Morgunn


Morgunn - 01.12.1980, Page 55

Morgunn - 01.12.1980, Page 55
SVAR VIÐ LÍFSGÁTUNNI 149 trú þeirra, þótt þeir líti á endurholdgun sem visindalegan og trúarlegan möguleika. Að visu kunna sumar hugmyndir kristilegrar guðfræði i fljótu bragði virðast ganga í berhögg við hugmyndina um endurholdgun. Þannig mundi kenningin um upprisu hinna dauðu og dómsdag til dæmis i augum bókstafstrúairmanna virðast í beinni mótsetningu við endurholdgun. En er nú ekki hugsanlegt að „upprisa dauðra“ og „dómsdagur“ hafi átt að skiljast á táknrænan hótt fremur en bókstaflega? Cayce fannst þessi svör umhugsunarverð og drógu þau tals- vert úr þeirri ringulreið sem komst á hugsanir hans, þegar honum fannst að hans eigin dularöfl gengju í berhögg við barnatrú hans. En nú risu ný andmæli upp í hug hans, og að þessu sinni vísindalegs eðlis. Hvað um hina miklu mann- fjölgun í heiminum til dæmis? Samræmist hún liugmyndinni um það, að allar sálir hafi verið áður á jörðinni? Hvaðan kom viðbótin? öll fjölskylda Cayces, ásamt þeim Gladys Davis, Lammers og Linden Shroyer, myndaði nú umræðuhóp þar sem rætt var af miklu fjöri um þessar spurningar. Þegar þau rak i vörðurnar í umræðunum, þá leituðu þau svara i sjálfum dá- lestrunum. Og þegar svör þeirra reyndust alltof ótrúleg var leitað til bóka í bókasöfnum borgarinnar. Hvað snerti svar við spurningunni um mannfjölgunina, þá fundu þau það án mikillar fyrirhafnar. Þannig hélt ein- hver því fram, að það væri engan veginn víst að mannfjölg- un hefði átt sér stað. 1 mörgum dálestrunum var minnst á horfnar siðmenningar i Egyptalandi og Atlantis. Fornar rústir i Kambódiu, Mexíkó, Egyptalandi og Austurlöndum staðfesta, að miklar siðmenningar hafi eitt sinn blómgast, þar sem nú eru auðnir og eyðimerkur. Það er því hugsanlegt, að miklar öldur mannfjölda hafi risið og sigið einhvern tima í rökkri sögunnar, án þess að tala sálna í alheiminum hafi við það nokkuð breyst. Hinn ósýnilegi heimur kann að hýsa milljónir sálna á tímum, þegar skilyrðin fyrir jarðvist þeirra eru óheppileg.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.