Frjáls verslun - 01.07.2004, Qupperneq 40
STJORNUN
fyrirtækjunum Microsoft, Oracle eða SAR Hug-
búnaður er líka stórt hugtak. Hann nær ekki aðeins
til þróunar bókhaldsforrita. Marel er dæmi um
íslenskt fyrirtæki sem þróar og flytur út heilmikinn
íslenskan hugbúnað.
Framtíð íslensks hugbúnaðar byggist á þekk-
ingu. Hann má greina í nokkra þætti, t.d. fyrir þá sem þurfa
þjónustu og ráðgjöf og svo má nefna þróun á hugbúnaði sem
býr til upplýsingar - sérhæfðan hugbúnað sem byggist á mikilli
þekkingu. íslendingar þurfa að gæta þess að tileinka sér mestu
Samböndin sem myndast
í útlöndum eru mikilvæg.
An tengsla við útíönd er
íslensk hugbúnaðarþróun
dauðadæmd.
þekkingu sem völ er á. Því er einnig
mikilvægt að fólk fari til útianda í fram-
haldsnám. Samböndin sem myndast í
útlöndum eru mikilvæg. An tengsla við
útlönd er íslensk hugbúnaðarþróun
dauðadæmd. Eg held að vaxtarmöguleik-
arnir byggist á því að koma háþekkingu í verð í gegnum hug-
búnað; þekkingu sem ekki allir hafa. Það þarf að nýta sér allar
smugur sem til staðar eru í umhverfinu. Við erum smá og
smugur henta okkur mjög vel.“ HD
Valgerður H. Skúladóttir,
FRAMKVÆMDASTJÓRI SENSA:
Hafa náð Cisco Siluer Partner stöðu
Valgerður H. Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa: „Viðskiptavinir Sensa eru m.a. stærstu fyrir-
tæki og stofnanir landsins." FV-mynd: Geir Ólafsson.
Sérsvið okkar eru samskiptalausnir. Við bjóðum fyrir-
tækjum og stofnunum þjónustu, ráðgjöf, hönnun og
allan búnað sem þarf fyrir örugg, sveigjanleg og hag-
kvæm samskipti, hvort sem eru tölvusamskipti, tal eða mynd.
Þetta þýðir m.a. að auk þess að vinna við staðar- og víðnet
fyrirtækja erum við mikið í uppsetningum og
rekstri IP-símkerfa og Ijarfundakerfa. I þessu
felast mikilvægir þættir eins og t.d. öryggismál
þar sem veija þarf tölvukerfi fyrirtækja fyrir utan-
og innanaðkomandi hættu í formi óheimils
aðgangs og óveiru eins og tölvuvírusa og orma.
Örugg og góð rafræn samskipti fyrirtækja, hvort
sem er inn eða út á við, er
veigamikill þáttur í
velgengni fýrirtækja í
dag. Viðskiptavinir Sensa
eru m.a. stærstu fyrir-
tæki og stofnanir lands-
ins sem gera kröfur um
öryggi, gæði og fag-
mennsku. Þar má telja
bankastofnanir og fyrir-
tæki sem eru með starfs-
stöðvar víða um heim.
Veltan hjá okkur
stefnir í rúma tvöföldun
milli ára. Þó er velta ekki
markmið heldur hagn-
aður en Sensa hefur frá
byrjun verið rekið með
hagnaði. I dag erum við
stærsti söluaðili Cisco
Systems á landinu og þau
einu sem hafa hina eftirsóttu Cisco Silver Partner stöðu. Það
er staðfesting á þekkingu og færni starfsmanna Sensa í þeim
lausnum sem við bjóðum upp á.“
Valgerður er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Islands
og með MBA-próf frá Bandaríkjunum. Eftir að heim kom hóf
hún störf hjá iðnaðarráðuneytinu. Þá
hóf hún störf hjá Jóhanni Ólafssyni og
Co. en síðan lá leiðin í Tæknival þar
sem hún vann í átta ár eða þar til hún
stofnaði Sensa ásamt Ólafi J. Ólafssyni
fyrir tæpum þremur árum. Starfs-
menn eru 11 og stefnir veltan á þessu
Auk þess að vinna við
staðar- og víðnet fyrirtækja
er Sensa mikið í uppsetn-
ingu og rekstri IP-sím-
kerfa og ijarfundakerfa.
40