Morgunn - 01.12.1980, Blaðsíða 55
SVAR VIÐ LÍFSGÁTUNNI
149
trú þeirra, þótt þeir líti á endurholdgun sem visindalegan og
trúarlegan möguleika.
Að visu kunna sumar hugmyndir kristilegrar guðfræði i
fljótu bragði virðast ganga í berhögg við hugmyndina um
endurholdgun. Þannig mundi kenningin um upprisu hinna
dauðu og dómsdag til dæmis i augum bókstafstrúairmanna
virðast í beinni mótsetningu við endurholdgun. En er nú
ekki hugsanlegt að „upprisa dauðra“ og „dómsdagur“ hafi
átt að skiljast á táknrænan hótt fremur en bókstaflega?
Cayce fannst þessi svör umhugsunarverð og drógu þau tals-
vert úr þeirri ringulreið sem komst á hugsanir hans, þegar
honum fannst að hans eigin dularöfl gengju í berhögg við
barnatrú hans. En nú risu ný andmæli upp í hug hans, og
að þessu sinni vísindalegs eðlis. Hvað um hina miklu mann-
fjölgun í heiminum til dæmis? Samræmist hún liugmyndinni
um það, að allar sálir hafi verið áður á jörðinni? Hvaðan
kom viðbótin?
öll fjölskylda Cayces, ásamt þeim Gladys Davis, Lammers
og Linden Shroyer, myndaði nú umræðuhóp þar sem rætt
var af miklu fjöri um þessar spurningar. Þegar þau rak i
vörðurnar í umræðunum, þá leituðu þau svara i sjálfum dá-
lestrunum. Og þegar svör þeirra reyndust alltof ótrúleg var
leitað til bóka í bókasöfnum borgarinnar.
Hvað snerti svar við spurningunni um mannfjölgunina,
þá fundu þau það án mikillar fyrirhafnar. Þannig hélt ein-
hver því fram, að það væri engan veginn víst að mannfjölg-
un hefði átt sér stað. 1 mörgum dálestrunum var minnst á
horfnar siðmenningar i Egyptalandi og Atlantis. Fornar rústir
i Kambódiu, Mexíkó, Egyptalandi og Austurlöndum staðfesta,
að miklar siðmenningar hafi eitt sinn blómgast, þar sem nú
eru auðnir og eyðimerkur. Það er því hugsanlegt, að miklar
öldur mannfjölda hafi risið og sigið einhvern tima í rökkri
sögunnar, án þess að tala sálna í alheiminum hafi við það
nokkuð breyst. Hinn ósýnilegi heimur kann að hýsa milljónir
sálna á tímum, þegar skilyrðin fyrir jarðvist þeirra eru
óheppileg.