Morgunn - 01.06.1980, Side 7
RAGNHILDUH OLÖF GOTTSkAi.KSDÓTTIR
5
nýr postuli í hópinn, þá var tekinn maður, sem hafði verið
vottur að upprisunni. Og þegar Tesús sendi lærisveinana út
um heiminn, þá lagði hann áherslu á þetta sama. „Þér eruð
vottar þessara hluta.“
Fyrir boðskap og vitnisburð frumvottanna breiddist trúin
á Krist og trúin á ódauðleikann út um heiminn og nýir vott-
ar tóku við og hver af öðrum i rás aldanna allt til okkar
daga. Við kveðjum hér í dag einn þessara votta, konu sem
hefur horið vitnisburðinn um upprisuna og ódauðleikann
til okkar og svo ótalmargra annarra hæði hérlendis og erlendis,
Henni var gefin sú sérgáfa, sem gerði henni mögulegt að s]á
út fyrir hinn jarðneska sjóndeildarhring, sjá hluti, sem hún
hlaut að bera vitni. Og jafnframt var hún valin til að vera
farvegur fyrir kraft oy styrk úr æðra heimi, lækningamátt,
sem mörgum hefur orðið til blessunar. Fyrir þessa hluti, fyrir
þá náð, sem henni var gefin, hefur hún orðið einn af áhrifa-
mestu vottum okkar samtiðar og því hef ég gert páskaguð-
spiallið að yfirskrift þessarar stundar, af því að ég sé hana
ekki sist sem arftaka kvennanna, sem komu frá gröfinni til
að flytia tíðindin um þann mikla sigur, sem hafði í eitt skipti
fyrir öll þurkað dauðann út sem afl eða vald, en gert hann
að fæðingu til nýs lífs.
Ragnhildur í Tiarnargötunni, eins og hún var oftast nefnd,
var trú þessum vitnisburði. Hún lét hvorki misskilning né
fordóma hindra sig. í bæn og trú vann hún hlutverk sitt,
i auðmýkt, fyrir Krist, fyrir hinn upprísna, lifandi Drottin,
sem hún hafði sjálf oft séð og vissi, að átti og á allt vald á
himni og iörð.
Hún hét fullu nafni Ragnhildur Ólöf Gottskálksdóttir. Hún
fæddist 11. mars árið 1903 að Görðum í Kolbeinstaðahreppi
á Snæfellsnesi, dóttir Gottskálks Riörnssonar húsameistara frá
frá Stórahrauni og konu hans Sesseliu Þorsteinsdóttur frá
Grenium. Ragnhildur var þriðja yngst 7 systkinabarna þeirra.
Hún missti móður sína fjögurra ára gömul og fór þá i fóstur
að Haukatunpu til föðursystur sinnar, Guðríðar, og manns
hennar Páls Sigurðssonar. Þar var Ragnhildur til 11 ára ald-