Morgunn


Morgunn - 01.06.1964, Page 70

Morgunn - 01.06.1964, Page 70
64 MORGUNN athyglisverðar — og vaí’alaust að ýmsra áliti furðulegar greinar um rannsóknir nítján lækna i Brasilíu á líkamn- ingafyrirbærum, sem þeir hafa rannsakað vandlega og meðal annars tekið af ekki færri en fjögur hundruð ljós- myndir. Hafa þeir sagt frá rannsóknum sínum í sjónvarpi í heimalandi sínu og birt þar margar ljósmyndir af þessum furðulegu fyrirbærum. Einn þeirra 19 lækna, er þátt tóku í þessum tilraunum er dr. Oswaldo de Castro, skurðlæknir í Sao Paulo, er kveðst hafa gjörzt þátttakandi til þess að sanna, að þarna væru eingöngu svik á ferðinni. Hann kemst m. a. svo að orði: ,,Ég hafði engan trúnað lagt á þessi fyrirbæri, enda haldið því fram, að þau væru ekki annað en svikin einber. Þess vegna tók ég þátt í þessum tilraunum fullur tortryggni og staðráðinn í þvi, að reyna að komast að raun um og sanna, að svik væru í tafli. Af þessu hugarfari til málsins mótaðist sú ítarlega rannsókn, sem ég gerði á lækningastofunni sjálfri, þar sem tilraunirnar fóru fram, öllu því, sem þar var inni og allri tilhögun tilraunanna sjálfra. Ég gekk úr skugga um það, að gólf stofunnar var úr ósviknum tígulsteini, rann- sakaði veggina, gluggana og læsingar þeirra, og komst að raun um, að þar var ekkert tortryggilegt. Við rannsökuðum vendilega alla þá, sem viðstaddir voru. Ailir voru jakkalaus- ir, og þeim var ekki leyft að hafa nokkurn hlut í fórum sín- um, nema gleraugu. Við athuguðum einnig ljósmyndavél- arnar gaumgæfilega bæði utan og innan. Miðillinn var jafnan læstur inni í rambyggilegu stálbúri, sem vegur 200 kílógrömm. Við athuguðum búrið, fullvissuð- um okkur um, að miðillinn var fjötraður við búrið bæði á höndum og fótum og víðar og þeim fjötrum læst með lás. Hurð búrsins var einnig rækilega læst og læsingin innsigluð og voru á innsiglinu nöfn margra þeirra lækna, er viðstaddir voru. Ég er því gjörsamlega sannfærður um, að engum svik- um varð þarna við komið“. Annar úr hópi hinna 19 lækna, dr. Elias Barbosa, prófessor í læknisfræði, segir:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.