Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 92

Frjáls verslun - 01.07.2004, Side 92
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er byrjaður að grisja í þéttriðnu fyrirtækjaneti sínu á íslandi og færist enn í aukana á Bretlandi. Byrjaður að grisja r Jón Asgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er byijaður að grisja í f flóknu fyrirtælqaneti sínu hér á landi. I byijun sumars seldi hann í flórum þekktum fyrirtækjum; Flugleiðum, Lyfju, Skífunni og TM. Efdr: Jón G. Hauksson og Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Geir Ólafsson BAUGUR GROUP Eigendur: r Aðrir í Gaumur 35% ' L G5% Ll Gaumur er í eigu Jóhannesar Jónssonar, Ásu Karenar Ásgeirsdóttur, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Kristínar Jóhannesdóttur. Nóatúnsfjölskyldan keypti ásamt Gunnari og Gylfa af Baugi og Feng í Flugleiðum. Finnur Ingólfsson. Róbert Melax. Þórður Már Jóhannesson. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, er byrjaður að grisja í fyrirtækjaneti sínu. Á undanförnum vikum hafa Baugur og tengd félög selt eignir á íslandi fyrir samtals 13 milljarða króna og hefur innleystur hagnaður af þessum viðskiptum numið um 5 milljörðum. Umsvif Baugs í Bretlandi halda hins vegar áfram að aukast og eru eignir félagsins þar núna metnar á um 50 milljarða króna. Fyrir einu og hálfu ári voru þær metnar á um 9 milljarða króna. BflUGUR SELUR í FLUGLEIÐUM Það má segja að skriðan hafi farið af stað mánudaginn 17. maí sl. þegar Baugur Group og Eignarhaldsfélagið Fengur (Pálmi Haraldsson) seldu öll bréf sín í Flugleiðum, um 27%, á samtals 5,6 milljarða, á genginu 9,0. Kaupendur voru Nóatúnsfjölskyldan (Saxhóll) og byggingameistararnir Gunnar og Gylfi, þ.e. Gunnar Þorláksson og Gylfi Ómar Héðinsson. Baugur Group átti 21% og fékk 4,4 milljarða í sinn hlut og Fengur átti 6% og fékk 1,2 milljarða. Hagnaður Baugs var um 1,8 milljarðar af sölunni, en félagið keypti megnið af bréfunum á genginu 5,5. HAGAR SELJA í LYFJU Hagar seldu síðan Lylju. Kaupendur voru VÍS, Kaupfélag Suðurnesja og fleiri félög. Fjárhæðir í þessum viðskiptum hafa ekki verið gefnar upp en nærri lætur að um nokkra milljarða sé að ræða. Hagar höfðu í apríl keypt 45% hlut stofnenda Lytju, þeirra Inga Guðjónssonar og Róberts Melax, og eignast þar með fyrirtækið að fullu. NORÐURLJÓS SELJA SKÍFUNA En Róbert Melax fór ekki langt frá Baugsmönnum. Hann keypti Skífuna af Norðurljósum, en Jón Ólafsson, fyrrum eigandi Skífunnar, hefur forkaupsrétt að hlutnum og getur gengið inn í kaupin hafi hann áhuga. 92

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.