Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 78
ÚR VIÐTALI VIÐ W. G. ROLL
William G. Roll, forstjóri stofnunar sem nefnist „Psychical Re-
search Foundation“, sótti þing dulsálarfræðinga í Reykjavik sl.
sumar. Roll hefur komið nokkrum sinnum áður til Islands og er
mörgum Islendingum kunnur. Stofnun hans er í Durham í Norð-
ur-Karolínu i Randarikjunum, sömu borg og stofnun dr. J. R.
Rhine, en hjá honum starfaði Roll alllengi. Sálarrannsóknastofnun
sú, sem Roll veitir forstöðu leggur stund á margar hliðar dul-
sálarfræðilegra vandamála, einkum þó ,,poltergeist“-fyriibæra,
ærslanda. Ennfremur hefur Roll verið ritstjóri timarits, sem fjallar
um likur á framhaldslífi.
Blaðamaður Morgunblaðsins, Hildur Helga Sigurðardóttir, átti
viðtal við W. G. Roll meðan á þinginu stóð og birtist hér brot úr
þvi.
„Tuttugu og tvö andlit Evu“
„Svo við minnumst aftur á „poltergeist“, ærslanda, þá er
það hliðstætt því að hafa „dulinn persónuleika“. Munurinn
er sá, að „poltergeist" kemur fram í efnisheiminum, en dul-
inn persónuleiki skýtur upp kollinum í sálarlífi fólks. Minni
og vitund skrá allt, sem við upplifum, og þó við höfum til-
hneigingu til að batla niður innra með okkur það, sem við
viljum síður muna, þýðir það ekki að það hverfi úr vitundinni.
Það lifir áfram í undirmeðvitundinni og hættan er sú að það
fari að lifa sjálfstæðu lífi, án þess að við gerum okkur grein
fyrir því og skjóti síðan upp kollinum í formi „dulins per-
sónuleika“.
Eitt frægasta dæmi um slikt, sem sögur fara af, er tilfelli
bandarísku konunnar Chris Sizemore, sem þekktari er undir
nafninu „Eva“ (margir muna eflaust eftir kvikmyndinni
„Þrjú andlit Evu“, sem sýnd var í islenska sjónvarpinu á dög-
unum).
„En hún bjó ekki yfir þremur ólíkum persónuleikum, eins
og fram mun hafa komið í kvikmyndinni, sem um hana var
gerð, heldur börðust tuttugu og tveir persónuleikar um völdin
í sál hennar. Ég hef átt mörg samtöl við þessa konu, en hún
er nú 54 ára gömul og „fann sig“ fyrst fyrir sex árum, þ. e.