Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 39
STJORNUN
hönnuður hjá Landmat. Ég varð fljótt deildarstjóri
hönnunarsviðs og svo framleiðslustjóri. Þá fékk ég
starf hjá Innn hf. sem yfirmaður nýs sviðs sem
kallaðist Innn Ráðgjöf og byggði á hugmynd minni
frá námskeiðinu Frumkvöðla-Auður. Ég varð þó
fljótlega aðalverkefnastjóri fyrirtækisins. Eftir að
fyrirtækið var selt var ég síðan ráðin framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins." Sigrún stundar meistaranám í tölvunar-
fræði við Háskóla íslands.
Aðspurð um ffamtíð íslenska hugbúnaðargeirans nefnir
Sigrún aukna þjónustu við núverandi viðskiptavini og útrás.
„Við hjá Innn hf. höfum sjálf hafið útrás en við erum að vinna
að verkefni fyrir Julian Graves á Bretlandsmarkaði. Julian
Graves er heilsuvörukeðja með 220 verslanir í Bretlandi og
erum við að útbúa vefverslun fyrir þá til að þeir geti selt
heilsuvörur sínar á Netinu. Þetta er fyrsta stóra verkefnið á
erlendum vettvangi.
Ég tel að íslensk hugbúnaðarfyrir-
tæki eigi mikla möguleika á erlendum
vettvangi og sérstaklega ef hægt er að
samnýta markaðsstarf nokkurra fyrir-
tækja.
Nú ráða mörg erlend fyrirtæki starfs-
menn í Asíu til að vinna fyrir sig og ég
held að það gæti orðið þróun hér á landi; sérstaklega hvað
varðar stærri kerfin. Það verður einfaldlega of dýrt að þróa
þau hér. Hugvitið mun samt sem áður koma frá íslendingum.
Ég tel að það verði meiri tenging á milli kerfa í framtíðinni.
Nú er hver í sínu horni að þróa kerfi og fyrirtæki þurfa
kannski að nota um tíu mismunandi kerfi. Annaðhvort verða
sérfyrirtæki í þvi að tengja allt saman eða að fyrirtækin fara
að þróa fleiri hluti í sama kerfinu. Við sjáum miklu möguleika
í að tengja okkar kerfi við önnur kerfi og bjóða viðskipta-
vinum okkar þannig upp á meiri þjónustu.“ 33
Innn hefur m.a. gert
vefverslunarkerfi í sam-
starfi við Oroblu USA en
þeir selja sokkabuxur á
Bandaríkjamarkaði.
Svana Helen Björnsdóttir,
FRAMKVÆMDASTJÓRI STIKA EHF.:
l/ottað af bresku staðlastofnuninni
Stiki ehf. starfar að hugbúnaðargerð og ráðgjöf í upplýs-
ingatækni. Áhersla er lögð á öryggi við vinnslu upplýs-
inga á mörgum sviðum, m.a. í heilbrigðis- og fjármála-
þjónustu. Starfsmenn Stika beita öryggis- og gæðastöðlum
við vinnu sína, t.d. ISO 17799 og ISO 9001. Sem stendur er
Stiki fyrst og fremst að þjóna íslensku atvinnulífi. Vaxtar-
möguleikarnir liggja þó fremur erlendis."
Svana segir að hjá Stika sé oft unnið með viðkvæm gögn
sem lúta lögum um persónuvernd og því hafi verið nauðsyn-
legt að fá öryggis- og gæðavottun. Leitað var til bresku staðla-
stofnunarinnar um slíka vottun. Vottunin var fyrst veitt árið
2002 og er hún endurtekin árlega, bæði er vottað skv. ISO
9001 og skv. BS 7799.
„Við fáum viðurkenningarskjal sem tryggir viðskiptavin-
um okkar að við vinnum í samræmi við staðlana. Þannig
hjálpar þetta okkur til að halda loforð okkar við viðskiptavin-
ina. Þetta er þýðingarmikið til að viðhalda trúnaði og trausti
sem er lykilatriði þegar unnið er með persónuupplýsingar og
önnur viðkvæm gögn.“
Svana er með próf í rafmagnsverkfræði frá Technische
Universitat Darmstadt í Þýskalandi. Efdr að heim kom hóf hún
störf hjá Streng og vann þar í fimm ár eða þar til hún stofnaði
Stika árið 1992. Starfsmenn voru þrír í byijun en eru nú tíu.
Veltan er um 50 milljónir króna á ári.
Svana er gift Sæmundi E. Þorsteinssyni, verkfræðingi og for-
stöðumanni rannsóknardeildar Símans, og eiga þau þijá syni.
„Sumir spyija hvort íslenskur hugbúnaður eigi yfirleitt
nokkra framtíð fyrir sér. Ég held reyndar að svo sé. A Islandi
verður þó seint stunduð massaþróun hugbúnaðar eins og hjá
Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika ehf.: „Stiki
ehf. starfar að hugbúnaðargerð og ráðgjöf í upplýsinga-
tækni." FV-mynd: Geir Ólafsson
39