Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 38

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 38
STJORNUN síðar breyttist í Ax. í lok ársins 2001 kom hún heim og varð framkvæmdastjóri Ax hér á landi. Árið 1994 útskrifaðist Sigríður með próf í rekstrarfræði frá Endurmenntun Háskóla Islands. Sigríður stundar nú MBA-nám í alþjóðaviðskiptum við Háskólann í Reykjavík. Eiginmaður Sigríðar er Siguijón Gunnarsson, forstöðumaður viðskiptalausna hjá Hugi hf., og eiga þau tvær dætur. Sigríður segir að framtíð íslenska hugbúnaðargeirans sé björt og að tækifærin séu mikil. „Hugbúnaðargeirinn er farinn að sýna arðsemi sem þýðir að aftur ætti að vera mögu- legt að fá fjármagn inn í þennan geira. Hugbúnaðarlausnir eru komnar til að vera og munu þróast áfram og verða stærri þáttur í starfsemi íýrirtækja. Hins vegar þurfum við að sjá meiri nýsköpun almennt. Við þurfum að setja fé í sprotafyrirtæki, finna sérhæfingu, þannig að við getum farið í meiri útflutning. Ef við vinnum vel að þessu eigum við að geta skapað okkur sess erlendis. Ef við horfum á fyrirtæki eins og Ax, sem er í viðskiptahugbúnaði, þá held ég að fýrir- tækin verði færri, stærri og sérhæfðari heldur en þau hafa verið. Lausnirnar eru öflugri og flóknari sem hefur í för með sér að viðskiptavinirnir vilja skipta við trausta og hæfa samstarfsaðila sem geta tryggt þeim þjónustu og þekkingu.“ Sigríður telur að það þurfi að leita tæki- færa erlendis þar sem vaxtarmöguleikar á Islandi séu tak- markaðir. „Ég hef tekið þátt í samkeppni á þessum markaði erlendis og geri mér fulla grein fýrir því að samkeppnin þar er ekki minni en hér á Iandi. Hins vegar erum við hér á íslandi með vel menntað fólk og mikla reynslu og þekkingu í þessum geira og höfum að mínu viti margt fram að færa. Vaxtarmöguleikar almennt í viðskiptatengdum hugbún- aðarlausnum liggja meðal annars í rafrænum viðskiptum, tölvuvæðingu vinnuferla og samhæfðs árangursmats. Fyrir- tæki eru að sjá aukinn ávinning og arðsemi með notkun upp- lýsingatækninnar. Ný tækni mun halda áfram að koma fram á sjónarsviðið og skapa ný tækifæri í greininni." S3 „Sérsvið Ax er við- skiptahugbúnaður og stjórnendaupplýsingar fyrir allar gerðir fyrir- tækja, stór og smá.“ SlGRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR, FRAMKVÆMDASTJÓRI INNN HF.: Tenging kerfa Sigrún Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Innn hf.: „Hjá Innn hf. er lögð áhersla á þróun og sölu vefumsýslukerfisins LiSA, ráðgjöf, grafíska hönnun og forritun." FV-mynd: Geir Ólafsson Hjá Innn hf. er lögð áhersla á þróun og sölu vefumsýslu- kerfisins LiSA, ráðgjöf, grafíska hönnun, forritun og inn- leiðingu á veflausnum fyrir iýrirtæki og stofnanir. Við sérsmíðum einnig viðbótarkerfi tengd LiSA. Við höfum t.d. sérsmíðað bókunarkerfi fýrir Sumarferðir og höfum hug á að fara með kerfið á erlendan markað. Við höfum einnig gert vefverslunarkerfi í samstarfi við Oroblu USA en þeir selja sokkabuxur á Bandaríkjamarkaði. Við höfum líka hugsað okkur að fara með þá lausn á erlendan markað þar sem við getum boðið upp á lægra verð en þar þekkist. Bókunarkerfi og vefverslanir geta verið mjög dýrar erlendis og þá er ég að tala um margfalt þær upphæðir sem tíðkast hér á landi þannig að ég held að við séum vel samkeppnishæf hvað varðar kerfið og vinnuna." Starfsmenn Innn hf. eru tíu og hefur orðið mikill viðsnúningur síðan Sigrún tók við fýrirtækinu. Hagnaður er af rekstrinum og stefnir veltan í 100 milljónir. Sigrún Guðjónsdóttir er arkitekt og lærði í Þýskalandi. I lokaverkefninu hannaði hún og forritaði þrívíðan háskóla- heim. í framhaldi af því fékk hún vinnu við tölvunarfræðideild Universitat Karlsruhe við að þróa verkefnið áfram. Þá lá leiðin til Sviss þar sem hún stundaði eins árs „postgraduate-nám“ við Eidgenössische Technische Hochschule. „Þá var ég búin að ákveða að einbeita mér að upplýsingaarkitektúr og við- mótsfræðum. Þegar heim kom fór ég að vinna sem viðmóts- 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.