Morgunn


Morgunn - 01.12.1980, Page 51

Morgunn - 01.12.1980, Page 51
SVAR VIÐ I.ÍFSGÁTUNNI 145 stilltur í skapi. Það hefur orðið þér dýrt spaug, bæði í Egypta- landi og Englandi. Þér væri nær að fara að læra að stjórna því núna.“ Hér var skaphafnareinkennum lýst af mikilli nókvæmni og afdráttarlausri hreinskilni, hvort sem í hlut áttu nánir vinir eða ættingjar Cayces eða fólk sem hann þekkti sáralítið, svo sem Lammers, Linden Shroyer eða aðrir vinir Lammers. Þetta jók hrifningu og áhuga hins síðamefnda um allan helm- ing; auk þess sem þetta var Cayce sjálfum mikil hvatning, þegar hann fór að gera sér ljóst, hve mikilvægt þetta væri, þó að vísu væri farið að fara dálítið um hann. Þrátt fyrir þetta fór nú í hönd timabil erfiðra efasemda og miskunnar- lausrar sjálfskoðunar. Að visu hafði skyggni hans sannfært hann um það, að hann gæti treyst henni ásamt öllum sjúk- dómsgreiningum og fyrirmælum. Hér væri áreiðanlega frem- ur á ferð verk guðs en djöfulsins. En nú hafði skotið upp koll- inum þessi óguðlega skoðun! Hvernig átti nú að vera hægt að treysta nokkru framar? Það er ekki erfitt að skilja þessa innri baráttu Cayces. Hann var alinn upp í ströngum rétttrúnaðar-kristindómi, þar sem enga fræðslu var að fó um önnur mikil trúarbrögð heimsins. Þegar hér var komið sögu var honum að mestu hulið hve margt var sameiginlegt í mikilvægum atriðum í kenningum annarra trúarbragða og hans eigin trú. Hann hafði því enga aðstöðu til þess að meta siðferðilegt og andlegt gildi neinna trúarhragða utan sinnar eigin trúar. Hann minntist þess að hafa lesið einhvers staðar um Hindúa sem neituðu að drepa kýr af ótta við að þær væru endurholdgaðir forfeður. Og hafði hann ekki lesið einhvers staðar um fólk sem neitaði að drepa bjöllur — eða var það að éta baunir? — af þvi að í þessu gæti fólgist andi lótins forföður! En það voru dálestramir sjálfir sem greiddu úr þessum hugsanaflækjum Cayces. Þeir gerðu grein fyrir því, að end- urholdgun táknaði ekki endurkomu manna i dýrsmynd. End- urholdgunarkenningin væri ekki hjátrú þekkingarsnauðs fólks. Hér væri á ferð kenning sem bera ætti fulla virðingu fyrir, 10

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.