Morgunn - 01.06.1964, Blaðsíða 40
34
MORGUNN
Um hið fyrra atriði er það að segja, að fólkið á Saurum
virtist vera okkur mjög þakklátt fyrir komuna. Um síðara
atriðið skal ég aðeins taka fram, að ég gerði mér ekki mikl-
ar vonir um, að með einum miðilsfundi, við fremur erfiðar
aðstæður, yrði unnt að koma miklu til leiðar í þá átt að
draga úr þessari ókyrrð, en hins vegar gat þar komið fram
eitthvað, sem gæfi að einhverju leyti til kynna, hvar orsak-
anna að þessum dularfullu fyrirbærum væri að leita, og sú
vitneskja siðan hjálpað til þess að unnt yrði að draga úr
þeim að nokkru. Því miður gaf það, sem á fundinum gerðist,
enga örugga vísbendingu í þeim efnum.
Ennfremur vil ég geta þess, að ég hafði að sjálfsögðu
mikla löngun til þess að sjá þessi hreyfifyrirbæri gerast, og
ekki sízt vegna þess, að fram til þess tima höfðu engir bein-
línis séð þessar hreyfingar hlutanna eiga sér stað, nema
heimilisfólkið. Satt að segja hafði ég fullan hug á því að fá
að gista þarna um nóttina, en fólkið var svo örþreytt og
vansvefta, að ég taldi mig ekki geta farið fram á það að
baka því meira ónæði og fyrirhöfn. Það varð því að ráði,
að við fórum öll frá Saurum um kvöldið, eftir rúmlega
þriggja stunda dvöl þar.
Daginn eftir, sunnudag 22. marz, kom frú Lára Ágústs-
dóttir miðill frá Akureyri að Saurum. Sagði heimilisfólkið
síðar, að hún hefði séð þar inni margt hið sama framliðna
fólk, sem Hafsteinn hafði lýst þar kvöldið áður. 1 blaða-
viðtaii kvaðst hún einnig hafa séð þar mann, er hún taldi
vera enskan sjómann eða skipstjóra, og taldi, að hann kynni
að einhverju leyti að vera valdur að ókyrrleikanum þar á
heimilinu. 1 samtali við frú Láru og mann hennar, Steingrim
Sigursteinsson, fullyrtu þau bæði, að seint á sunnudags-
kvöldið hefðu þau ásamt fleira heimilisfólki setið inni í bað-
stofuhúsinu og Lára stutt olnboganum á stofuborðið, sem
þá stóð undir glugganum. Fannst henni þá borðið skyndi-
lega taka að titra, og um leið hreyfðist það lítið eitt fram
á gólfið, þó aðeins fáa þumlunga. Þetta kváðust þau bæði
hafa fundið og séð mjög greinilega.