramhaldsnám í endurskoðun og reikmngshaldi í Noregi og
Danmörku 1971-1973
Ferill: Lektor við viðskiptadeild Háskóla íslands 1973-1975
Alþingismaður fyrir Austurland 1974-1978 og 1979-2003
Alþingismaður fyrir Reykjavík norður frá 2003
Varaformaður Framsóknarflokksins 1980-1994
Formaður Framsóknarflokksins frá 1994
Sjávarútvegsráðherra í þremur ríkisstjórnum 1983-1991
Dóms- og kirkjumálaráðherra 1988-1989
Samstarfsráðherra Norðurlanda 1995-1999
Utamlkisráðherra 1995-2004
Forsætisráðherra 2004-
32