Morgunn - 01.12.1970, Page 15
MORGUNN
93
aða heim, hafa í sívaxandi mæli lcitað slíkra raka og fundið
]iau harla mörg og eru enn ósleitilega að þvi að vinna. 1 annan
stað hefur síendurtekin reynsla einstaklinganna á öllum öld-
um hnigið í þessa sömu att og sannfært milljónir manna um
tilvist sálarinnar, líf eftir líkamsdauðann og samband við fram-
liðna vini.
Þegar hefur verið sarmað á vísindalegan hátt, og svo ræki-
lega, að ekki verður dregið í efa af nokkrum sæmilega viti-
bornum og menntuðum manni, sem á annað borð vill kynna
sér þær rannsóknir, — að hin svonefndu fjarhrif (Telepathy)
eiga sér raunverulega stað á milli lifandi manna á þann veg,
að hugsanir og áhrif berast frá einum hug til annars, oft um
óravegu og án þess að þar sé um skynjun hinna venjulegu
skynfæra líkamans að ræða, heldur berast þessi áhrif beint
frá einni sál til annarar.
Efagjarnir efnishyggjumenn hafa raunar bent á þann
rnöguleika, án þess þó að geta fært þar að nokkrar sönnur, að
hér geti verið að ræða um eins konar rafbylgjur, sem heila-
frumurnar sendi út og heili anhars manns síðan taki á móti,
líkt og á sér stað með fjarskiptatækjum eða við útvarpssending-
ar. Þetta fær þó ekki staðizt, í fyrsta lagi vegna þess, að allar
slikar bylgjur dofna eftir þvi sem fjarlægðin eykst. Fjarhrifin
virðast liins vegar jafnsterk og greinileg, hvort sem sendandi
er i næsta húsi við viðtakanda hugskeytis eða í annari heims-
álfu. Á síðustu árum hafa verið gerðar fjarhrifatilraunir milli
manna, sem lokaðii' hafa verið inni í klefum þannig gerðum,
að engar rafbylgjur né geislun, sem við þekkjum, gat borizt í
gegn um veggi þeirra. Þetta hafði engin áhrif. Fjarhrif áttu
sér stað milli þeirra jafnt fyrir því.
Fjarhrifatilraunirnar sýna og sanna, að hugur eða sál
mannsins getur þegar i þessu lífi starfað utan við líkamann
og áhrifin borizt á milli manna um óravegu án þess að fara
hinar venjulegu og takmörkuðu leiðir skynfæraskynjananna.
Svipað virðist og stundum eiga sér stað í svefni. I svefni er svo
að sjá á stundum, að sálin beinlínis yfirgefi likamann um stund
og lerðist til fjarlægra staða og skynji það, sem þar fer fram