Morgunn


Morgunn - 01.06.1964, Page 76

Morgunn - 01.06.1964, Page 76
70 MORGUNN síðasta aðalfundi Sálarrannsóknafélagsins varð sú breyting á, að Morgunn var gerður að ársriti félagsins og andvirði hans innifalið í félagsgjaldinu. Þetta breytir að sjálfsögðu engu um stefnu og form tímaritsins. Hins vegar má ætla, að þessi breyting geti stuðlað að því í náinni framtíð, að gera efni ritsins fjölbreyttara og meira en áður. Ég vænti þess, að Morgunn megi framvegis eins og hing- að til njóta vaxandi vinsælda og varpa aukinni birtu á tor- ráðnar gátur bæði lífsins og dauðans. Sigur spíritismans. Þegar frumherjar spíritismans hér á landi, þeir Einar H. Kvaran, Björn Jónsson ritstjóri, Haraldur Níelsson síðar prófessor o. fl. tóku að kynna mönnum þessa stefnu fyrir 60 árum og hefja hér tilraunir með miðla, mætti þetta ofsa- legri andstöðu margra, og einkum þeirra, sem fáfróðastir voru um þessi mál og sízt vildu kynna sér það eða nokkuð nærri því koma. Fyrirlestrar voru haldnir í höfuðstaðnum, þar sem fullyrt var, að hér væri eingöngu að ræða um samband við illa anda, útsendara sjálfs myrkrahöfðingjans til þess eins að steypa sálunum í eilífa glötun. Aðrir töldu þetta einbera pretti og svik. Enn aðrir sögðu, að hér væri gamla hindur- vitna- og draugatrúin afturgengin og aðeins klædd í móðins búning. Enn eru slíkar raddir að vísu ekki með öllu þagn- aðar, en þær eru orðnar afskaplega hjáróma og hásar. Viðhorf þjóðarinnar til spiritismans og sálarrannsókn- anna er orðið gjörbreytt. Ekki svo að skilja, að allir fallist nú skilyrðislaust á að skýringar spíritista á hinum dulrænu fyrirbærum séu réttar í öllum atriðum. En hugsandi menn, bæði hér á landi og um allan hinn menntaða heim, viður- kenna nú, að hin dulrænu fyrirbæri séu merkilegt rannsókn- arefni, og að áframhaldandi, vísindaleg könnun á hinni svo- kölluðu undirvitund og öðrum duldum eigindum sálarlífsins geti leitt til mikilvægra uppgötvana á sviðum læknisfræðinn- ar og varpað jafnframt ljósi á samband og samstarf sálar og líkama og jafnvel leyst þá gátu, hvort líf sé að loknu þessu,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.