Morgunn


Morgunn - 01.12.1992, Page 19

Morgunn - 01.12.1992, Page 19
MORCUNN Ég Irúði ekki á þetta í fyrstn spyr hann hvernig ég hefði átt að geta það. há segir hann mér það að Bjarni hafi týnst fyrir eitthvað um 10 dögum síðan það sé búið að leita hans alls staðar við höfnina og í henni, þetta var í Frederikstad, og hann finnist ekki. Hann sé því talinn af. „Nei," segi ég, „hann er ekki dáinn." Maðurinn spyr mig hvernig í óskpunum ég telji mig geta vitað það. Hann var reyndar svo hissa á þessari staðhæfingu minni að hann kom heim skömmu síöar að ræða við mig frekar. Og spyr hann mig hvort ég sé ein og ég kvað svo vera þessa stundina. Eiríkur, maöurinn minn, hafði þurft að fara til heimilislæknisins. Eg hringi til hans þar, en heimilislæknir okkar á þessum tíma var einmitt áhugamaður um dulræn málefni. Eg segi Eiríki að ég hafi verið að fá þá tilkynningu að Bjarni sonur okkar sé látinn, en ég sé bara viss um að hann sé það alls ekki. Maöurinn minn svarar því til aö hann trúi frekar því sem ég segi um þetta. „Og þú skalt bara fy 1 gja þinni sannfæringur í þessu," segir hann, „þangað til málið skýrist." Svo kemur þessi maöur heim til okkar, og ég segi honum Ofrá þeirri sannfæringu minni að drengurinn sé lifandi. „Jæja," segir hann, „og hvar þá?" Ég kveðst ekki vita um það en viti þó að hann sé ekki mjög langt í burtu frá mér núna. „bað mun ekki líða á löngu þar til ég heyri frá honum." Maðurinn biöur mig þá aö láta sig vita þegar eg heyri frá honum, og lofa ég því. En þessi maður trúði þó greinilega ekki nema rétt mátulega því sem ég var að SeRja- „Við munum láta þig vita þegar við finnum hann," Segir hann. „bú verður að trúa því að hann er talinn af." Og þannig skildum við. Ég var ekkert að reyna að sann- fera hann um mína skoðun á málinu. Svo líður eitthvað um einn sólarhringur, þá hringir sonur minn í mig, og er þá kominn á fugvöllinn í Keflavík. Ég segi honum náttúrlega strax að þeir hjá skipafélaginu séu búnir að telja hann af og aö hann verði 17

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.