Frjáls verslun - 01.07.2004, Qupperneq 88
STJQRNUN
Ert þú páfugl í
landi mörgæsa?
Vinnustaðir geta grætt heilmikið á því að hafa ólíka starfsmannahópa og
fjölbreytta menningu sem styður kjarkmikið starfsfólk með mikla sköpunargleði.
Eftir Herdísi Pálsdóttur Myndir: Geir Ólafsson
V
Vinnustaðir sem vilja skara íram
úr munu seint eða
aldrei ná því ef þeir
eru að gera það sama og þeir
hafa alltaf gert - því eins og
einhver sagði: „Ef þú gerir \
alltaf það sem þú hefur alltaf
gert færðu í besta falli það sem
þú hefur alltaf fengið!“
Vinnustaðir geta grætt heil-
mikið á því að hafa ijölbreyttan
starfsmannahóp og menningu sem
styður kjarkmikið starfsfólk með
mikla sköpunargleði. Það leiðir af sér
fjölbreyttar og ólíkar hugmyndir sem
nýtast við að ná þeirri sérstöðu sem
allir sækjast eftir.
Fjölbreytileg menning og fjölmenning
Fjölmenning er hugtak sem mikið hefur
verið í umræðu á allra síðustu misserum.
Margir hugsa þá sem svo að fjölmenning
snúist aðallega um fólk af erlendu bergi
brotið sem hefur flust til Islands. Fjölmenning
er miklu meira. Við megum ekki gleyma sérkennum
hvers einstaklings, sama hvaðan hann kemur. Þegar rætt
er um fjölmenningu þarf að taka með í reikninginn kyn,
kynþátt, kynhneigð, aldur, trú, stjórnmálaskoðanir og
ótalmargt fleira því allt þetta eru dæmi um birtingarform
flölmenningar. Einnig þarf að skoða einstaklinga út frá
mismunandi hæfni, hugmyndum og reynslu við-
komandi. Það er sama hversu einsleitur hópur virðist við
fyrstu sýn, einstaklingar innan hans hafa ekki allir komið
úr sama mótinu og verða alltaf á einhvern hátt ólíkir.
Samskipti á vinnustað eru eitt birtingarform menn-
ingar á vinnustöðum. Hvað á starfsmaður að gera sem veltir
fyrir sér hvort hann falli inn í hópinn eða ef hann finnur sig
alltaf hálf utanveltu á vinnustaðnum? Hefur hann einhverja
aðra kosti en að skipta um vinnu?
Hvað á stjórnandi að gera sem er með
starfsfólk sem hann skynjar að passi ekki inn
í hópinn og skilji ekki þær stjórnunaraðferðir
sem hann beitir?
Aður en gripið er til þess úrræðis að
segja fólki upp eða það sjálft skiptir um
'Í vinnu er mikilvægt að átta sig á að
1 heildin græðir mest á ólíkum einstakl-
|£ ingum. Ef við nýtum okkur þetta sem
ý;: kost í stað þess að líta á þetta sem
i; hindrun erum við í góðum málum.
Starfsfólk þarf auðvitað að
finna leiðir til að vinna hvert með
öðru þótt það sé ólíkt. Stundum
geta stjórnendur og starfsfólk,
sem er mjög ólíkt í hugsun,
þurft hjálp við að vinna
saman. Stjórnendur þurfa
líka að átta sig á að ein
stjórnunaraðferð hentar
ekki endilega öllum, eða er
ekki líkleg til að ná fram því besta í
hveijum og einum á
vinnustaðnum.
En víkjum þá að
fyrirsögninni: Ert þú
páfugl í landi mör-
gæsa? Hvernig er
hægt að fá mörgæs og
páfugl til að vinna sam-
an á árangursríkan
hátt?
Fjölbreytt menning
og ólíkir hæfileikar á
meðal starfsmanna er
nokkuð sem stjórnendur fyrirtækja þyrftu að hafa meira í
huga. I raun þurfa stjórnendur þjálfun í að stjórna ólíkum
hópi einstaklinga.
Fyrirtæki ættu jafnvel að íhuga þann möguleika að þjálfa allt
íslenskt samfélag er orðið flöl-
menningarlegt, með búsetu margra
útlendinga af ýmsu þjóðerni hér á
landi. En fjölmenning er miklu
meira; bornir og barnfæddir Islend-
ingar geta verið gjörólíkir og með
ólíkan grunn. Engir tveir eru eins.
Mergurinn málsins er sá að ólíkt
fólk á vinnustöðum er jarðvegur
tækifæra fyrir stjórnendur, en það
getur auðvitað líka haft sína galla.
88