Morgunn


Morgunn - 01.06.1964, Side 29

Morgunn - 01.06.1964, Side 29
MORGUNN 23 ur nú — svo að segja við hvers manns dyr — af óhrekjandi sönnunum um framhaldslífið — ef menn vildu bara sinna þeim — hljótum við að furða okkur á því, að enn skuli vera um allar jarðir svo mikill fjöldi af fólki, sem ýmist er í vafa um málið, eða hallast eindregið að því, að ekkert framhalds- líf sé til. — Ég held, að þessi mikla tregða stafi meðal ann- ars af því, hve ófúsir margir eru á að verja við og við ein- hverju af frístundum sínum til að reyna að gera sér grein fyrir sinni eigin veru og hinu dularfulla sambandi hennar við umhverfið — og jafnframt að hugleiða, að í skynheimi okkar er ekki allt sem sýnist. -----Þið hafið tekið eftir, að ein af sterkustu rótunum undir vantrú margra á framhaldslífið er sú, að þeir telja svo afar ólíklegt að það geti verið til, úr því að skynfæri okkar nái ekki til þess. Þegar þessu fólki eru sagðar sögur af fyrirbærum eins og þeim, sem ég hef nú greint frá, segir það annað hvort, að þetta sé bláber ósannindi, eða sjálfs- blekkingar af einhverju tagi. — Ég hef reynt að spyrja svona fólk, hvort tröllatrú þess á algerlega tæmandi vitneskju hinna venjulegu skynfæra mannsins um tilveruna, bíði eng- an hnekki við það, að þeir leiði hugann að fólki, sem vantar eitthvað af skynfærunum — t. d. fæðist blint eða heyrnar- laust eða hvorutveggja. Eru ekki uppistöður kveldroðans og norðurljósanna til eins fyrir því, þó að þeir blindu skynji þær ekki? Og er ekki níunda hljómkviða Beethovens til eins fyrir því, þó að fólk, sem vantar heyrnina, geti ekki notið hennar? — Það er til urmull af dýrum, sem hafa hvorki sjón né heyrn. Dettur nokkrum sjáandi og heyrandi manni í hug að segja, að jarðlífstilveran sé eins og hún birtist þess- um dýrum? — Er ekki deginum ljósara, að það sem á stend- ur, snertandi framhaldslífið, er ekki meira líf og fleiri til- verusvið, heldur ný skynfæri, til að skynja það líf og þá til- veru? — Svona spurningar geta í bili komið hiki á þá van- trúuðu, en það líður sjaldnast á löngu, áður en þeir komast aftur á gömlu linuna. -----önnur veigamikil rót undir vantrú margra á fram-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.