Morgunn - 01.06.1980, Side 67
BÆKUR
65
til þess að framleiða og bæta tæki sem til þess eins eru ætluð
að eyða mannslífum. Það ber ekki mikinn vott um andlegan
þroska mannkynsins, að svo að segja hver einasti ungur mað-
ur er neyddur til þess að eyða nokkrum arum ævi sinnar til
þess að læra að drepa menn.
Sökum þess gífurlega ótta, sem skapast meðal manna í
styrjöldum leysast iðulega úr læðingi hin verstu öfl í mann-
inum, því honum er kennt að hata óvini sína. En þótt undar-
legt megi teljast, þá gerist endrrnn og eins hið gagnstæða, að
í voðalegum raunum brýst kærleikurinn í manninum fram,
þrátt fyrir allt; innsti kjami mannsins, svo hann getur orðið
helgum manni líkur að umburðarlyndi og góðleik.
Bók sú, sem hér er gerð að umtalsefni sýnir þetta mjög
ljóslega. Hún er annars vegar lýsing á vitfhTÍngslegri
grimmd, svo voðalegri, að erfitt er að skilja hvemig nokkur
manneskja getur komið þannig fram við aðra mannveru, og
hins vegar lýsir bókin einnig ótrúlegu afli kærleikans, eins
og hann getur lýst sér hjá mönnum, sem öllu virðast sviptir
og algjörlega á valdi grimmdar og mddaskapar.
Hér er ekki verið að segja frá atburðum í skáldsögu, held-
ur um að ræða frásögn manns sem persónulega lifði þetta allt
saman og tók þátt í því. Það er að sjálfsögðu enginn skemmti-
lestur að lesa um ofbeldi á varnarlausum mönnum, en ef
við ætlum að kynnast manninum eins og hann er i raun
og veru, verðum við að hafa hugrekki til þess að skoða allar
hliðar persónuleikans, einnig þær sem manni býður við. Ef
við ætlum að leita sannleikans, þá þýðir ekki að snúa sér
undan því, sem samræmist ekki óskmn okkar. En ég fullvissa
lesendur þessarar bókar um það, að það borgar sig að lesa
þessar frásagnir, því þær bera einnig með sér hinn gífurlega
og guðdómlega styrk, sem getur komið í ljós i ömurlegasta
andstreymi. Þetta er sannkölluð hetjusaga. Ekki svo að skilja,
að þess sé að vænta, að þessara hetja verði getið á blöðum sög-
unnar. Þar er ekki pláss fyrir aðra en þá sem mest ber á í
heiminum, en það eru iðulega engan veginn þeir sem tign-
astir eru og göfugastir á hinum andlegu sviðum.
5