Morgunn - 01.06.1964, Qupperneq 8
2
MORGUNN
skýrslum um þessi fyrirbæri og rannsaka þau. Hefur þeim
rannsóknum síðan verið haldið áfram, ekki aðeins í Eng-
landi, heldur og um allan hinn menntaða heim.
Þegar árið 1883 gerði Mr. Malcolm Guthrie mjög athygl-
isverðar tilraunir í þessa átt. Tilraunir hans voru í því
fólgnar, að hann teiknaði einfalda mynd á blað, sem hann
síðan lét í umslag og innsiglaði vandlega. Nú átti að reyna
að ganga úr skugga um það, hvort fjarhrif væru til í raun
og veru, með því að láta ákveðinn mann eða menn segja til
um það, hvað á miðanum stæði, og helzt að teikna mynd-
ina. Allrar varúðar var ítarlega gætt til þess að koma í veg
fyrir, að þessi maður gæti fengið minnstu hugmynd um það,
hvað á blaðinu í hinu innsiglaða umslagi stæði. Alls gerði
Mr. Guthrie 150 tilraunir með mismunandi myndir og lagði
þessar þrautir fyrir fleiri en einn úr hópi þeirra, sem reynzt
höfðu næmir fyrir fjarhrifum. Árangur tilraunanna varð
harla merkilegur, enda þótt ýmsar þeirra bæru tiltölulega
lítinn árangur.
Leyfi ég mér að birta hér mynd af árangri átta þessara
tilrauna. 1 hverjum reit er fremst sú mynd, er Mr. Guthrie
varðveitti í hinu innsiglaða umslagi, en við hlið hennar sú
eftirmynd, er sá teiknaði á sitt blað, sem prófaður var
hverju sinni. Líkingin er í öllum tilfellum svo auðsæ, að
ekki er nema um það tvennt að velja, að viðurkenna, að hér
hafi verið um fjarhrif að ræða — eða afgreiða málið með
þeirri fullrðingu, að myndirnar séu annað hvort falsaðar
eða Mr. Guthrie hafi ekki gætt nægilega öruggrar varúðar.
Hið sama verður þá einnig að bera þeim á brýn, sem síðar
hafa endurtekið slíkar tilraunir með svipuðum árangri.
Þær tilraunir, sem taldar eru með öllu skera úr um það,
að fjarhrif eigi sér raunverulega stað, eru þær, sem dr. J.
B. Rhine prófessor við Duke háskólann hefur framkvæmt
um mjög langt árabil með aðstoð hinna færustu vísinda-
manna. Þessar tilraunir hófust fyrir alvöru á árunum 1933
—1934 og beindust þá einkum að einum manni, Hubert E.
Pearce að nafni, sem þá stundaði nám við Duke háskólann.