Frjáls verslun - 01.07.2004, Page 60
mjög sterkar meðal iðnfyrirtækja og byggingaverktaka. Bæði
Baldvin og Olafur Thors voru málsvarar samkeppni og frekari
uppbyggingar á Almennum tryggingum.
Sjóvátryggingarfélag íslands og Almennar tryggingar
runnu saman 1989 og tóku við stjórninni Olafur B. Thors, sem
hafði verið forstjóri Almennra trygginga, og Einar Sveinsson,
sem hafði verið forstjóri Sjóvátryggingarfélagsins. Forstjórar
Sjóvár hafa verið:
Einar Sveinsson 1984-2004
ÓLAFUR B. Thors 1976-2002
Þorgils Óttar Mathiesen 2004-
Einar og Ólafur stýrðu náttúrulega sameiningunni til að
byija með og svo stækkun og útrás fyrirtækisins, þenslu til
aukinnar markaðshlutdeildar og innleiðingu nýjunga sem
aldrei hafa verið meiri en síðustu árin. Fjárhagur fyrirtækisins
styrktist mikið undir þeirra stjórn. BIl
SH
Atta menn hafa gegnt forstjórastarfinu hjá SH frá upphafi.
Gunnar Svavarsson hefur verið forstjóri ffá 1999.
Guðmundur Albertsson 1943-1946
Magnús Z. Sigurðsson 1946-1947
Björn Halldórsson 1949-1977
JÓN Gunnarsson 1955-1962
Eyjólfur Ísfeld Eyjólfsson 1962-1985
ElNAR Kvaran 1962-1974
Friðrik PÁLSSON 1986-1999
Gunnar Svavarsson 1999-
SH var stofnað í ársbyrjun 1942. Fiskur-
inn hafði þá verið offfamleiddur og erfitt
um vik á saltfiskmörkuðum. Nauðsyn-
legt var að finna aðrar leiðir til að koma
honum út og flutti SH út ísaðan togara-
fisk til Bretlands og Þýskalands til að
minnka álagið á saltfiskmörkuðum. Má
segja að Elías Þorsteinsson stjórnarfor-
maður og stjórnarmenn SH hafi virkað sem framkvæmda-
stjórn til að byrja með en svo réðst dr. Magnús Z. Sigurðsson
til starfa. Hann fór svo fljótlega í sölumennsku í Þýskalandi og
Tékkóslóvakíu og var þá framkvæmdastjóralaust í eitt ár eða
þar til Björn Halldórsson tók við starfinu. Arið 1962 urðu þeir
Björn, Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson og Einar Kvaran fram-
kvæmdastjórar saman. Björn sinnti þá starfsmannastjórnun,
Friðrik Pálsson.
Eyjólfúr sölu- og
markaðsmálum
og Einar fram-
leiðslumálum.
Árið 1969 varð
Eyjólfur Isfeld
forstjóri yfir öllu
fyrirtækinu. Ein-
kenndist hans tíð
af öflugri mark-
aðssetningu í
Asíu, t.d. mark-
aðssetningu á
loðnufrystingu í
Japan. A starfs-
tíma Friðriks
Pálssonar var fyr-
irtækið með
mikla uppbygg-
ingu í Evrópu al-
mennt og urðu markaðirnir fimm, í stað tveggja áður. Þetta
voru Bandaríkin, Sovétríkin, Bretland, Frakkland og Þýska-
land. Gunnar Svavarsson hefur verið forstjóri SH ffá 1999. Á
hans tíma hafa sölumálin breyst þannig að samtökin eru ekki
lengur sölusamtök. Þá hefur útrásin haldið áfram erlendis
með kaupum á fyrirtækjum, ekki síst í kældum vörum sem
eru nýtt svið fyrir SH. SO
Gunnar Svavarsson.
FLUGLEIÐIR/ICELANDAIR
Saga Flugleiða er saga umbrota og óvissu og starfstími for-
stjóranna markast af því. Sigurður Helgason yngri hefur
verið forstjóri í 19 ár.
Fyrstu forstjórana má telja Agnar Kofoed-Hansen, sem
stýrði Flugfélagi Akureyrar, forvera Flugfélags íslands, og
Kristján Jóhann Kristjánsson, Olaf Bjarnason og Alfreð Elías-
son, sem skiptu framkvæmdastjórastarfinu á milli sín Loftleiða-
megin. Flugleiðir voru svo stofnaðar við samruna Loftíeiða og
Flugfélags Islands árið 1973 og voru forstjórarnir í fyrstu þrír
talsins. Fyrirtækin tvö voru með mjög ólíka menningu og starf-
semin bar þess merki. Starf forstjóranna helgaðist af því.
Flugfélag Akureyrar
Agnar Kofoed-Hansen 1937-1939
Örn Ó. JOHNSON 1939-1940
Flugfélag íslands
ÖRN Ó. JOHNSON 1940-1973
Loftleiðir
Kristján Jóhann Kristjánsson 1944-1949
Ólafur Bjarnason 1944-1949
Alfreð Elíasson 1944-1949
HjÁLMAR Finnsson 1949-1952
Gunnar Þ. Gunnarsson 1952-1953
Alfreð ElÍASSON 1953-1973
60